Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Nýr framkvæmdastjóri, garðyrkjunám og tollkvótar
Skoðun 28. janúar 2021

Nýr framkvæmdastjóri, garðyrkjunám og tollkvótar

Höfundur: Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands

Á stjórnarfundi þann 26. janúar síðastliðinn var samþykkt að ráða Vigdísi Ósk Häsler Sveinsdóttur í starf framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands. Hún mun hefja störf í byrjun febrúar og vil ég óska henni til hamingju með starfið og vona að við sem bændur megum njóta hennar starfskrafta í okkar baráttumálum í framtíðinni. Jafnframt vil ég þakka Oddnýju Steinu Valsdóttur fyrir hennar innkomu í starf framkvæmdastjóra meðan við leituðum að nýjum, en svo það sé ekki á neinn hallað hefur hún skilað því verki af miklum metnaði. 

Garðyrkjunám 

Í síðasta tölublaði var frétt á forsíðu Bændablaðsins um tilfærslu náms í garðyrkju frá Landbúnaðarháskólanum til Fjölbrautaskólans á Suðurlandi. Það er okkar sýn að nám á framhaldsskólastigi eigi frekar heima undir fjölbraut en undir háskóladeild. 

Nauðsynlegt er að hlúa að starfsnámi til framtíðar undir einingu sem sinnir starfsmenntanámi á skólastigi sem sinnir þeirri sýn og er með þá umgjörð sem námið geti þróast og vaxið á grunni samstarfs við atvinnugreinina og möguleika ungs fólks til metnaðarfulls starfsnáms. Með þetta að leiðarljósi vil ég hvetja ráðherra menntamála til að ganga frá samningi milli aðila um umgjörð námsins til framtíðar en það mál  er enn óleyst í ráðuneytinu. Það er nauðsynlegt að þessi mál komist á hreint sem allra fyrst þannig að nemendur og starfsfólk séu ekki í einhverri óvissu næstu misserin.

Tollkvótar 

Nú hefur verið tilkynnt um útboð á tollkvótum á grundvelli samninga um innflutning á landbúnaðarvörum til landsins. Með breyttu útboðskerfi hefur verð á tollkvótum breyst aðeins með hækkun á ákveðnum vörum og lækkun á öðrum flokkum. 

Eitt er verðið á kvótanum og svo er hitt, það er, þetta mikla magn sem samið var um við ESB á sínum tíma sem er allt of mikið magn miðað við stöðu markaðarins í dag án ferðamanna. 

Annað er líka að verð á kjötmörkuðum í Evrópu er í sögulegu lágmarki þar sem framleiðendur erlendis eru einnig að berjast við markaðsbrest vegna COVID-19. 

Ég tel að íslensk stjórnvöld verði að standa með innlendri framleiðslu. Ráðherra utanríkismála hefur óskað eftir viðræðum við ESB um endurskoðun á samningnum og bind ég vonir um að það leiði af sér ásættanlega niðurstöðu fyrir íslenskan landbúnað. En á sama tíma er verið að semja við Breta um milliríkjasamning vegna afurða frá Íslandi og til Íslands. Ég treysti því að landbúnaðurinn fái að njóta sanngirni í þeim viðræðum. 

Meðfylgjandi tafla var birt á vefsíðu Hagstofunnar um miðgildi launa á tímakaupi nokkurra ríkja. Þar má sjá að við erum ansi há á grundvelli meðaltals en það sem vekur mig til umhugsunar er hversu gríðarlega lág laun eru greidd í Póllandi, en við þetta þurfum við að keppa á Íslandi í framleiðslu á landbúnaðarvörum. Ríki eins og Þýskaland og Danmörk nýta sér sláturhús í Póllandi, þar sem launin eru mun lægri, til þess að lækka verð á afurðum til að auka samkeppnishæfni sína á mörkuðum. 

Ég verð oft hugsi hvort að okkur sé alveg sama hvaða laun eru greidd við þá framleiðslu sem við flytjum inn en viljum halda uppi mannsæmandi launum hér við okkar framleiðslu? 

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum
Fréttir 12. febrúar 2026

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti mjólkaði 16.779 kílógrömmum af mjólk á síðasta ...

Engin riða í heilasýnum
Fréttir 12. febrúar 2026

Engin riða í heilasýnum

Engin merki um sauðfjárriðu var að finna í heilasýnum sem tekin voru í sláturhús...

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum
Fréttir 12. febrúar 2026

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum

Garðyrkjubændum með vaxtarlýsingu hefur nýlega boðist að lækka raforkukostnað si...

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga
Fréttir 12. febrúar 2026

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) telja ótækt að frumvarp um breytingar á bú...

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði
Fréttir 12. febrúar 2026

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði

Deiliskipulag fyrir vesturhluta Þjóðgarðsins á Þingvöllum felur í sér vernd, upp...

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu
Fréttir 12. febrúar 2026

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu

Um sextíu prósent bænda í Bændasamtökum Íslands eru ósammála eða nokkuð ósammála...

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist
Fréttir 12. febrúar 2026

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist

Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar...

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli
Fréttir 12. febrúar 2026

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli

Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar fóru á árinu 2024 um 84% dýra...