Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Sokkaskór á börnin
Hannyrðahornið 5. júlí 2021

Sokkaskór á börnin

Höfundur: Handverkskúnst

Prjónaðar tátiljur með gata­mynstri fyrir börn úr Drops Flora.

DROPS Design: Mynstur fl-004-by

Stærðir: (fyrirburar) 0/1 (1/3) 6/9 (12/18) mánaða 2 (3/4) ára

Lengd fótar: (8) 9 (10) 11 (12) 14 (16) cm

Garn: Drops Flora (fæst hjá Handverkskúnst)
- (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) g litur á mynd nr 20, ferskjubleikur

Prjónar: hringprjónar nr 2,5 eða sú stærð sem þarf til að fá 26 lykkjur x 34 umferðir í sléttu prjóni = 10x10 cm.

Garðaprjón (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

TÁTILJA: Tátiljan er prjónuð fram og til baka frá miðju að aftan.

Fitjið upp (44) 44 (48) 52 (52) 56 (56) lykkjur á hringprjón nr 2,5 með Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: *1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*, endurtakið frá *-*út umferð. Haldið svona áfram með stroff í (3) 3 (3) 4 (4) 5 (6) cm. Í næstu umferð frá réttu er gerð ein gataumferð þannig: *2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*, endurtakið frá *-* út umferð.

Haldið áfram með stroff eins og áður þar til stykkið mælist alls (5) 5 (5) 6 (6) 7 (8) cm.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um (9) 9 (11) 13 (13) 13 (13) lykkjur jafnt yfir = (35) 35 (37) 39 (39) 43 (43) lykkjur. Klippið þráðinn frá.

Setjið nú ystu (11) 11 (12) 13 (13) 15 (15) lykkjurnar á þráð í hvorri hlið = 13 lykkjur eftir á prjóni í öllum stærðum. Prjónið A.1 yfir 13 lykkjurnar, byrjið frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur í (3) 3½ (4) 4½ (5½) 6½ (8) cm, prjónið síðustu umferð brugðið frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um (5) 5 (3) 1 (1) 1 (1) lykkjur yfir 13 lykkjurnar = (8) 8 (10) 12 (12) 12 (12) lykkjur, klippið þráðinn frá. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið lykkjurnar af þræði í annarri hlið, prjónið upp (7) 9 (10) 11 (13) 16 (21) lykkjur meðfram hlið á miðjustykki, prjónið (8) 8 (10) 12 (12) 12 (12) lykkjur á prjóni (= framan), prjónið upp (7) 9 (10) 11 (13) 16 (21) lykkjur meðfram hinni hliðinni á miðjustykki og prjónið lykkjurnar af seinni þræði = (44) 48 (54) 60 (64) 74 (84) lykkjur í umferð.

Prjónið (2½) 3 (3) 4 (5) 5 (5) cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eftir (1) 1½ (1½) 2 (3) 3 (3) cm fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) að réttu máli þannig:

Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman innan við 1 kantlykkju. Að auki eru prjónaðar 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar í umferð (= 4 lykkjur færri í annarri hverri umferð) = ca (32) 36 (42) 48 (52) 62 (72) lykkjur eftir í umferð.

Fellið af og saumið sauminn undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Prjónið hina tátiljuna alveg eins.

SNÚRA: Klippið 3 þræði ca 1 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum gataumferðina á tátiljunni (byrjið og endið mitt að framan). Endurtakið á hinni tátiljunni.

Kaðlahúfa
Hannyrðahornið 10. apríl 2024

Kaðlahúfa

Ein stærð, fullorðins

Létt pils fyrir sumarið
Hannyrðahornið 19. mars 2024

Létt pils fyrir sumarið

Létt og skemmtilegt pils prjónað úr Drops Safran. Nýttu þér 30% bómullarafslátti...

Baldur
Hannyrðahornið 5. mars 2024

Baldur

Stærðir: S M L XL

Þykk og góð hipsterhúfa
Hannyrðahornið 20. febrúar 2024

Þykk og góð hipsterhúfa

Fljótprjónuð húfa úr DROPS Snow á prjóna númer 7. Snow er ullargarn sem fæst í 5...

Yrja vettlingar
Hannyrðahornið 6. febrúar 2024

Yrja vettlingar

EFNI: 75g Hörpugull og sauðalitaður þingborgarlopi – undið tvöfalt

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin
Hannyrðahornið 23. janúar 2024

Kaðlasmekkur fyrir litlu krílin

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til bak...

Jólahúfa
Hannyrðahornið 19. desember 2023

Jólahúfa

Ein stærð

Jólakósí
Hannyrðahornið 11. desember 2023

Jólakósí

Prjónuð flöskuhulstur úr DROPS Nepal