Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 11 mánaða.
Bikarmeistarar 2025. Frá vinstri: Júlíus Sigurjónsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Björn Eysteinsson og Guðmundur Páll Arnarson. Þorlák Jónsson vantar á myndina.
Bikarmeistarar 2025. Frá vinstri: Júlíus Sigurjónsson, Guðmundur Sv. Hermannsson, Björn Eysteinsson og Guðmundur Páll Arnarson. Þorlák Jónsson vantar á myndina.
Mynd / bþ
Líf og starf 22. október 2025

Spennandi bikarúrslit

Höfundur: Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com

Líf, fjör, mikil skipting, baneitruð lega á köflum og gríðarleg spenna einkenndi úrslitaleikinn í Bikarkeppni BSÍ milli sveitar Frímanns Stefánssonar frá Akureyri og Betri ferða. Ekki síst var síðasta lota fjörug þar sem liðin skiptust á að hafa forystu. Var það ekki fyrr en í síðasta spili af alls 48 sem úrslit réðust og höfðu Betri ferðir betur og eru nýir bikarmeistarar.

Spil dagsins úr viðureigninni er til marks um að stundum borgar sig að nota eðlilegt sagnkerfi umfram sterkt lauf sem segir ekkert um skiptingu heldur lofar 16 punktum plús. Vestur var gjafari og NS á hættu.

Þar sem Reynir Helgason og Frímann sátu í AV opnaði sá síðarnefndi á einu hjarta. Júlíus Sigurjónsson í suður meldaði tvö lauf sem gaf Reyni færi á að skjóta inn 2 hjörtum þótt styrkurinn sé ekki mikill. Frímann meldaði 4 hjörtu og fékk að spila þau. 11 slagir eftir vel heppnaða hjartasvíningu. (Glöggir sjá kannski að NS eiga 620 í 4 spöðum en það er hægara sagt en gert að finna þann samning).

Á hinu borðinu opnaði Björn Eysteinsson eftir tvö pöss á sterku laufi. Hann og Guðmundur Sv. Hermannsson spila precision. Það gaf Pétri Guðjónssyni færi á vel heppnaðri hindrun af sverara taginu, hann lagði fjögur lauf á borðið! Pass, pass, pass. 12 impar til sveitar Frímanns.

Vetrarstarfið hafið

Flest bridgefélög hafa nú hafið vetrarstarfsemi sína og verður í flestum þeirra spilað fram í maí. Ekki er óalgengt að spilað sé einu sinni í viku. Starfsemin nær víða um land og er keppnisharka sem í eina tíð einkenndi briddskeppnir víðast á undanhaldi. Nokkur nýliðun hefur orðið í spilamennsku og eru vanir spilarar hvattir til að taka sérlega vel á móti nýju fólki sem þarf ekkert að óttast! Bridgefélög landsins eru fyrir leika sem lærða. Mestu varðar að fólk komi saman í góðum félagsskap og hafi gaman.

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin má eiga von á, nú með nýju tungli, að reynt verði á samskipta- og/eða sams...

Ungir vinna Haustmótið
Líf og starf 7. október 2026

Ungir vinna Haustmótið

Haustmót Taflfélags Reykjavíkur kláraðist í síðustu viku með öruggum sigri Jósef...

Ásaspurning – en hvað er tromp?
Líf og starf 7. október 2026

Ásaspurning – en hvað er tromp?

Þegar ég lærði bridds fyrir hálfri öld voru ásarnir í spilinu bara fjórir. Og of...

Vönduð óþekkt
Líf og starf 6. október 2026

Vönduð óþekkt

Haustið er mætt og það þýðir að nú er kominn tími til að stokka aðeins upp í fat...

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.
Líf og starf 6. október 2026

Lausn á vísnagátunni úr 17. tbl.

Hér er lausnin á vísnagátunni sem birtisti í 17. tölublaði Bændablaðsins.

Hugrekki persónulegrar tjáningar
Líf og starf 6. október 2026

Hugrekki persónulegrar tjáningar

Safnasafnið, vel kynnt höfuðsafn íslenskrar alþýðulistar, hefur um áraraðir unni...

Horfinn er séra Oddur
Líf og starf 6. október 2026

Horfinn er séra Oddur

Sveinn Pálsson, náttúrufræðingur og læknir, hélt dagbók öll sín fullorðinsár og ...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 24. september 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin blómstrar í vinnu eða skóla og finnur fyrir mikilli hvatningu til að klára...