Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Hestarnir eru stór hluti af daglegu lífi á Stóru-Ásgeirsá, þar sem rekin er hestaleiga og gistiþjónusta. Hér stendur Magnús Ásgeir Elíasson ásamt kærustu sinni, Selinu Mariu Stacher, og dætrum sínum tveimur, Helgu Mist, sjö ára, og Sigríði Emmu, ellefu ára.
Hestarnir eru stór hluti af daglegu lífi á Stóru-Ásgeirsá, þar sem rekin er hestaleiga og gistiþjónusta. Hér stendur Magnús Ásgeir Elíasson ásamt kærustu sinni, Selinu Mariu Stacher, og dætrum sínum tveimur, Helgu Mist, sjö ára, og Sigríði Emmu, ellefu ára.
Mynd / ál
Viðtal 2. júlí 2024

Opnaði bar í gamla mjólkurhúsinu

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Á Stóru-Ásgeirsá í Vestur-Húnavatnssýslu er Magnús Ásgeir Elíasson með hrossarækt og ferðaþjónustu. Hann býr þar ásamt kærustu sinni, Selinu Mariu Stacher, og tveimur dætrum sínum.

Magnús er uppalinn á bænum en Selina kemur frá Sviss. Foreldrar Magnúsar ráku kúabú til ársins 2005 og segir hann að þegar hann tók við jörðinni árið 2008 hafi ekki verið mikill búskapur á bænum. Síðan þá hefur hann reynt ýmislegt fyrir sér, þá sérstaklega á sviði ferðaþjónustu og hestaleigu. Hann rak til þriggja ára dýragarð á Stóru-Ásgeirsá, en Magnús segir þann rekstur ekki hafa verið nógu arðbæran. Þar gátu gestir séð flest dýr sem eru tamin á Íslandi.

Stóra-Ásgeirsá er utarlega í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu.
Hestaleiga og bar

Hestaleigan sem sett var á laggirnar árið 2012 er enn í fullum gangi og byggist á styttri ferðum. Magnús hefur byggt upp gistingu á jörðinni frá árinu 2016, en fyrst breytti hann hluta íbúðarhússins og hefur nýlega reist fjórar stúdíóíbúðir sem ætlaðar eru fyrir ferðamenn.

Árið 2018 opnaði Magnús bar sem hann nefnir Mjólkurhúsið, en það er einmitt í þeim hluta gamla fjóssins þar sem áður var mjólkurhús og mjaltabás. Barinn er oftast opinn þegar fólk er í gistingu ásamt því sem sveitungarnir líta við og „fá sér einn kaldan á góðum sumardegi“, segir Magnús. Hann tekur jafnframt á móti 150 hópum á ári hverju þar sem hann leiðir fólk í gegnum gamla fjósið, sem hefur verið breytt í hesthús, og gefur gestunum færi á að snerta dýrin. Þaðan fer fólkið í reiðhöllina þar sem sett er upp lítil hestasýning. Að lokum er farið í Mjólkurhúsið þar sem Magnús býður upp á stutta tónleika. Á meðan á öllu þessu stendur segir hann skemmtilegar sögur úr sínu lífi og fræðir fólk um íslenskan landbúnað og íslenska hestinn.

Þar sem áður var mjólkurhús fæst nú afgreitt öl.

Hefur gefið út plötur

Tónlist skipar stóran sess í lífi Magnúsar, en hann hefur gefið út tvær plötur. Sú fyrri heitir Leggja af stað og var gefin út á geisladisk, á meðan sú síðari heitir Senn kemur vor og er aðgengileg á Spotify. Tónlistinni lýsir hann sem ljúfri kántrítónlist.

Á bænum eru í kringum sextíu hross og koma að jafnaði fjögur til fimm folöld á ári. Magnús segir ánægjulegt að temja hross úr sinni eigin ræktun og finna hverju og einu verðugt hlutverk, en hann þurfi stöðugt að þjálfa nýja hesta. Þetta sé samt sem áður fjölskyldusport sem allir geti tekið þátt í, en dætur Magnúsar, Sigríður Emma, 11 ára og Helga Mist, sjö ára, eru mjög virkar í hestamennsku. Að auki við þátttöku í hefðbundnum keppnum og reiðmennsku æfa þær hestafimleika á Hvammstanga.

Þær systur, Helga Mist og Sigríður Emma, hafa gaman af að spreyta sig á hestafimleikum.
Kynntist íslenska hestinum í Sviss

Selina fékk fyrst áhuga á landinu eftir að hafa kynnst íslenska hestinum úti í Sviss. Eftir að hafa komið árum saman sem ferðamaður til landsins sagði hún upp starfi sínu í heimalandinu og fékk vinnu á hrossabúi hérlendis fyrir ári síðan. Hún býr núna á Stóru-Ásgeirsá og starfar við hlið Magnúsar í hestaleigunni.

Lykillinn að góðum hestum í hestaleigu er samkvæmt Magnúsi að þeir séu vel sjóaðir og traustir þar sem ólíkt fólk komi á bak. Breiddin þurfi að vera allt frá mjög þægum og rólegum hestum upp í nokkra viljuga ef vanir hestamenn slysast í ferðir. Hann segir hestaleigu vera þokkalegan bransa, þó það sé nauðsynlegt að hafa eitthvað með. Umferð ferðamanna sé mun minni á hans svæði en sunnan heiða, ásamt því sem starfsemin sé háð veðri.

Sextíu hestar eru á bænum. Þegar kemur að hestaleigu þarf talsverða breidd því knaparnir geta verið misjafnir.

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar
Fréttir 8. október 2026

Vambir til sláturgerðar illfáanlegar

Flestir sem taka slátur hafa á undanförnum árum þurft að nota gervivambir eftir ...

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn
Fréttir 8. október 2026

Samningur við alþjóðasamtök um íslenska hestinn

Mánudaginn 28. september skrifuðu Gundula Sharman, forseti FEIF, alþjóðasamtaka ...

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja
Fréttir 8. október 2026

Ný reglugerð um notkun eyrnamerkja

Ný reglugerð um merkingar og skráningar dýra var gefin út 14. september, en þar ...

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra
Fréttir 8. október 2026

Sýklalyfjanotkun dýra jókst um rúm 20% í fyrra

Heildarsala sýklalyfja dýra jókst um 21,4% frá árinu 2024 til 2025. Þetta kemur ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f