Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Lóan er í uppáhaldi hjá mörgum.
Lóan er í uppáhaldi hjá mörgum.
Mynd / Ragnar Þorsteinsson
Líf og starf 11. september 2019

Forréttindi að fylgjast með fjölbreytileika náttúrunnar

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
„Hér er maður á kafi í náttúrunni alla daga, býr í henni og hún er mitt líf og yndi. Það eru mikil forréttindi að hafa náttúruna í öllum sínum fjölbreytileika fyrir augunum á hverjum degi,“ segir Ragnar Þorsteinsson, bóndi í Sýrnesi í Aðaldal. 
 
Hann hefur myndavél sína ávallt innan seilingar, hvaða verk sem hann svo sem er að starfa að hverju sinni.
 
Ragnar segir að hann taki mikið af myndum af því sem fyrir augu ber, fylgist grannt með því sem er í gangi í umhverfinu og taki myndir. Hann er þekktur fyrir dagatöl sín með lambamyndum sem mörgum þykir ómissandi að útvega sér um hver áramót, en einnig er hann vel liðtækur í að mynda annað ungviði, eins og fugla.
 
Fuglavarp gekk vel á liðnu sumri og ungar komust vel á legg, athygli vakti að ófleygir hrossagauksungar voru á ferðinni allt fram í byrjun ágúst.
 
Fuglavarp gekk vel í sumar
 
Ragnar segir fuglavarp hafa gengið vel í sumar og mikið verið af ungum. Það hafi verið áberandi hversu mikið var af hrossagauk á liðnu sumri og ófleygir ungar sáust á ferli allt fram í byrjun ágúst. 
 
Spói nokkur gerði sér hreiður í flagi á jörðinni hjá Ragnari og vildi svo vel til að það fannst rétt áður en plógurinn lenti á því. Í hreiðrinu voru tvö egg, ungi komst lífs af úr öðru þeirra en vargur skemmdi annað. 
 
Alltaf eitthvað nýtt að sjá
 
„Það þarf oft ekki langt að fara til að sjá undur náttúrunnar, hún er svo að segja við hvert fótmál,“ segir Ragnar, sem er iðinn við myndatökur. „Ég held eins konar dagbók með myndunum mínum, það getur verið gott að fletta þeim upp síðar og þá sér maður t.d. hvernig veðurfar hefur verið á ákveðnum tímum og annað slíkt. Fjölbreytileikinn er mikill og það er alltaf eitthvað nýtt sem fyrir augu ber og kemur á óvart,“ segir Ragnar. 
 
Mikið er af bæði kræki- og bláberjum í Aðaldal, svo mikið raunar að Ragnar segir elstu konur vart muna eftir öðru eins. Berin er að sögn stór og falleg, en verða enn betri fái þau tvo til þrjá sólardaga til viðbótar.
Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 1. júní 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn við vísnagátunni úr 10. tölublaði Bændablaðsins.

Svar við loftmyndagetraun
Líf og starf 1. júní 2026

Svar við loftmyndagetraun

Í loftmyndagetrauninni að þessu sinni voru lesendur beðnir um að bera kennsl á í...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 1. júní 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur hvernig skapandi hugmyndir hans fá nú loksins byr undir báða ...

Kvartbuxur – tímalaus klassi
Líf og starf 27. maí 2026

Kvartbuxur – tímalaus klassi

Eftir nokkra útlegð í tísku- heiminum hafa Capribuxurnar, þessi dæmigerði einken...

Landsmótið í Ólafsvík
Líf og starf 26. maí 2026

Landsmótið í Ólafsvík

Landsmótið í skólaskák fór fram í Ólafsvík í ár. Þetta er merkilegt landsmót  fy...

Vísnahornið
Líf og starf 26. maí 2026

Vísnahornið

Jósep Húnfjörð var vel þekktur á sinni tíð, hér lýsir hann vori: Anga viðir, br...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 26. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Hér er lausn á vísnagátunni úr 9. tbl. Bændablaðisins 2026.

 Sumarblóm í hengipottum – úr ýmsu að velja
Líf og starf 18. maí 2026

Sumarblóm í hengipottum – úr ýmsu að velja

Pottaplöntur heimilisins hafa vonandi komið vel undan vetri en þá er hægt að bei...