Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Mikil útbreiðsla fuglaflensu í Evrópu
Fréttir 6. janúar 2021

Mikil útbreiðsla fuglaflensu í Evrópu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Að undanförnu hefur fuglaflensa farið eins og eldur um sinu í Evrópu. Flest fuglaflensutilfelli sem greinst hafa í Evrópu síðustu mánuði eru vegna skæðrar fuglaflensuveiru af gerðinni H5N8. Afbrigðið hefur greinst bæði í villtum fuglum og fuglum í haldi. Villtir fuglar virðast hafa mesta þýðingu fyrir útbreiðslu veirunnar.

Á heimasíðu Matvælastofnunar segir að stofnunin fylgist stöðugt með þróun faraldursins og metur áhættu fyrir Ísland. Stofnunin hvetur fuglaeigendur að huga ávallt vel að smitvörnum og búa sig undir þann möguleika að fyrirskipaðar verði sérstakar smitvarnaráðstafanir.

 

Matvælastofnun álítur ekki þörf fyrir aukinn viðbúnað hér á landi enn sem komið er en um leið og farfuglarnir fara að skila sér aftur til landsins er hugsanlegt að það breytist. Stofnunin vill því minna fuglaeigendur á að gera ráðstafanir til að verja fugla sína fyrir smiti frá villtum fuglum með því að viðhafa ávallt góðar almennar smitvarnir, forðast að hafa nokkuð í umhverfi fuglahúsa sem laðar að villta fugla, gæta þess að fóður og drykkjarvatn sé ekki aðgengilegt villtum fuglum og halda fuglahúsum vel við. Fuglaeigendur eru líka beðnir um að vera vakandi og hafa samband við Matvælastofnun ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni eða aukin dauðsföll.

 

Almenningur er beðinn um að tilkynna Matvælastofnun ef villtir fuglar finnast dauðir og orsök dauða þeirra er ekki augljós. Það má gera með því að senda ábendingu eða tölvupóst á mast@mast.is eða hringja í 530-4800 á opnunartíma.

Matvælastofnun hefur skilgreint þrjú viðbúnaðarstig vegna fuglaflensu. Viðbúnaðarstig 1 er alltaf í gildi en ef líkur aukast á að skæð fuglaflensa berist til landsins tekur viðbúnaðarstig 2 gildi. Þá mun Matvælastofnun leggja til við ráðherra að fyrirskipa tímabundnar aðgerðir til að hindra að flensan berist í alifugla og aðra fugla í haldi. Komi upp grunur um skæða fuglaflensu eða hún staðfest, færast viðbrögð yfir á stig 3. Nánari upplýsingar um viðbúnaðarstigin er að finna hér fyrir neðan.

 

Mikilvægt er að hafa í huga að fólk getur líka smitast af fuglaflensu. Við handfjötlun dauðra fugla er því nauðsynlegt að gæta smitvarna, að minnsta kosti nota grímur og hanska. Þegar um er að ræða smit í hópi fugla þurfa þeir sem vinna að aðgerðum að klæðast fullkomnum hlífðarbúnaði. Það skal þó tekið fram að það afbrigði sem nú geisar í Evrópu hefur hingað til ekki valdið sýkingum í fólki. Engar vísbendingar eru um að fólk geti smitast af neyslu eggja og kjöts.

 

Svínabændur sem eru líka með alifugla þurfa að gæta sérstaklega vel að smitvörnum því svín geta líka smitast af fuglaflensu.

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um fuglaflensu