Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Ofsahræðsla dýra vegna flugelda
Fréttir 27. desember 2025

Ofsahræðsla dýra vegna flugelda

Höfundur: Þröstur Helgason

Áramótin nálgast óðfluga og minnir Matvælastofnun dýraeigendur á að huga vel að dýrum sínum meðan á flugeldaskotum stendur.

Slíkar sprengingar kunna að valda dýrunum ofsahræðslu og geta þau valdið slysum á sjálfum sér og öðrum við slíkar aðstæður. Hægt er að fyrirbyggja slys með því að grípa til viðeigandi varúðarráðstafana fyrir gamlárskvöld og þrettándann.

Dýraeigendur, sérstaklega þeir sem eiga hunda, ketti og hesta, kannast vel við þann óróa og angist sem dýr þeirra ganga í gegnum á þessum tíma vegna látanna sem fylgir flugeldaskotum. Dæmi eru um að hundar sleppi og hlaupi fyrir bíla eða á fjöll. Hestar úti í haga eru sérlega í hættu. Fjölmörg dæmi eru um að hestar hafi fælst við flugelda, brotist út úr girðingum og hlaupið til fjalla eða í veg fyrir bílaumferð, og valdið slysum á sjálfum sér og öðrum. Hestar eru mikil hópdýr, svo ef einn hleypur af stað getur allur hópurinn fylgt. Einnig eru margir komnir með hesta á hús á þessum tíma og farnir að stunda útreiðar. Óþarfi er að lýsa því hvað getur gerst ef flugeldum er skotið upp rétt hjá eða yfir fólki við útreiðar.

Matvælastofnun vekur athygli á því að í reglugerð um skotelda er leyfilegur skottími takmarkaður. Almenn notkun flugelda er leyfð frá 28. desember til 6. janúar frá kl. 10.00 til 22.00 og alla nýársnótt. Mikilvægt er að virða þessi takmörk til að gefa dýraeigendum kost á að viðra dýr sín án hættu á ofsahræðslu vegna flugelda.

Matvælastofnun beinir því til almennings, og sérstaklega foreldra og forráðamanna barna og unglinga, að sýna þá tillitssemi við dýrin og eigendur þeirra að eingöngu stunda flugeldaskot, hvellhettusprengingar og nota ýlur á gamlárskvöld eða á þrettándanum. Það hjálpar dýraeigendum við að grípa til ýmissa fyrirbyggjandi ráðstafana.

Skylt efni: áramót

Lúxushótel og þyrlupallur við Löngufjörur
Fréttir 9. febrúar 2026

Lúxushótel og þyrlupallur við Löngufjörur

Fyrirtækið Laxárbakki Resort ehf. stefnir að stórtækri uppbyggingu á ferðaþjónus...

Sandur víða þverrandi auðlind
Fréttir 6. febrúar 2026

Sandur víða þverrandi auðlind

Sandur, sem enginn hélt að gæti þrotið á jörðinni, er að verða eitt af stærri um...

Sérstakt markmið að draga úr myndun úrgangs
Fréttir 6. febrúar 2026

Sérstakt markmið að draga úr myndun úrgangs

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur kynnt nýja stefnu um úrgangsforva...

Göngustígur hefur slegið í gegn
Fréttir 6. febrúar 2026

Göngustígur hefur slegið í gegn

Fræðslustígur við Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum nýtur vinsælda en hann var hann...

Hver er kjötneysla á Íslandi í samanburði við önnur lönd?
Fréttir 5. febrúar 2026

Hver er kjötneysla á Íslandi í samanburði við önnur lönd?

Samhliða umræðu um mikilvægi fæðuöryggis landsins er áhugavert að bera saman ney...

2025 metár hjá Herjólfi
Fréttir 5. febrúar 2026

2025 metár hjá Herjólfi

Aldrei áður hafa jafn margir farið með Herjólfi á milli lands og Eyja eins og ár...

Áhrifa af loftslagsbreytingum gætir nú þegar
Fréttir 5. febrúar 2026

Áhrifa af loftslagsbreytingum gætir nú þegar

Fyrsta aðlögunaráætlunin vegna áhrifa loftslagsbreytinga hefur verið gefin út fy...

Vinnustofa í hestaheilsu
Fréttir 5. febrúar 2026

Vinnustofa í hestaheilsu

Einn fremsti sérfræðingur Evrópu á sviði lífhreyfifræði, stoðkerfisfræða og endu...