Janúar er mánuður briddsins
Fjölmörg briddsmót fóru fram um jólin hér og þar um landið. Sums staðar þóttu briddsarar minna nokkuð á jólasveinana þegar þeir tóku stórar ákvarðanir við keppnisborðið. Ekki síst átti það við um Austfirðinga sem létu húmorinn ekki vanta eins og sjá má á myndinni.
Efstu pör á Austurlandsmótinu í tvímenningi urðu Ragnar Logi Björnsson og Þorsteinn Sigjónsson sem unnu gullið. Silfrið hlutu Kári Borgar Ásgrímsson og Sigurjón Stefánsson. Bronsið fengu Eyþór Stefánsson og Þorbergur Hauksson eftir harða baráttu.
Átján pör tóku þátt sem þykir góð þátttaka. Briddslífið er á uppleið fyrir austan eins og ansi víða.
„Það vill nú þannig til að janúar er mánuður briddsins, nú er einna mest að gera.“
Þetta segir Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands.
Í mörg horn verður að líta fyrir briddsara næstu vikur. Ber hæst ofurmót þar sem margar erlendar stórkempur í íþróttinni koma til landsins og taka slaginn á sérstöku móti í Hörpu.
Að loknu því móti hefst veislan mikla, sjálf Briddshátíð. Er það fjögurra daga keppni þar sem fyrst er barist í tvímenningi en svo sveitakeppni. Mótið er hið langfjölmennasta sem fram fer árlega hér á landi.
The Reykjavik Rapyd Bridge Festival 2025 eins og mótið mun heita þetta árið, hefst 30. janúar og lýkur því 2. febrúar.
