Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Úr sarpi Bændablaðsins: Allt iðandi af lífi
Gamalt og gott 22. ágúst 2023

Úr sarpi Bændablaðsins: Allt iðandi af lífi

Höfundur: Vilmundur Hansen

Á hverju ári er flutt til landsins talsvert magn af lifandi stofuplöntum, ávaxtatrjám, berjarunnum, skrautrunnum og fleiri tegundum plantna í pottum. Moldin í pottunum er iðandi af lífi og í sumum tilfellum geta fylgt með lífverur sem ílengjast hér á landi.

Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir að innflutningur á plöntum og þá sérstaklega með rótum í mold bjóði hættunni heim hvað varði alls konar smákvikindi og plöntusjúkdóma sem ekki eiga hér heima.

Lífið í moldinni

„Innflutningur á plöntum er talsverður hvort sem það er gert til endursölu eða af einstaklingum sem taka með sér plöntur sem þeim þykir fallegar og vilja rækta hér.

Í jarðvegi plantna sem fluttar eru inn í pottum er að finna heilt vistkerfi og fjölbreytt samfélag lifandi vera. Mold er lítils virði ef það er ekkert líf í henni og til þessa hún virki þurfa að vera í henni allt í senn örverur, sveppir og smádýr.

Ég hef skoðað lítillega í mold sem fylgir ávaxtatrjám sem flutt eru inn og plantað í garða. Þar hefur ýmislegt leynst og stundum iðað af lífi. Sumar þessar lífverur geta hæglega náð fótfestu hér en aðrar gera það ekki. Það er heldur ekki þar með sagt að allar þessar lífverur séu skaðlegar eða af hinu illa en það þarf heldur ekki marga skrattakolla til að valda tjóni,“ segir Erling.

Takmarkað heilbrigðisvottorð

„Innfluttum plöntum á að fylgja heilbrigðisvottorð sem tryggir að ákveðnar lífverur eða sjúkdómar fylgi ekki með í sendingunni samkvæmt reglugerð. Listinn er ekki langur og um leið tryggir hann ekki að margt annað sem ekki er á honum geti ekki borist hingað. Auðvitað eru til margir aðrir skaðvaldar en þeir sem erum listanum og heilbrigðisvottorð hefur ekkert með þá að gera.“

Erling segir að því miður sé það svo að fullgilt heilbrigðisvottorð sé engin trygging fyrir því að skaðvaldar fylgi ekki sendingum.

„Mönnum getur yfirsést og sjálfur hef ég komið að plöntusendingu í gámi þar sem allir pappírar fylgdu og voru rétt stimplaðir þrátt fyrir að það væri búið að éta öll laufblöð af plöntunum þegar þær bárust til landsins.“

Pardussnigill er nánast eini óvinur Spánarsnigilsins hér á landi, en hann nam hér land um síðustu aldamót. Hann Mynd / Atli Gunnarsson

Rakin til framleiðenda og birgja

„Spánarsnigill er dæmi um kvikindi sem hefur skotið upp kollinum hér og þar um landið frá því að hann greindist hér fyrst fyrir rúmum áratug en það er ekki þar með sagt að hann sé landlægur um allt land. Meðal fundarstaða hans er Hveragerði, á höfuðborgarsvæðinu, í Hnífsdal, Ólafsfirði, Vestmannaeyjar, Akureyri og Höfn í Hornafirði. Í sumum tilfellum er bara um eitt staðfest tilfelli að ræða.“

Erling segir að í sumum tilfellum megi rekja Spánarsnigla sem finnast á nýjum stöðum til plöntusendinga frá framleiðendum eða birgjum þar sem hann er þekktur fyrir hvort sem það eru plöntur sem ræktaðar eru hér á landi að fluttar inn í pottum.

Vafasamur innflutningur

„Í mínum huga er það nánast tilræði við íslenska náttúru að flytja inn jarðveg og lifandi plöntur í pottum og öllu því sem þar getur fylgt með.

Ef ég man rétt var ekki fyrir svo löngu bannað að fylja inn allan jarðveg en eftir að það var leyft hefur innflutningurinn aukist mikið. Að mínu mati er mjög vafasamt að gera þetta og þrátt fyrir að slíkt megi ættu menn að hafa vit á því að gera það ekki og hugsa dæmið til enda,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.

Grein tekin úr 14. tölublaði Bændablaðsins árið 2014

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði
Fréttir 7. nóvember 2025

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði, sem hluti af nýjum áherslum og forgang...

Dilkakjötsframleiðsla dróst saman um 12%
Fréttir 7. nóvember 2025

Dilkakjötsframleiðsla dróst saman um 12%

Dilkakjötsframleiðsla var 12% minni nú í september en í sama mánuði á síðasta ár...

Togstreita milli ríkja á COP30
Fréttir 7. nóvember 2025

Togstreita milli ríkja á COP30

COP30, þrítugasti aðildarfundur og ráðstefna Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðann...

Mun styrkja félögin verulega
Fréttir 6. nóvember 2025

Mun styrkja félögin verulega

Peder Tuborgh, forstjóri skandinavíska mjólkursamlagsins Arla Foods, segir að me...

Rúmlega þriðjungur skrokkanna rangt flokkaðir
Fréttir 6. nóvember 2025

Rúmlega þriðjungur skrokkanna rangt flokkaðir

Um 36% þeirra skrokka sem lagðir voru inn frá bændum í Arnarholti í Biskupstungu...

Bændasamtökin funda með bændum
Fréttir 6. nóvember 2025

Bændasamtökin funda með bændum

Fundaröð Bændasamtaka Íslands (BÍ) á landsbyggðinni, Við erum öll úr sömu sveit,...

Lagaumhverfi þarf að styrkja
Fréttir 6. nóvember 2025

Lagaumhverfi þarf að styrkja

Laxey, First Water, Samherji fiskeldi, Thor landeldi og Matorka eru fimm stærstu...

Tillaga um að framlengja gildandi búvörusamninga
Fréttir 6. nóvember 2025

Tillaga um að framlengja gildandi búvörusamninga

Á borði Bændasamtaka Íslands er nú tillaga frá stjórnvöldum um að gildandi búvör...