Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Verðbólga reynir á hagkerfi Evrópu
Lesendarýni 6. október 2022

Verðbólga reynir á hagkerfi Evrópu

Höfundur: Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur hjá Mjólkursamsölunni

Þann 30. september sl. birti Eurostat niðurstöður verðbólgumælinga í ESB í september. Í fyrsta skipti mælist verðbólga á evrusvæðinu með tveggja stafa tölu, 10,0%.

Erna Bjarnadóttir

Þetta er meiri verðbólga en spár hagfræðinga sem Bloomberg fréttaveitan leitaði til gerðu ráð fyrir, en miðgildi þeirra reyndist vera 9,7%.

Í Þýskalandi stærsta hagkerfi
Evrópu, hækkaði verð mun meira en búist var við og er verðbólga þar nú 10,9%. Eystrasaltslöndin þrjú tróna á toppnum á evrusvæðinu en verðbólga í þeim er yfir 22%, hæst í Eistlandi. Þá vekur óneitanlega athygli 17,1% verðbólga í Hollandi. Þrátt fyrir sameiginlegan gjaldmiðil er mikill munur á verðbólgu milli landa sem öll eru þar að auki hluti af innri markaði ESB.

Hvaða orsakir búa að baki verðbólgunni?

Þegar litið er á helstu orsakir verðbólgu á evrusvæðinu er 12 mánaða hækkun langmest á orku sem hafði hækkað um heil 40,8% frá því í september í fyrra. Næstmesta hækkunin varð á matvöru og áfengi, 11,8%, en aðrir liðir hækka minna, þó allir meira m.v. 12 mánaða tímabil en mæling ágústmánaðar sýndi. Engan þarf því að undra að Evrópubúar kvíði komandi vetri með slíkri hækkun á orkureikningi sínum og engar batahorfur á því sviði í sjónmáli.

Á sama tíma er verðbólga á Íslandi á niðurleið og mældist 9,3% í september. Hér á landi hækkaði matur og drykkjarvörur um 8,4% á 12 mánaða tímabili, rafmagn og hiti um 7,1% og bensín og olíur um 29,8%.

Þrýstingur á Seðlabanka Evrópu um að hækka vexti hefur því enn aukist en næsta vaxtaákvörðun þar á bæ verður 27. október nk. og búast sérfræðingar við 75 punkta hækkun. Verðbólgumarkmiðið er 2% en spár hníga að því að verðbólga verði áfram mikil út árið. OECD hefur einnig hækkað spá sína um verðbólgu á evrusvæðinu á næsta ári um 1,6 prósentustig í 6,2%. Vart þarf að orðlengja að Ísland á mikið undir að efnahagur í nágrannalöndum okkar, þar með talið ESB, sé sterkur. Þetta eru okkar helstu viðskiptalönd bæði fyrir vöru og þjónustu, að ferðamannaþjónustu meðtalinni.

Staðan innan Evrópusambandsins

Engum getur blandast hugur um að ESB á nú við mikinn vanda að etja. Margt hefur komið til. Í fyrsta lagi hafði Covid-19 faraldurinn gríðarleg áhrif. Hann truflaði verulega flæði vinnuafls með takmörkunum á landamærum og dró úr virkni innri markaðarins þegar hvert land valdi sín eigin viðbrögð og reglur. Þannig sýndi faraldurinn glöggt fram á að þegar í harðbakkann slær treystir hver þjóð á eigin þjóðaröryggishagsmuni og eru ákvarðanir teknar á þeim grundvelli en ekki samkvæmt heildarhagsmunum ESB.

Í framhaldinu hefur sá veikleiki ESB að reiða sig á óhindraðar hnattrænar framboðskeðjur fyrir lykilaðföng komið skýrt fram. Þetta á ekki hvað síst við um orku- og umhverfisstefnu ESB sem hefur gert aðildarríkin mjög háð framboði hráefna og orku frá öðrum ríkjum.

Önnur markaðssvæði glíma við sambærilegar áskoranir, t.d. Bandaríkin. Spenna í samskiptum Bandaríkjanna og Kína hefur nú þegar haft áhrif á ákvarðanir stórfyrirtækja. Þannig hefur Apple fyrirtækið ákveðið að hefja framleiðslu á nýjum farsíma, iPhone 14, á Indlandi. Er þetta fyrsta raftæki Apple sem framleitt er utan Kína í nær tvo áratugi.

Staða Íslands í alþjóðasamfélaginu

Þegar litið er á þann ólgusjó sem leikur nú um ESB og raunar flest ríki heims, má segja að Íslandi sé að farnast tiltölulega vel. Hagkerfi okkar hefur mikla sérstöðu, og hagvaxtarhorfur eru fremur góðar. Ísland á einnig í miklu samstarfi í alþjóðasamfélaginu til dæmis á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, NATO, Norðurlandaráðs, Evrópu- ráðsþingsins, Alþjóðaviðskipta- stofnunarinnar, EES, EFTA, auk ótal tvíhliða samninga um viðskipti og þróunarsamvinnu.

Landið trónir einnig í efstu sætum á flestum alþjóðlegum mælikvörðum um lífskjör. Í nýlegri skýrslu Katrínar Ólafsdóttur fyrir Þjóðhagsráð kemur fram að kaupmáttaraukning hér á landi er mikil á síðustu árum, en þar segir m.a. „[e]f við horfum eingöngu á tímabilið frá 2012 þá er kaupmáttaraukning á Norðurlöndunum á bilinu 2-10% samanborið við 57% á Íslandi.“

En veldur hver er á heldur, fram undan er vetur hér á norðurhveli jarðar. Kjarasamningagerð fer í hönd á komandi mánuðum og fjárlög sem marka bæði tekju- og útgjaldaramma ríkisins eru til meðferðar fyrir Alþingi. Mikið liggur við að vel takist til svo viðhalda megi þeirri stöðu sem tekist hefur að byggja upp á undanförnum misserum.

Nýtt Bændablað kom út í dag

Skylt efni: verðbólga

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

Djúp lægð nálgast landið
Fréttir 12. október 2026

Djúp lægð nálgast landið

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

Ráðleggingar frá grasalækninum
Fréttir 12. október 2026

Ráðleggingar frá grasalækninum

Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...