Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Frá afhendingu verðlaunanna. F.h.: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður SASS, Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Carmen Diljá Eyrúnardóttir og Tim Junge, starfsmenn miðstöðvarinnar.
Frá afhendingu verðlaunanna. F.h.: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður SASS, Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Carmen Diljá Eyrúnardóttir og Tim Junge, starfsmenn miðstöðvarinnar.
Menning 29. nóvember 2023

Menningarverðlaun til Hornafjarðar

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Menningarmiðstöð Hornafjarðar hlaut Menningarverðlaun Suðurlands fyrir árið 2023 en viðurkenningin var veitt á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í Mýrdalshreppi 26. október síðastliðinn.

„Mín fyrstu viðbrögð voru gleði og þakklæti fyrir viðurkenninguna og til þeirra, sem tilnefndu okkur. Við starfsmenn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar tókum auðmjúk við þeim og eru þau okkur hvatning í að vinna áfram að öflugri menningarstarfsemi í sveitarfélaginu,“ segir Eyrún Helga Ævarsdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar.

„Áhersla er lögð á barna- og fjölmenningu í okkar starfi og er aðgengi og inngilding einkunnarorðin. Við stöndum fyrir margs konar viðburðum, samkomum og klúbbastarfi þar sem aðgengi er markmiðið og leitast er við að ná til þeirra sem teljast til jaðarhópa. Barnastarfið okkar er fjölbreytt og blómlegt, m.a. listasmiðjur og náttúru- og menningarfræðsla með skoðunarferðum,“ segir Eyrún Helga enn fremur.

Menningarmiðstöðin starfrækir sex söfn í Sveitarfélaginu Hornafirði en þá erum við að tala um Listasafn Svavars Guðnasonar, héraðsskjalasafn, byggða-, náttúrugripa- og sjóminjasafn auk bókasafns. Þar er skráður og varðveittur menningararfur sveitarfélagsins ásamt því að kynna heimamönnum og gestum þeirra menningu, listir og sögu sveitarfélagsins. Atvinnu-, ferða- og rannsóknarsvið heyra undir stofnunina og starfa þau þvert á einingarnar.

„Árlega eru haldnir margir viðburðir á vegum Menningarmiðstöðvarinnar. Viðburðir stofnunarinnar eru haldnir í þágu menntunar, ígrundunar og ánægju en sífellt er leitast við að fylla anda íbúa og aðkomumanna innblæstri með menningu, fræðslu á menningararfi Austur-Skaftafellssýslu og kynningu á sveitarfélaginu sjálfu,“ segir Eyrún Helga.

Fundað um líffræðilega fjölbreytni
Fréttir 12. maí 2026

Fundað um líffræðilega fjölbreytni

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fundaði með Astri...

Æðarbændur kynna fullunnar vörur
Fréttir 12. maí 2026

Æðarbændur kynna fullunnar vörur

Vöruhönnuðir þróa nú fullunnar vörur úr eigin dúni og kynna nýtt vörumerki á Hön...

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum
Fréttir 12. maí 2026

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT). Úrsögnin teku...

Könnun sýnir yfirgnæfandi andstöðu við einkaleyfi á fræjum
Fréttir 8. maí 2026

Könnun sýnir yfirgnæfandi andstöðu við einkaleyfi á fræjum

Um 80 prósent borgara í Evrópusambandinu eru andvíg því að veita einkaleyfi á li...

Laxaseiði struku úr laxeldisstöð
Fréttir 8. maí 2026

Laxaseiði struku úr laxeldisstöð

Bilun varð í búnaði hjá eldisstöð í Lónum í Kelduhverfi, Kópaskeri, sem varð ti...

Ungir frumkvöðlar - Vörumessa & verðlaun
Fréttir 8. maí 2026

Ungir frumkvöðlar - Vörumessa & verðlaun

Það var mikill erill í Smáralindinni á dögunum þegar vörumessa Ungra frumkvöðla ...

Undirskriftasöfnun til bjargar Gróðrastöðinni Mörk
Fréttir 6. maí 2026

Undirskriftasöfnun til bjargar Gróðrastöðinni Mörk

Settur hefur verið í loftið undirskriftalisti til stuðnings Gróðrastöðinni Mörk ...

Flutningar vindmylla í Vaðölduver hefjast í kvöld
Fréttir 6. maí 2026

Flutningar vindmylla í Vaðölduver hefjast í kvöld

Flutningar á vindmyllum frá Þorlákshöfn í Vaðölduver hefjast seint í kvöld, aðfa...