Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Fiskeldi útlendinga
Lesendarýni 13. september 2016

Fiskeldi útlendinga

Höfundur: Yngvi Óttarsson
Að undanförnu hefur Gunnlaugur Stefánsson í Heydölum haft uppi þörf viðvörunarorð í Fréttablaðinu og Bændablaðinu um yfirvofandi, varanlegt og óafturkræft tjón á lífríkinu við Ísland verði fiskeldið ekki skikkað til að ganga sómasamlega um lífríkið.  Ekki hefur staðið á svörum frá forsvarsmönnum þaðan enda vasar hinna erlendu eigenda djúpir.  
 
Yngvi Óttarsson. 
Því miður hafa svörin verið heldur ómálaefnaleg.  Þeir skauta alfarið framhjá því að ræða hið margvíslega tjón sem starfsemi þeirra mun valda ef ekki verður gripið í taumana.  Alvarlegast og siðferðilega óverjandi er yfirvofandi óafturkræft tjón á lífríkinu. Hvernig dettur hinum erlendu eigendum í hug að þeir komist upp með að ganga þannig um náttúru landsins? Og vaða í leiðinni yfir þá sem byggja afkomu sína á einstakri náttúru, ferðaþjónustunni, smábátasjómönnum og fleirum?  
 
Erfðamengun
 
Rannsóknir hafa sýnt að erfðasamsetning norska laxastofnsins sem nýttur er í eldinu er mjög frábrugðin erfðasamsetningu náttúrulegu stofnanna sem þróast hafa árþúsundum saman í ám landsins. Stroklaxar úr eldi ganga upp í ár í allt að nokkur hundruð kílómetra fjarlægð, hrygna þar og brengla erfðamengið sem aðlagað er viðkomandi árkerfi og valda í framhaldinu viðkomubresti.  Um þetta eru vísindamenn sammála.  
 
Fiskeldið með hinum framandi norska stofni er enn hættulegra lífríkinu hér við land en í Noregi þar sem íslenskir laxastofnar eru erfðafræðilega svo fjarskyldir norskum stofnum. Norskur eldisstofn fékkst fluttur inn til landsins fyrir 30 árum gegn loforði Landssambands fiskeldisstöðva um að hann yrði aldrei nýttur í kvíaeldi við Ísland, aðeins landeldi. Það loforð hafa eldismenn svikið rækilega og dæmi hver fyrir sig um innrætið.
 
Stroklaxar
 
Sleppingar úr eldinu eru staðreynd.  Bæði getur verið um minni sleppingar að ræða svo sem þegar skrúfa fóðurbáts rakst í net kvíar í Berufirði nýlega og fjöldi fiska fann gatið, og allt upp í að einstök eldiskví gefur sig í heilu lagi með allt að 200.000 norskum eldislöxum. Mat Veiðimálastofnunar er að fyrir hvert tonn framleitt í eldi megi að jafnaði reikna með einum stroklaxi. Þannig muni árlega sleppa 100.000 stroklaxar úr fyrirhuguðu 100.000 tonna eldi við Ísland. Mun fleiri en árlegur fjöldi veiddra laxa af náttúrulegum uppruna.  
 
Staðreyndir frá Noregi
 
Eldisaðilar í Noregi gáfu upp um 300.000 stroklaxa árið 2014 en Hafrannsóknastofnun Noregs álítur raunfjölda stroklaxa vera tvöföld til fjórföld sú tala. Vísindamenn telja því að árlega sleppi um ein milljón stroklaxa úr eldi í Noregi, nálægt einum laxi fyrir hvert tonn sem framleitt er. Staðreyndirnar tala sínu máli og óraunhæft að gera ráð fyrir lægra sleppihlutfalli í eldi hér við land vegna erfiðs sjólags, lagnarðarísa, mögulegs hafíss og annarrar óáran.
 
Nú er svo komið að náttúrulegir laxastofnar í Noregi hafa látið verulega á sjá. Heildar stofnstærðin er innan við helmingur af því sem hún var fyrir 30 árum og stofnum í ein­staka ám ýmist verið eytt eða þeir í stórhættu. Niðurstöður nýrrar rannsóknar norsku náttúrufræðistofnunarinnar (NINA) sem birtar voru á þessu ári sýna að tveir af hverjum þremur náttúrulegum stofnum í Noregi eru orðnir erfðafræðilega brenglaðir af völdum stroklaxa úr eldi. Þarf frekari vitnanna við?
 
Í ljósi þessara alvarlegu afleiðinga hafa Norðmenn hafið tilraunir með ófrjóan eldislax en auðvelt og ódýrt er að gelda eldislax með því að þrýstimeðhöndla hrognin. Eldið með ófrjóa fiskinn hefur gengið á kaldari svæðum í Noregi. Því ætti að vera vandalítið fyrir eldið hér á landi að nýta þessa tækni. Ekkert frumkvæði er að sjá í þá átt.
 
Náttúruunnendur, almenningur og stjórnkerfið verða að grípa í taumana og koma í veg fyrir að fiskeldið valdi varanlegu og óafturkræfu tjóni á íslenskri náttúru.
 

Skylt efni: Fiskeldi

Ósonlagið er klárt, hvað næst?
Lesendarýni 23. apríl 2024

Ósonlagið er klárt, hvað næst?

Dóttir mín kom heim um daginn og hafði verulegar áhyggjur. Jörðin væri víst að e...

Hvaða máli skiptir forseti Íslands fyrir bændur?
Lesendarýni 17. apríl 2024

Hvaða máli skiptir forseti Íslands fyrir bændur?

Hvaða máli skiptir embætti forseta Íslands fyrir bændur? Þessa spurningu fékk ég...

Beinin í garðinum
Lesendarýni 10. apríl 2024

Beinin í garðinum

Kirkjugarðar, sérstaklega gamlir kirkjugarðar, eru áhugaverðir staðir. Við leggj...

Merk starfsemi við Bodenvatn
Lesendarýni 5. apríl 2024

Merk starfsemi við Bodenvatn

Í vestanverðu Bodenvatni á landamærum Sviss, Þýskalands og Austurríkis er eyja m...

Við og sauðkindin
Lesendarýni 28. mars 2024

Við og sauðkindin

Sauðkindin hefur verið hluti af menningu okkar og gaf okkur margt af því sem þur...

„Stórborgarelítan hefur hunsað bændur of lengi“
Lesendarýni 27. mars 2024

„Stórborgarelítan hefur hunsað bændur of lengi“

Þannig mæltist Camillu Cavendish, dálkahöfundi Financial Times (FT), þann 24. fe...

Landbúnaðarandúð
Lesendarýni 26. mars 2024

Landbúnaðarandúð

Fjölþátta ógnir steðja að íslenskri matvælaframleiðslu sem þó koma flestar úr sö...

Bændur, norskir víkingar og sjálfbær landnýting
Lesendarýni 25. mars 2024

Bændur, norskir víkingar og sjálfbær landnýting

Eins langt aftur og Íslandssagan nær hefur landnýting og búskapur verið órofa he...