Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Ísfirðingafélagið hefur haldið uppi stuðinu í bráðum hundrað ár.
Ísfirðingafélagið hefur haldið uppi stuðinu í bráðum hundrað ár.
Mynd / Ísfirðingafélagið
Líf og starf 12. febrúar 2025

Hoppar þú um berrassaður?

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Þorrablót, sólarkaffi, bónda- og konudagar eru sitthvað sem landinn hefur glatt sig við í skammdeginu um árabil þegar þreyja þarf þorrann og góuna.

Þorrinn hefst að venju á degi bónda, nú í ár þann 24. janúar – þar til góan stígur sín fyrstu skref, í ár þann 23. febrúar. Á því tímabili þykir mörgum gott að belgja sig út af rammíslenskum mat, súrsuðum, kæstum eða reyktum, eins og enginn sé morgundagurinn og jafnvel staupa sig á íslensku brennivíni þess á milli. Dansiböll hafa einnig tíðkast þegar þorranum er blótað, oft undir hljómsveit þar sem fólk hefur dillað sér fram á rauða nótt og hafa einhver dansfíflin svo getað veitt sér þá ánægju að mæta beint í sólarkaffi.

Ísfirðingafélagið hefur haldið up

Sólarkaffi hefur tíðkast lengur en elstu menn muna, en þá er fyrstu geislum sólarinnar fagnað eftir langan vetur. Í blaðinu Vestrinn frá árinu 1908 má finna eftirfarandi tilkynningu: „Sólardagur“ er dagurinn i dag, 25. janúar, nefndur hér á Ísafirði, því þá sér hér fyrst sól, eftir að hún hefir verið hulin bak við hamramúra bæjarins í kring um 10 vikur. Dagurinn hefir lengi verið uppáhaldsdagur hjá Ísfirðingum, er þá drukkið svo nefnt „sólarkaffi“ með ljúffengum kökum.“

Sólarkaffið var þó drukkið bæði austanlands jafnt sem vestan en er upphaflega hefð sem skapaðist á Ísafirði. Ísfirðingafélagið í Reykjavík hefur því haldið skemmtun og ball í tilefni dagsins síðan árið 1946 undir yfirskriftinni Sólarkaffi.

Á þorrablóti Seyðisfjarðar nú í ár
má ætla að fornir siðir séu hafðir
í hávegum, sbr. Þjóðsögur Jóns
Árnasonar. Mynd / Seyðisfjörður

Hinum megin á landinu láta Seyðfirðingar ekki sitt eftir liggja. Þeir fagna sólargeislunum með tveggja daga hátíð, List í ljósi, þar sem hinir ýmsu listamenn láta ljós sitt skína.

Í ár hefur hátíðin verið haldin í áratug og geta áhugasamir mætt á Seyðisfjörð 14.–15. febrúar nk.

Bóndadagur hefur þegar verið haldinn hátíðlegur á hinum ýmsu bæjum og karlkynið hyllt á einhvern hátt. Þó segir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar að bændur skuli bjóða þorra velkominn á þann hátt að hoppa berrassaðir í kringum bæinn, þó með annan fótlegginn hulinn buxnaskálm. Þessu halda hressir karlmenn efalaust við.

Góa hefst í lok mánaðar, á degi vaxandi birtu og vors, einnig þekktur sem konudagur. Engum sögum fer af hoppandi kvenfólki en komið hefur fyrir að þeim séu færð blóm eða þeim hyglt á annan hátt.

Það er að minnsta kosti um að gera að lífga aðeins upp á þennan kalda og dimma tíma vetrar, hvort sem fólk ásetur sér að borða kæstan hákarl, drekka sólarkaffi, hoppa um berrassað eða leyfa öðrum að mæra kosti sína.

Enn eru nokkur þorrablót eftir:

15. feb. Þorrablót Rangvellinga, Íþróttahúsið á Hellu
15. feb. Þorrablót Hvalfjarðarsveitar, Miðgarði
15. feb. Þorrablót Skagamanna í Íþróttahúsinu
15. feb. Þorrablót Fimleikafélagsins Bjarkar, Veislusal Bjarkanna við Haukahraun
15. feb. Þorrablót Grímseyjar í Múla
22. feb. Þorrablót Breiðdælinga, Frystihúsinu Breiðdalsvík

Söngnefnd þorrablóts Fella söng upphafslag blótsins af hjartans list, nú haldið í 145. sinn. Mynd / Frá Guðnýju Drífu

Skylt efni: þorrablót

Listaverk úr íslensku byggi
Líf og starf 29. janúar 2026

Listaverk úr íslensku byggi

Listamaðurinn og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead undirbýr sýningu í HAKK gallery...

Vetur í stofunni
Líf og starf 26. janúar 2026

Vetur í stofunni

Að ýmsu er að hyggja til að halda pottaplöntum heilbrigðum og fallegum yfir vetr...

Öxin kysst
Líf og starf 26. janúar 2026

Öxin kysst

Þann 12. janúar voru 195 ár liðin frá því að Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigur...

Enn lengur á Biðstofunni, takk!
Líf og starf 16. janúar 2026

Enn lengur á Biðstofunni, takk!

Nú er að hefjast ein skemmtilegasta sjónvarpsveisla ársins með Evrópumótinu í ha...

Að missa af síðustu lestinni
Líf og starf 30. desember 2025

Að missa af síðustu lestinni

6 pör spiluðu alslemmu í spili dagsins, 14 fóru í hálfslemmu en nokkur létu duga...

Fjölmargir krýndir í yngri flokkum
Líf og starf 30. desember 2025

Fjölmargir krýndir í yngri flokkum

Dagana 29. og 30. nóvember fóru fram tvö Íslandsmót. Annars vegar Íslandsmót ein...

Myndflöturinn logar
Líf og starf 28. desember 2025

Myndflöturinn logar

Bjart er yfir sýningu Eggerts Péturssonar í Hafnarborg. Sýningin heitir Roði en ...

Feðgin skrifa um réttir á Íslandi
Líf og starf 28. desember 2025

Feðgin skrifa um réttir á Íslandi

Feðginin Anna Fjóla og pabbi hennar, Gísli B. Björnsson, eru nú á fullum krafti ...