Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Bächlilhof er ekki bara garðyrkjubýli, heldur einnig veitingastaður, verslun og fjölskyldugarður, sem tekur á móti mörg hundruð gestum dag hvern.
Bächlilhof er ekki bara garðyrkjubýli, heldur einnig veitingastaður, verslun og fjölskyldugarður, sem tekur á móti mörg hundruð gestum dag hvern.
Mynd / ghp
Utan úr heimi 25. september 2024

Velgengni upplifunarbýlis

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Auðgandi landbúnaður er í forgrunni á Bächlilhof í Sviss. Eigandi þess skilgreinir búið sem upplifunarbýli, en auk matvælaframleiðslu og vinnslu má þar finna bændamarkað, veitingastað og fjölskylduvænan húsdýra- og skemmtigarð sem vel er sóttur alla daga ársins.

Bächlilhof er staðsett í jaðri bæjarins Jona í norðausturhluta Sviss og því í göngufjarlægð fyrir 18.000 íbúa hans. Býlið er hluti af starfsemi Jucker-fjölskyldunnar sem rekur fjögur bú undir merkjum Juckerfarm sem á sér áratugalanga sögu í Sviss.

Velgengni Bächlilhof má helst rekja til útvíkkunar á starfsemi býlisins en á undanförnum fimmtán árum hefur búið farið frá því að vera frumframleiðslubú yfir í stórbýli með margþætta starfsemi frá landbúnaði að viðburðastjórn.

David Prevost bústjóri hefur starfað á Bächlilhof í átján ár.
Matvælavinnsla og fjölskyldugarður

David Prevost er bústjóri Bächlilhof. Hann hefur unnið á býlinu síðan árið 2006 og má hann eflaust kalla sig framkvæmdastjóra í dag, en á bænum starfa allt að 75 manns. Á bestu dögum sumars tekur Bächlilhof á móti 12.000 manns en algengt er að um 500 manns eigi þar erindi dag hvern.

Sumir koma til þess að versla á bændamarkaðnum en þar má finna fjölbreytt úrval ferskra afurða úr nágrenninu, ekki eingöngu frá búinu. Einnig er þar bakarí og kaffihús, með hlaðborði kræsinga, sem er vinsæll viðkomustaður vinnandi fólks í hádeginu. Búið er auk þess fjölskylduvænt og vinsælt meðal barna, þar er t.d. lítill húsdýragarður og leikvellir. Bächlilhof rekur einnig matvælavinnslu þar sem framleiddar eru hinar ýmsu vörur, til dæmis sósur, súpur, sýróp og hafradrykkir undir merkjum Junkenfarm. Á haustin er haldin vegleg uppskeruhátíð þar sem graskerskúlptúrar vekja gjarnan mikla lukku. Á kvöldin breytist býlið í veislurými en þar eru haldin bæði brúðkaup og bæjarhátíðir.

Hugsjónastarf án vottunar

Um 6.000 ávaxtatré eru á um fjögurra hektara svæði á býlinu, þar sem má finna 24 afbrigði af eplum og tólf afbrigði af perum, einnig plómur og berjagarð þar sem gestir geta komið og tínt sjálfir í öskjur. Býlið á líka stærra landsvæði í nokkurra kílómetra fjarlægð þar sem stunduð er kornrækt og grænmetisrækt. Þau framleiða m.a. hafra, aspas, grasker, tómata, gúrkur og fleira.

Eigandi Bächlilhof er Stefan Bächli, sem David segir vera mikinn hugsjónarmann. Þannig kjósi hann að fá ekki lífræna vottun, honum finnist það of takmarkandi.

Hins vegar gangi starfsemin oft mun lengra en skilyrði lífrænnar framleiðslu. Hann fylgi hugmyndum um auðgandi landbúnað (e. regenerative agriculture). Sjálfbærni og líffræðilegur fjölbreytileiki eru mikilvægir þættir, notkun á tilbúnum áburði og plöntuvarnarefnum er forðast í lengstu lög. Lögð er áhersla á ræktun sjúkdómaþolinna og harðgerðra afbrigða ávaxta og grænmetis.

Í nafni auðgandi landbúnaðar hafi þeir Stefan og David prófað sig áfram með ýmislegt. Sumt hafi gengið en annað ekki. Hann nefnir sem dæmi að plöntur fái moltute og lífkol, hratið af eplum er nýtt sem áburður. Kjúklingar ráfa um garðana og halda óværum frá.

Á bændamarkaðnum má nálgast ferskar afurðir úr nágrenninu og úr matvælavinnslunni þar sem m.a. er framleidd haframjólk, sýróp og súpur.

Skylt efni: Sviss | Bächlilhof

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu
Fréttir 11. desember 2025

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu

Ný rannsókn Matís sýnir að kolefnisspor helstu íslenskra matvæla – mjólkur, kjöt...

Þörungakjarni með mörg hlutverk
Fréttir 11. desember 2025

Þörungakjarni með mörg hlutverk

Undirrituð hefur verið formleg viljayfirlýsing um stofnun Þörungakjarna á Akrane...

Húsaeiningar frá Noregi
Fréttir 9. desember 2025

Húsaeiningar frá Noregi

Nýlega komu um tvö þúsund fermetrar af svonefndum „Modulum“, sem eru forsmíðaðar...

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni

Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár til ársins 2029. Um tí...

Gervigreind í Grímsnesi
Fréttir 9. desember 2025

Gervigreind í Grímsnesi

Grímsnes- og Grafningshreppur tekur nú þátt í þróunarverkefni í samstarfi við up...

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni

Þingsályktunartillaga um nýtt fyrirkomulag jarðakaupa frumkvöðla á landsbyggðinn...

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti
Fréttir 8. desember 2025

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti

Niðurstöðu COP30 sem fram fór í Brasilíu í nóvember hefur verið lýst sem lægsta ...

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum
Fréttir 8. desember 2025

Fituúrgangur til framleiðslu á hreinsivörum

Nýsköpunarfyrirtækið Gefn sérhæfir sig í framleiðslu á umhverfisvænum bílahreins...