Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Lirfur í æti. Svartar herflugur eins og Danirnir ala eru að meðaltali 16 millimetrar á lengd.
Lirfur í æti. Svartar herflugur eins og Danirnir ala eru að meðaltali 16 millimetrar á lengd.
Mynd / VH
Fréttir 11. október 2022

Stærsta skordýraeldi á Norðurlöndum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Rétt utan við Horsens á Jótlandi stefnir fóður- og matvælafyrirtækið Enorn Biofactory á að starfrækja stærstu skordýraeldisstöð á Norðurlöndum. Blaðamaður Bændablaðsins heimsóti stöðina síðastliðið sumar og fræddist um áformin og væntanlegar afurðir eldisstöðvarinnar.

Í dag framleiðir Enorn milli 10 og 15 tonn af lirfum á viku en gangi áætlanir eftir mun fyrirtækið innan tíðar framleiða um 100 tonn af lirfum svartra herflugna af tegundinni Hermetia illucens á dag um mitt næsta ár. Með aukinni framleiðslu mun starfsmönnum fyrirtækisins fjölga úr 12 í 55.

Lirfurnar eru þegar í dag þurrkaðar og notaðar sem fóður fyrir fiska, svín, alifugla og ýmiss konar gæludýr og meðal annars í hundafóður.

Stig Veis Jørgensen, markaðsstjóri Skog A/S sem á Enorm.
Fóður og manneldi

Stig Veis Jørgensen, markaðsstjóri Enorm, segir að þrátt fyrir að áform fyrirtækisins séu stór í sniðum hafi lengi verið talað um skordýraeldi í háði og sem eins konar brandari. „Við hjá Enorm erum á öðru máli og sannfærð um að eldið eigi framtíðina fyrir sér. Til að byrja með einbeitum við okkur að afurðum til fóðurframleiðslu en ég er viss um að skordýraprótein verði notað til manneldis eftir nokkur ár.“

Samkvæmt yfirlýsingu Enorm er stefna fyrirtækisins að vinna að og hjálpa til við að tryggja fæðuöryggi fólks í framtíðinni og á sama tíma að ofnýta ekki náttúruauðlundir jarðar né menga að óþörfu.

Éta úrgang frá matvælaiðnaði

„Eftir að eldið og verksmiðjan því tengdu er komið á fullt komum við til með að framleiða um 100 tonn af lirfum á dag. Lirfurnar lifa mestmegnis á úrgangi frá matvælaiðnaði og jafnvel matarafgöngum frá heimilum. Flugurnar eru því ekki matvondar og því auðvelt að fá fóður handa þeim.“

Jørgensen segir að þrátt fyrir að lirfurnar séu ekki kreðsnar á fóður verði að gæta þess að gefa þeim ekki hvaða sem er.

„Það mega til dæmis ekki finnast leifar af skordýraeitri í fæðunni því það getur drepið flugurnar.“

Verpa frá 700 til 1.200 eggjum

Svartar herflugur eins og Danirnir ala eru að meðaltali 16 millimetrar á lengd, svartar að lit með lítils háttar gljáa. Hausinn er hlutfallslega stór, augun vel þroskuð og fálmararnir langir.

Kvenflugur verpa frá 700 til 1.200 eggjum í sérhönnuð varphólf í eldinu og klekjast eggin út á fjórum dögum. Við klak eru lirfurnar um einn millimetri að lengd. Þær vaxa hægt fyrstu dagana en taka svo vaxtarkipp og ná réttri stærð til áframvinnslu á 17 dögum. Líftími flugnanna frá varpi er milli 45 til 60 dagar og fullorðnar herflugur drepast fljótlega eftir varp.

Flugurnar þurfa ekki mikið rými og eldið felst aðallega í að sjá flugunum fyrir æti og halda á þeim réttu hita-, raka- og birtustigi.

Aðspurður sagði Jørgensen að miðað við núverandi hitastig í Danmörku myndu flugurnar ekki lifa utandyra og því ekki hætta á að þær yrðu plága í landinu.

Framleiðsluferlið

Í grófum dráttum er framleiðsluferlið hjá Enorn á þann veg að flugurnar lifa í búrum þar sem þær para sig og verpa í varphólf. Varphólfin eru flutt í ræktunarhús með vaxtarbásum þar sem eggin klekjast út og lirfurnar fara í eldi.

Eftir að lirfurnar hafa ná kjörstærð eru þær þurrkaðar og pressaðar og malaðar í duft sem er gerilsneytt og unnið í prótein og trefjar. Auk þess sem unnin er olía úr þeim.

Skylt efni: Skordýr | skordýraeldi

Sýklalyfjaónæmar bakteríur í íslenskum svínum
Fréttir 11. júlí 2025

Sýklalyfjaónæmar bakteríur í íslenskum svínum

Matvælastofnun (MAST) greindi frá því í byrjun mánaðar að MÓSA bakteríur hefðu g...

Ársfundi LSB frestað aftur
Fréttir 11. júlí 2025

Ársfundi LSB frestað aftur

Í sumar hefur þurft að fresta ársfundi Lífeyrissjóðs bænda tvisvar.

Þrjár varnarlínur lagðar niður og hólfum fækkað
Fréttir 11. júlí 2025

Þrjár varnarlínur lagðar niður og hólfum fækkað

Þrjár sauðfjárveikivarnarlínur hafa verið lagðar niður og fækkar varnarhólfum um...

Hvíla þarf kartöflugarða í Þykkvabænum í þrjú ár
Fréttir 11. júlí 2025

Hvíla þarf kartöflugarða í Þykkvabænum í þrjú ár

Atvinnuvegaráðuneytið hefur sent kartöflubændunum í Hrauk í Þykkvabænum fyrirmæl...

Ný nálgun í vörnum gegn dýrasjúkdómum
Fréttir 10. júlí 2025

Ný nálgun í vörnum gegn dýrasjúkdómum

Róttækar breytingar eru að verða á regluverki varna gegn dýrasjúkdómum.

Salmonella á Kvíabóli
Fréttir 10. júlí 2025

Salmonella á Kvíabóli

Matvælastofnun (MAST) hefur sent út tilkynningu um að salmonella hafi greinst á ...

Rekstrarvandi vegna samdráttar í útflutningi
Fréttir 10. júlí 2025

Rekstrarvandi vegna samdráttar í útflutningi

Eftir þungan rekstur síðasta vetur glímir ullarvinnslufyrirtækið Ístex við fjárh...

Tíunda íslenska kýrin til að ná 100 þús. kg æviafurðum
Fréttir 8. júlí 2025

Tíunda íslenska kýrin til að ná 100 þús. kg æviafurðum

Þann 18. júní sl. rauf afrekskýrin Snotra 273 í Villingadal í Eyjafirði 100 þús....