Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Svipmyndir frá æfingum leikaranna og greinilegt er að mikið fjör er í mannskapnum. Við sjáum bregða fyrir þeim Hrólfi Jóni Péturssyni, Arndísi Ingu Árnadóttur, Guðrúnu Kolbrúnu Gabríelsdóttur, Valdemar Hermannssyni, Eyhildi Ragnarsdóttur, Arneyju Dagmar Sigurbjörnsdóttur,
Eyþóri Kára Ingólfssyni, Sigurbirni Árna Arngrímssyni, Önnu Kristjönu Guðbergsdóttur, Benedikt Guðbergssyni, Dagrúnu Ingu Pétursdóttur og Kristrúnu Kristjánsdóttur í hlutverkum sínum.
Svipmyndir frá æfingum leikaranna og greinilegt er að mikið fjör er í mannskapnum. Við sjáum bregða fyrir þeim Hrólfi Jóni Péturssyni, Arndísi Ingu Árnadóttur, Guðrúnu Kolbrúnu Gabríelsdóttur, Valdemar Hermannssyni, Eyhildi Ragnarsdóttur, Arneyju Dagmar Sigurbjörnsdóttur, Eyþóri Kára Ingólfssyni, Sigurbirni Árna Arngrímssyni, Önnu Kristjönu Guðbergsdóttur, Benedikt Guðbergssyni, Dagrúnu Ingu Pétursdóttur og Kristrúnu Kristjánsdóttur í hlutverkum sínum.
Mynd / Aðsendar
Menning 3. febrúar 2023

Gauragangur í Þingeyjarsveitinni

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Liðsmenn Leikdeildar Eflingar heldur úti leiklistarstarfi í Reykjadal í Þingeyjarsveit en nú í nóvember hófu þau æfingar á verkinu Gauragangi eftir Ólaf Hauk Símonarson.

Sagan gamalkunna fjallar um hetjuna hann Orm Óðinsson, nemanda á síðasta ári í gagnfræðaskóla, lífsviðhorf hans, upplifanir og öflugt félagslíf.

Kitlar taugar margra

Var bókin um Orm útgefin í fyrsta skipti árið 1988 og naut mikillar hylli enda kitlaði söguhetjan taugar margra. Á það við jafnt ungra sem aldinna og geta eflaust einhverjir enn þann dag í dag sett sig í spor þessa gæðings sem er að feta fyrstu spor sín í átt til fullorðinsáranna. Ólafur Haukur gaf í kjölfarið út sjálfstætt framhald sögunnar, Meiri gauragangur, sem einnig átti vel upp á pallborðið hjá lesendum. Er leikverkið sem slíkt einnig afar vinsælt og verður gaman að sjá tilþrifin sem Leikdeild Eflingar býður upp á nú í febrúar.

Þarna stíga á svið bæði gamalreyndir meðlimir áhugaleikhússins auk nokkurra nemenda framhaldsskólans, en að verkinu koma upp undir 20-30 manns sem bæði vinna fyrir framan og bak við tjöldin, og leikstjóri er hún Jenný Lára Arnardóttir.

Stefnt er á frumsýningu fyrstu eða aðra helgina í febrúar og því mikil spenna í lofti, bæði hjá þeim sem bregða sér í hlutverkin svo og þeim er munu á horfa.

Setið í hring

Skemmtilegt er að segja frá því að í stað hefðbundins leiksviðs verður uppsetningin á nýstárlegan hátt, sitja gestir í hring, við borð – kvenfélagið býður upp á vöfflukaffi – en leikendur láta ljós sitt skína inni í hringnum.

Sýnt verður á Breiðumýri að venju, og áætlaðar eru um tíu sýningar. Miða er hægt að kaupa í gegnum tölvupóst og síma og verður auglýst þegar nær dregur og um að gera að festa sér einn slíkan sem allra fyrst.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 14. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn finnur fyrir óvæntri spennu og sköpunarkrafti í kringum sig þessa da...

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði
Líf og starf 13. maí 2026

Blómlegt skáklíf í Hafnarfirði

Undanfarna mánuði hefur skáklífið blómstrað í Hafnarfirði. Auk skákæfinga Skákde...

Sveinn Pálsson
Líf og starf 13. maí 2026

Sveinn Pálsson

Eitt af því sem einkennir vora tíma er að flest fyrirbrigði á jörðinni eiga sér ...

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla
Líf og starf 12. maí 2026

Blómin á þakinu á Vesturbæjarskóla

Mikil gróska er í gróðurhúsinu á þaki Vesturbæjarskóla þar sem nemendur í sjötta...

Vísnahornið
Líf og starf 11. maí 2026

Vísnahornið

Þættinum barst kveðja frá Tómasi Inga Þorgrímssyni varðandi leturstærð:

Hólmavík rétt svar við myndagetraun
Líf og starf 4. maí 2026

Hólmavík rétt svar við myndagetraun

Hólmavík var staðurinn sem sást úr lofti í myndagetraun Bændablaðsins sem kom út...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 4. maí 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn: Næstu dagar færa óvænta krafta og hugmyndir sem geta breytt þeim fr...

Lausn á vísnagátunni
Líf og starf 4. maí 2026

Lausn á vísnagátunni

Lausnin á vísnagátu úr 8. tölublaði Bændablaðsins.