Samtengt flutningsnet raforku og stýrikerfi Landsnets er mikilvægur þáttur raforkuöryggis.
Samtengt flutningsnet raforku og stýrikerfi Landsnets er mikilvægur þáttur raforkuöryggis.
Mynd / Landsnet
Lesendarýni 6. mars 2023

Raflínunetið, stýrikerfi og orkusala

Höfundur: Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður, rithöfundur og fyrrum þingmaður

Munur er á flutningskerfi raforku og dreifikerfi, og við bætist sölukerfi. Hvað er íblöndun?

Ari Trausti Guðmundsson.

Flutningsfyrirtæki

Stórt flutningsnet tengir raforkuver landsins við notendur. Virkjanir eru samtengdar þannig að rafstraumur fer um leiðarana á háspennu- möstrum og tvöföldum tréstaurastæðum í gagnstæðar áttir eftir þörfum. Eitt opinbert fyrirtæki, Landsnet, rekur mannvirki netsins, s.s. spennistöðvar, loftlínur og jarðstrengi og flytur raforku frá vinnslustað, á spennusviði frá 66kV til 220kV, til sölu á almennum heildsölumarkaði eða beint til stórnotenda (orkufrekrar starfsemi).

Stýrikerfi

Raforkuframleiðslukerfi með mörgum tengdum virkjunum sem ýmist nota vatnsafl, jarðvarma eða vind til starfseminnar þarfnast flókinnar stýringar (reglunar) og eftirlits, mínútu fyrir mínútu.

Stafrænt, miðlægt hátæknikerfi hjá Landsneti samræmir virkni orkuvinnslustöðvanna og flutningskerfisins. Komi upp vandi í framleiðslunni, línur rofna eða spennar bila o.s.frv. er unnt að bregðast við og koma í veg fyrir, eða lágmarka, frekari vanda og tjón. Einnig er stýrikerfið notað til að láta ólíkar virkjanir „vinna saman“ vegna breytilegs álags eða ytri skilyrða, t.d. auka eða minnka orkuframleiðslu einstakra virkjana.

Dreifiveita

Fyrirtæki sem rekur mannvirki, tengivirki, loftlínur og jarðstrengi og dreifir raforku til sölufyrirtækja nefnist dreifiveita. Dreifiveitur starfa á spennubili frá 0,4kV til 132kV á almennum smásölumarkaði.

Dreifiveitur vinna samkvæmt sérleyfi og kaupa raforkuna frá flutningsfyrirtæki, þ.e. Landsneti.
Þær eru fimm talsins: HS Veitur, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða, RARIK og Veitur.

Sölufyrirtæki

Sölufyrirtæki á sviði orku sjá um orkusölu til flestra notenda og eru valkvæð, eins og allr þekkja hvað varðar olíu- og bensínsölufyrirtæki en nú orðið gildir það einnig um sérstaka raforkuseljendur.

Þeir teljast nú vera átta og þeim ber að eiga í innbyrðis samkepnni um rafokuverð: Fallorka, HS Orka, N1rafmagn, Orka heimilanna, Orka náttúrunnar (ON), Orkubú Vestfjarða, Orkusalan og Straumlind.

Íblöndun eldsneytisala

Seljanda eldsneytis ber að tryggja (frá 2014 að telja) að ákveðið hlutfall af árlegri sölu af jarðefnaeldsneyti til notkunar í samgöngum sé endurnýjanlegt eldsneyti. Það getur numið að lágmarki 5% af orkuinnihaldi (frá 2015 að telja). Oftast er alkóhóli (etanóli eða metanóli) bætt í bensín en lífdísli í dísilolíu. Hér á landi er ljóst að íblöndun dísilolíu er viðhöfð, til að ná lágmarksblöndun í jarðefnaeldsneyti í heild. Blandað er hreinsiefni (ótilgreint) í bensín hjá tveimur seljendum a.m.k. en óljósar hvort alkóhól er notað hjá öðrum, en sú íblöndun virðist umdeild hér á landi. Flugvélaeldsneyti virðst ekki vera blandað öðrum efnum.

Skylt efni: orkumál | orkuskipti

Ágeng barrtré: Verðmæti eða vandamál?
Lesendarýni 31. mars 2023

Ágeng barrtré: Verðmæti eða vandamál?

Það má draga mikinn lærdóm af reynslu Nýsjálendinga. Þar er nú andvirði milljarð...

Velferð hrossa - seinni grein
Lesendarýni 28. mars 2023

Velferð hrossa - seinni grein

Í þessari grein verða tvö atriði skoðuð nánar sem tæpt var á í grein í þarsíðast...

Þess vegna eigum við að standa vörð um íslenska sauðfjárrækt
Lesendarýni 28. mars 2023

Þess vegna eigum við að standa vörð um íslenska sauðfjárrækt

Heimsfaraldur kórónuveiru og innrás Rússa í Úkraínu hefur kallað á endurskoðun á...

Raunveruleg staða nautgriparæktar
Lesendarýni 27. mars 2023

Raunveruleg staða nautgriparæktar

Staða nautakjötsframleiðslunnar á Íslandi er grafalvarleg svo ekki meira sé sagt...

Nýtt upphaf – matvælaframleiðsla á breiðari grunni
Lesendarýni 27. mars 2023

Nýtt upphaf – matvælaframleiðsla á breiðari grunni

Nýverið var kynnt skýrsla um eflingu kornræktar sem ber heitið „Bleikir akrar: a...

Skráning, ræktun, fræðsla, þjálfun og keppni
Lesendarýni 21. mars 2023

Skráning, ræktun, fræðsla, þjálfun og keppni

Smalahundafélag Íslands (SFÍ) er félag áhugamanna um ræktun, þjálfun og notkun B...

Litaerfðir hjá sauðfé
Lesendarýni 20. mars 2023

Litaerfðir hjá sauðfé

Hér höldum við áfram flakki okkar um yfirlitsgreinina Genetics of the phenotypic...

Áhættumat erfðablöndunar útskýrt
Lesendarýni 17. mars 2023

Áhættumat erfðablöndunar útskýrt

Valdimar Ingi Gunnarsson fer mikinn í Bændablaðinu þann 17. febrúar 2023 í gagnr...