Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Garðyrkjubændum í útirækt grænmetis virðist vera að fækka, sem er öfug þróun við markmið síðustu endurskoðunar á garðyrkjusamningi búvörusamninganna.
Garðyrkjubændum í útirækt grænmetis virðist vera að fækka, sem er öfug þróun við markmið síðustu endurskoðunar á garðyrkjusamningi búvörusamninganna.
Mynd / smh
Fréttir 24. október 2024

Umsóknum fækkaði um jarðræktarstyrki í garðyrkju

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Umsóknum um styrki vegna útiræktunar grænmetis fækkaði um fimm frá fyrra ári.

Samkvæmt upplýsingum úr matvælaráðuneytinu voru þær 50 núna í sumar, en 55 á síðasta ári en ekki liggur fyrir hversu margir hektarar voru undir útiræktuðu grænmeti í sumar þar sem úttektum vegna umsóknanna er ekki lokið. Við endurskoðun búvörusamninga um síðustu áramót varð sú breyting að lágmarksstærð á því landi garðyrkjubænda sem greiddir eru styrkir út á, var minnkað úr hektara lands niður í fjórðung af hektara. Tilgangurinn var meðal annars að hvetja nýliða til að prófa sig áfram í útiræktun – og fá til þess stuðning – án þess að leggja of mikið undir.

Tvær mögulegar skýringar

Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands, segist ekki hafa kynnt sér sjálfur ástæður þessa áhugaleysis bænda á styrkumsókn. Hann telur þó að skýringarnar séu mögulega tvær.

„Við höfum kannski ekki lagt okkur nógu mikið fram við að kynna þessa nýju leið, en um leið getur verið að fólk sjái að styrkurinn er orðinn svo lítill þegar þetta er orðinn fjórðungur úr hektara.“

Bændum fækkar í greininni

Jarðræktarstyrkir til garðyrkjubænda, vegna útiræktaðs grænmetis, koma inn í búvörusamninga árið 2016. Um fastan pott er að ræða sem skiptist á milli garðyrkjubænda eftir umfangi ræktunarinnar. Árið 2020 var upphæðin samtals 68 milljónir samkvæmt búvörusamningum og hefur verið uppfærð samkvæmt verðlagsþróun síðan. Við síðustu endurskoðun fékkst ekki aukið fjármagn inn í útiræktunina, þrátt fyrir ítrekuð vilyrði stjórnvalda um að skapa ætti hvata til frekari vaxtar í greininni.

Axel segir að málið með útiræktunina sé að hún krefjist talsverðs tækjabúnaðar svo vinnan verði manneskjuleg. „Það er enginn fjárfestingastuðningur í garðyrkju. Því ertu alltaf að fara í stærra land en einn fjórða af hektara og því er möguleiki á að þessi aðgerð skili seint tilætluðum árangri. Sem var að reyna að fá fleiri inn í greinina. Útirækt hefur verið að gefa eftir og því alls ekki góð þróun að bændum fækki í greininni,“ segir hann.

Axel bætir því við að það sé nauðsynlegt að fundin sé leið til þess að bændur geti tryggt sig fyrir áföllum, því þeir séu svo háðir veðráttu sem getur verið mjög rysjótt hér á landi. Ef slíkt fyrirkomulag náist inn í stuðningsfyrirkomulagið skapist alvöru grundvöllur fyrir fólk að koma inn í greinina.

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði
Fréttir 7. nóvember 2025

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði

Leiðir til áburðarsparnaðar í landbúnaði, sem hluti af nýjum áherslum og forgang...

Dilkakjötsframleiðsla dróst saman um 12%
Fréttir 7. nóvember 2025

Dilkakjötsframleiðsla dróst saman um 12%

Dilkakjötsframleiðsla var 12% minni nú í september en í sama mánuði á síðasta ár...

Togstreita milli ríkja á COP30
Fréttir 7. nóvember 2025

Togstreita milli ríkja á COP30

COP30, þrítugasti aðildarfundur og ráðstefna Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðann...

Mun styrkja félögin verulega
Fréttir 6. nóvember 2025

Mun styrkja félögin verulega

Peder Tuborgh, forstjóri skandinavíska mjólkursamlagsins Arla Foods, segir að me...

Rúmlega þriðjungur skrokkanna rangt flokkaðir
Fréttir 6. nóvember 2025

Rúmlega þriðjungur skrokkanna rangt flokkaðir

Um 36% þeirra skrokka sem lagðir voru inn frá bændum í Arnarholti í Biskupstungu...

Bændasamtökin funda með bændum
Fréttir 6. nóvember 2025

Bændasamtökin funda með bændum

Fundaröð Bændasamtaka Íslands (BÍ) á landsbyggðinni, Við erum öll úr sömu sveit,...

Lagaumhverfi þarf að styrkja
Fréttir 6. nóvember 2025

Lagaumhverfi þarf að styrkja

Laxey, First Water, Samherji fiskeldi, Thor landeldi og Matorka eru fimm stærstu...

Tillaga um að framlengja gildandi búvörusamninga
Fréttir 6. nóvember 2025

Tillaga um að framlengja gildandi búvörusamninga

Á borði Bændasamtaka Íslands er nú tillaga frá stjórnvöldum um að gildandi búvör...