Þrjár efstu peysurnar, sú í miðjunni lenti í fyrsta sæti, þessi til vinstri í öðru sæti og svo er það þriðja sætið.
Þrjár efstu peysurnar, sú í miðjunni lenti í fyrsta sæti, þessi til vinstri í öðru sæti og svo er það þriðja sætið.
Mynd / mhh
Fréttir 5. ágúst 2026

Vinningspeysan „Í Uppsveitum“

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Á dögunum fór fram hönnunarsamkeppni um lopapeysu kvenbóndans en árið 2026 er, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum, einmitt ár kvenbóndans.

Uppspuni, smáspunaverksmiðja í Lækjartúni í Ásahreppi, þar sem Hulda Brynjólfsdóttir ræður ríkjum, stóð í síðasta mánuði fyrir keppninni, en yfir tuttugu peysur bárust og átti dómnefnd erfitt með að velja sigurpeysuna. Það fór þó þannig að vinningspeysan kom frá Helgu Linnet í Hafnarfirði. Hún ber nafnið Í Uppsveitum og hlaut Helga glæsileg verðlaun fyrir peysuna.

Peysurnar í öðru og þriðja sæti voru líka verðlaunaðar, ásamt frumlegustu peysunni, og gestir við verðlaunaafhendingu völdu sína peysu.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna, hélt stutt ávarp við athöfnina og þakkaði Huldu fyrir frumkvæðið og þátttakendum fyrir að taka þátt í þessari skemmtilegu hönnunarsamkeppni.

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum
Fréttir 13. ágúst 2026

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum

Ein umsögn barst í samráðsgátt um breytingar á búvörulögum og framlengingu búvör...

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB
Fréttir 13. ágúst 2026

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB

Bændasamtök Íslands boða til málþings á morgun, föstudaginn 14. ágúst, þar sem r...

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins
Fréttir 13. ágúst 2026

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins

Dalsbú í Mosfellsdal er síðasta minkabú landsins. Aðfaranótt 29. júlí var brotis...

Einni milljón króna úthlutað
Fréttir 11. ágúst 2026

Einni milljón króna úthlutað

Samfélagsverkefnið „Voices of Vík; Language, Culture & Community“, undir forystu...

Merkingaróreiða ríkir
Fréttir 11. ágúst 2026

Merkingaróreiða ríkir

Sjö framleiðendur nota upprunamerkið Íslenskt staðfest á vörum sínum. Eigandi Só...

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f