Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Matarsvindl í bókmenntasögunni
Fréttaskýring 13. október 2022

Matarsvindl í bókmenntasögunni

Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir

Matvælasvindl hefur fylgt manninum frá upphafi, enda svikin sögð jafngömul versluninni sjálfri. Í afar áhugaverðum hlaðvarpsþætti Símons Majumdar af „Eat My Globe“ fjallar hann um sögu matvælasvika.

Hann rennir stoðum undir það að vernd almennings gegn matvælasvikum hafi verið ein af elstu formum stjórnvaldsreglugerða. Upphafleg viðmið formfestu viðskiptanna var að sameinast um staðlaðar mælieiningar. Hann kynnir nokkrar klausur úr fornbókmenntum til sögunnar máli sínu til stuðnings. Finna má vísbendingar um slíkt regluverk og viðurlög við brotum á þeim strax í Biblíunni, en í fimmtu Mósebók segir:

Þú skalt ekki hafa tvenns konar vogarsteina í poka þínum, léttan og þungan. Þú skalt ekki hafa tvenns konar efu í húsi þínu, langa og stutta. Þú skalt hafa nákvæma og rétta vogarsteina og þú skalt hafa nákvæma og rétta efu svo að þú lifir lengi í landinu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér. Því að hver sem þetta gerir, sérhver svikari, er Drottni, Guði þínum, viðurstyggð.

Í ritum Kínverja má finna vísbendingar þess að verslunarmenn hafi haft umboðsmenn sem höfðu það hlutverk að stöðva framleiðslu á fölsuðum vörum. Á tímum Tang­keisaraveldisins mátti finna lagaklausu með leiðbeiningum um refsingar sem beita mátti þá sem uppvísir urðu að matvælasvindli:

Þegar þurrkað eða ferskt kjöt veldur því að menn verða veikir, skal brenna alla afgangana eins fljótt og auðið er. Hinn brotlegi skal hýddur 90 höggum.

Sá sem af ásettu ráði gefur eða selur öðrum kjötið skal vísað úr landi í eitt ár. Ef sá deyr, sem neytt hefur kjötsins, skal hinn brotlegi hengdur.

Fleiri áhugaverð dæmi um regluverk kringum matvælasvindl er að finna í bókmenntasögunni og rétt að mæla með hlustun þáttar Símons Majumdar sem nefnist „There is Death in the Pot“: The History of Food Fraud.

Skylt efni: Matvælasvindl

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild
Fréttir 14. ágúst 2026

Aukabúnaðarþing ályktar gegn ESB-aðild

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, haldið í Reykjavík þann 14. ágúst 2026, telur ...

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB
Fréttir 14. ágúst 2026

Norskir bændur sterklega á móti inngöngu í ESB

Bjørn Gimming hélt erindi um norskan landbúnað utan Evrópusambandsins á málþingi...

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi
Fréttir 14. ágúst 2026

Vel sótt málþing um landbúnað í evrópsku samhengi

Húsfyllir var á málþingi Bændasamtakanna um landbúnað í evrópsku samhengi sem ha...

Færri og stærri býli
Fréttir 14. ágúst 2026

Færri og stærri býli

Ingrid Rydberg, sérfræðingur hjá sænsku bændasamtökunum LRF, hélt erindi á málþi...

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna
Fréttir 14. ágúst 2026

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna

Esa Härmälä fór fyrir samninganefnd finnska utanríkisráðuneytisins um landbúnaða...

Réttalistinn í smíðum
Fréttir 14. ágúst 2026

Réttalistinn í smíðum

Síðustu ár hefur Bændablaðið tekið saman lista yfir tíma- og staðsetningar rétta...

Barkarbjalla hefur numið land
Fréttir 14. ágúst 2026

Barkarbjalla hefur numið land

Barkarbjalla hefur fjölgað sér með góðum árangri í íslenskri náttúru. Hún er í h...

Áhættu- og viðkvæmnismat
Fréttir 14. ágúst 2026

Áhættu- og viðkvæmnismat

Árlegur viðbótarkostnaður getur numið allt að 4-5% af framleiðslu- verðmæti mjól...