Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Vísnahornið
Líf og starf 8. september 2026

Vísnahornið

Höfundur: Magnús Halldórsson

Davíð Hjálmar Haraldsson gerir skil af snilli, spá hjá kunnum veðurfræðingi:

Óboðnum sýnir enga vægð,

eldingarleiftrum skýtur brá.

Vildi ég ekki vera lægð

væri hann Óli Þór að spá.

Þrátt fyrir að björtustu næturnar séu liðnar er rétt að rifja upp þessa sem Þorsteinn Erlingsson orti á sinni tíð:

Ekki er margt sem foldar frið

fegur skarta lætur

eða hjartað unir við

eins og bjartar nætur.

Aldrei bregst snilldin hjá Ingólfi Ómari í hringhendunum og fáir gera betur í þeim efnum:

Andann þvingar ekki neitt,

orðin klingja af munni,

oft er kynngi braga beitt

best í hringhendunni.

Óðsnilld klingir fim og frjáls,

fjörgar slyngan muna,

Orðakynngi bragabáls,

bætir hringhenduna.

Oddgeir bóndi í Tungu í Fljótshlíð var spaugsamur og orti um Séra Sigurð á Bergþórshvoli. Sem eins og fleiri var einlægur stuðningsmaður Ingólfs Jónssonar, alþingismanns og ráðherra:

Ánægður klerkur við amstur og puð

og íhaldsins þrotlausu dellu.

Við tíðir í kirkju hann talar um Guð

en trúir á Ingólf á Hellu.

Meðan þeir lifðu og tókust á, félagar Árni Johnsen og Eggert Haukdal, orti Oddgeir í Tungu þessa vísu:

Atkvæðaveiðin er erfið og ströng

en hún er það sem dugar og varir.

Hér austur frá mætið þið Árna með söng

en Eggerti við jarðarfarir.

Séra Stefán Stephensen á Mosfelli mun hafa verið helsti hvatamaður þess að út úr Grímsnesi var gerður Laugardalshreppur. Bjarni Eggertsson frá Vaðnesi Eyrarbakka orti af því tilefni:

Afkvæmið er alskapað

eftir langar kvalasóttir.

Ljótt er nafnið langstafað:

Laugardalshreppur Stefánsdóttir.

Þegar Kaupfélag Árnesinga hóf uppskipun við Eyrarbakka fékk Egill Thorarensen bát sem hriplekur var og kallaður Grútur, Bjarni Eggertsson orti þegar báturinn fór í slipp:

Egill laus við sorg og sút

seigur enn sem forðum,

keypti að sunnann gamla Grút

sem genginn var úr skorðum.

Upp í slippinn fór hann fyrst

og fann þar efnisvörðinn,

þar sem Torfi af töfralist

tróð í stærstu skörðin.

Páll á Hjálmsstöðum í Laugardal var kunnur hagyrðingur á sinni tíð og urðu margar vísur hans fleygar:

Lærðir hafa lag á því

að látast vera góðir

slá þeir svona úr og í

undirhyggjufróðir.

Páll á Hjálmsstöðum var líka kunnur ferðagarpur á sinni tíð og orti þegar hann varð áttræður um sjálfan sig:

Áttræður kall er öskufall,

út í halla runninn,

krapasalli, kalk og gjall,

kjarninn allur brunninn.

Ekki veit ég hver sneri svona spaugilega úr úr þekktri vísu þjóðskáldsins:

Enginn drekkur Íslending

eftir að hann er dáinn.

Það væri líka vitfirring

að vera að hella í náinn.

Senn líður að einhverri kosningu sem allir virðast vera að velta fyrir sér. Pétur Stefánsson gerir þessu skil svona:

Fylkingarnar fljúgast á

fúkyrðunum hreyta.

Sumir vilja segja já,

sumir ætla að neita.

Umsjón: Magnús Halldórsson

mhalldorsson0610[hjá]gmail.com

Skylt efni: vísnahornið

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...

Fjögur sunnudagsskákmót
Líf og starf 23. september 2026

Fjögur sunnudagsskákmót

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var mögulega einhvers konar skákmet slegið. G...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f