Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Skín við sólu Skagafjörður
Leiðari 11. júlí 2024

Skín við sólu Skagafjörður

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir ritstjóri.

Eftirfarandi línur úr fyrsta erindi hins tilkomumikla ljóðs Matthíasar Jochumssonar, Skín við sólu Skagafjörður, spannar mögulega ýmsar hugrenningar bænda vegna atburða undanfarinna daga:

Kenn mér andans óró stilla;
ótal sjónir ginna villa,
dilla, blinda, töfra, trylla,
truflar augað máttug sól.

Áhrif Kaupfélags Skagfirðinga á íslenskan landbúnað magnaðist enn frekar við kaup þess á stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins, Kjarnafæði Norðlenska, í síðustu viku. Áður höfðu viðræður við fjárfestingafélagið Kaldbak um aðkomu þess að hlutafjáraukningu í kjötvinnslufyrirtækinu átt sér stað, en þess má geta að forstjóri Kaldbaks er stjórnarformaður Haga, sem er stór rekstraraðili á smásölumarkaði. Í tölublaðinu kemur fram að gengið hafi verið að kauptilboði Kaupfélags Skagfirðinga en þau viðskipti áttu sér stuttan aðdraganda.

Stór orð hafa fallið um kaupin og sitt sýnist hverjum. Á meðan sumir fagna því að kjötafurðastöðvar nýti sér nýfengna heimild til samráðs og samruna eru aðrir tortryggnir. Finnst jafnvel bíræfið að gengið sé svo afgerandi til verka eftir umdeildan aðdraganda að lagabreytingum sem heimiluðu viðskiptin.

Það er nefnilega þetta með óvissuna. Þau sem fagna treysta því að fyrirtæki með áratuga langa reynslu í landbúnaðarstarfsemi séu best til þess fallin að ná fram þeirri hagkvæmni sem nauðsynleg er til að viðhalda kjötframleiðslu í landinu svo vel sé. Það er ekki annað að heyra á allmörgum bændum sem eiga í hlut að þeir treysti Skagfirðingum fyrir þessari ábyrgð. Þau sem eru hins vegar uggandi vilja ekki að þessir sömu aðilar hafi þetta mikla vald án skilyrða.

Hluthafar Búsældar, sem eiga 43 prósenta hlut í Kjarnafæði Norðlenska, eru nær 500 talsins. Félagið hefur verið hluthöfum þungur baggi um langt skeið, enda segir stjórnarformaður félagsins hér í tölublaðinu að rekstur sláturhúsa sé afar sveiflukenndur og óvissuþættir varðandi afkomu margir. Í hluthafahópnum eru framleiðendur í Eyjafirði, Þingeyjasveit, Múlasýslu og jafnvel suður í Skaftafellssýslu. Þónokkur fjöldi hluthafa Búsældar hafa þegar hætt búskap, og eru jafnvel í formi dánarbúa, sem ekki hafa getað fengið greitt út sinn hlut. Nú fá þessir aðilar að velja hvort þeir taki tilboði Kaupfélags Skagfirðinga í sinn hlut eða verði áfram eignaraðilar að stærstu kjötafurðasamsteypu landsins.

Eftir viðskiptin verða sex sláturhús undir eignarhaldi Kaupfélags Skagfirðinga; á Hvammstanga, Blönduósi, í Skagafirði, á Akureyri, Húsavík og Hellu. Tilgangur breyttra búvörulaga og þessa samruna er hagræðing. Hagræðing þýðir óneitanlega lokun starfsstöðva svo það er nokkuð fyrirsjáanlegt að einhver hús fá annað hlutverk.

Sumir gætu séð tækifærin í þessu. Kaupfélag Skagfirðinga hefur jú gert vel við sína og skilað samvinnufélaginu góðri afkomu svo árum skiptir með ákvörðunum sínum. Viðskiptin bera það með sér að bændur á starfssvæðinu ætli, eða þurfi, að leggja mikið traust á Kaupfélag Skagfirðinga. Nú þarf kaupfélagið, með skýrum hætti, að standa undir þessu valdi og matvælaráðherra hefur látið hafa eftir sér að það sé stjórnvalda að fylgjast grannt með að markmið lagabreytinganna nái fram að ganga og gagnist bæði bændum og neytendum. Niðurstaðan er sú að valdið og ábyrgðin er í höndum Skagfirðinga.

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 22. apríl 2026

Guðmundur Vernharðsson hjá Mörk í Útvarpi Bændablaðsins

Í þættinum er rætt við Guðmund Vernharðsson hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík...

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki
Fréttir 22. apríl 2026

Skaðleg áhrif varnarefnis á lýðheilsu og lífríki

Hertar reglur um innflutning á vörum sem innihalda skordýraeitrið thiamethoxam t...

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahrepp...

Meira ójafnvægi í loftslagi
Fréttir 21. apríl 2026

Meira ójafnvægi í loftslagi

Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) segir loftslag jarðar í meira ójafnvægi en nokk...

Eyrnamerki greinir atferli kúa
Fréttir 21. apríl 2026

Eyrnamerki greinir atferli kúa

Sölumaðurinn Søren Møller Nørregaard hefur á undanförnum misserum gert sér upp u...

Virði trjáa í þéttbýli
Fréttir 21. apríl 2026

Virði trjáa í þéttbýli

Hægt er að meta virði trjáa með ólíkum matskerfum sem byggja á mælanlegum og hug...

Skeifudagurinn og sumardagurinn fyrsti á Hvanneyri
Fréttir 21. apríl 2026

Skeifudagurinn og sumardagurinn fyrsti á Hvanneyri

Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, verður Skeifudagurinn á Mið-Fossum í Borgarfirð...

Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu
Fréttir 20. apríl 2026

Stofnun atvinnuveganna í stað Matvælastofnunar og Fiskistofu

Í frumvarpi atvinnuvegaráðherra, sem er til meðferðar á Alþingi eftir umsagnafer...