Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Þessir tveir voru búnir að koma sér vel fyrir á 30 cm þykkum ísnum á Hafravatni á fyrstu helgi nýja ársins.
Þessir tveir voru búnir að koma sér vel fyrir á 30 cm þykkum ísnum á Hafravatni á fyrstu helgi nýja ársins.
Fréttir 19. janúar 2018

Leikur á svelli er skemmtilegur en að sama skapi hættulegur

Höfundur: Hjörtur Leonard Jónsson
Þegar James Bond-myndin var tekin upp á ísilögðu Jökulsárlóni var ísinn ekki mjög þykkur, en nógu þykkur til að hægt var að mynda og yfir 40 manns fengu vinnu við að gera skemmtilega hluti.  
 
Í frásögn Sigurjóns Rist af vatnamælingaferð að vetri, sem gekk brösótt var tæpt teflt og mistök urðu líka. Var notuð þessi regla að þykkt íssins í sentímetrum í þriðja veldi gaf burðarþol hans í kílógrömmum, t.d. er burðarþol á 10 sentímetra þykkum ís 1000 kg samkvæmt þessari reglu. Þetta á við sléttan og sprungulausan ís en sé hann sprunginn helmingast burðarþolið. 
 
Ef passað er upp á að kanna þykktina á ísnum þá á að vera auðvelt að meta samkvæmt teikningunni hversu mikinn þunga hann þolir. 
 
Of oft sér maður fréttir af óhöppum út af veikum ís
 
Aldrei hef ég verið mikill hestamaður, en mér hefur verið sagt af hestamanni að að ríða út á ísilögðu vatni sé með því skemmtilegasta í hestasportinu. Enda finnst mér alltaf flottustu myndir sem ég hef séð af hestum myndir sem teknar eru af reiðmönnum á ís.
 
Það eina sem maður þarf að passa vel upp á er að ísinn þoli þann þunga sem á honum er. Oft hefur verið vitnað í óhapp þegar nokkrir hestar fóru niður um ís á Reykjavíkurtjörn þegar ísinn brast undan þunga hestanna. Í því tilfelli var ísinn ekki nema um 10 cm þykkur og þegar svo margir hestar voru saman hlið við hlið fór sem fór. Hefði verið nægilegt burðarþol fyrir 2–3 hesta hlið við hlið. Í þessu tilfelli varð engum meint af, en of oft hefur veikur ís verið orsök harmleiks. Til að vera viss um að ísinn þoli þungann sem á hann er lagður er gott að bora í hann á nokkrum stöðum og á meðfylgjandi mynd er ágætis viðmiðunartafla um styrk í mismunandi þykkum ís. 
 
Á að vera sjálfsagður hlutur að vara við hættum
 
Á mörgum vötnum eru þekktir staðir þar sem ísinn er þynnri en annars staðar eða jafnvel vakir. Viti menn af svoleiðis á að vera sjálfsagður hlutur að vara við veikum ís til þeirra sem hyggjast fara út á ísinn.
 
Förum varlega á ísnum og látum ekki óvarfærni skemma þá miklu skemmtun sem ísilögð vötn geta veitt manni. Góða veiði og skemmtun.
Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...