Samfélagshlutverk bænda aldrei mikilvægara
Við lifum í dag á sérstökum tímum, aldrei áður í sögu lýðveldisins hefur verið sett á samkomubann allrar þjóðarinnar. Ferðamönnum fækkar, veitingastaðir fá færri gesti, takmarkað aðgengi er að þjónustu og svo mætti lengi telja. Ekki er fyrirséð hversu lengi við þurfum að reka okkar samfélag við þessar takmarkanir.
Við bændur þurfum að standa vörð um fæðuöryggi þjóðarinnar eins og okkur er frekast unnt. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Aldrei áður hefur hlutverk bænda verið mikilvægara í samfélagslegu tilliti. Nauðsynlegt er fyrir bændur landsins að huga að eigin heilbrigði og huga að nærsamfélaginu. En eins og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði, þá erum við öll almannavarnir. Ég vil benda framleiðendum landbúnaðarafurða á vefsíðu Bændasamtakanna þar sem búið er að safna saman leiðbeiningum fyrir framleiðendur í samvinnu við Matvælastofnun um hvernig þeir skulu haga störfum sínum ef til sýkingar kemur.
Viðbragðsteymi og starfshópur vegna afleysingaþjónustu
Bændasamtökin settu saman tvo hópa strax í síðustu viku, sem annars vegar er viðbragðsteymi Bændasamtaka Íslands og starfshópur sem kanna á með afleysingaþjónustu í samvinnu við búnaðarsamböndin og Samtök ungra bænda en upplýsingar um þessa hópa má nálgast á vef Bændasamtakanna.
Á þessum tímum er nauðsynlegt að við sinnum okkar búum af alúð svo framleiðsla matvæla verði hnökralaus. Einnig vil ég skora á bændur að sinna nágrannagæslu í sínum sveitum og vera í góðu sambandi við nágranna þannig að einangrun verði ekki íþyngjandi fyrir samfélögin í heild sinni. Enn og aftur sannast að við sem þjóð verðum að standa vörð um eigin framleiðslu matvæla og afurða svo við verðum sem sjálfbærust á þeim afurðum sem við neytum dags daglega. Íslenskt, já takk.
Starfsmenn Bændasamtakanna og framkvæmdastjórar búgreinafélaganna hafa komið að þessari vinnu sem einn maður og er ánægjulegt að sjá hversu samstiga fólk er til að leysa úr þeim málum sem koma inn til okkar frá félagsmönnum og fyrirtækjum bænda. Bændasamtökin miðla upplýsingum til ráðuneytis landbúnaðarmála en þar höfum við átt mjög gott samstarf. Vil ég hvetja félagsmenn til að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna þar sem við erum hér fyrir ykkur, ykkur til stuðnings.
Staðan er nokkuð góð varðandi fóðuröflun og áburðarmál
Hugað hefur verið að öryggi um fóðuröflun og áburðarmál fyrir vorið, staðan er nokkuð góð til næstu 2 til 3 mánaða. Allar þessar upplýsingar hafa verið sendar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Nauðsynlegt er fyrir bændur að halda vel utan um á komandi vikum skrá um fjölda daga þar sem starfsmenn og eða framleiðendur eru í sóttkví og eins hvort að framleiðendur verði fyrir afurðatjóni vegna veirusmits. Leiðbeiningar um það verður settar á vef Bændasamtakanna og bið ég félagsmenn að fylgjast með á þeirri síðu um framvindu mála og þar munum við setja inn nýjustu upplýsingar hverju sinni.
Mikil fagmennska hjá stjórnvöldum
Ég vil þakka framvarðarsveit stjórnvalda sem hefur komið fram af mikilli fagmennsku og byggt sínar ákvarðanir á ráðleggingum fagfólks. Við sem þjóð verðum að treysta þeim fyrir næstu skrefum þótt sumar ákvarðanir geti verið sársaukafullar. Ég tel að við getum staðið þennan storm af okkur með samheldni og samstöðu.
Lítum björtum augum á framtíðina og treystum innlenda framleiðslu og veljum íslenskt.