Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Villisvín í Þýskalandi.
Villisvín í Þýskalandi.
Mynd / thelocal.de
Fréttir 8. október 2020

MAST treystir á að erlent eftirlit varni því að smitað svínakjöt berist til Íslands

Höfundur: Vilmundur Hansen

Fyrr í þessum mánuði greindist fyrsta tilfelli afrískrar svínapestar í Þýskalandi. Veiran fannst í villi­svínum og enn sem komið er hefur hún ekki fundist í eldisdýrum eða á svínabúum í Þýskalandi. Eigi að síður hafa nokkrar þjóðir þegar bannað innflutning á svínakjöti frá landinu.

Strangar takmarkanir á viðskipti og fyrirbyggjandi aðgerðir eru í löndum þar sem afrísk svínapest hefur greinst til að reyna að hefta útbreiðslu pestarinnar.

Svínapest smitast ekki í menn en ekkert bóluefni er til við veirunni sem pestinni veldur og hún hefur alvarlegar afleiðingar á svínaeldi þar sem hún kemur upp.

Thelma Dögg Róbertsdóttir, sérgreinadýralæknir í heilbrigði og velferð svína hjá Matvælastofnun, segir að Matvælastofnun hafi eftirlit með innflutningi á matvælum sem eru upprunnin í löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Strangar takmarkanir

Innfluttu kjöti frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins skal fylgja opinbert heilbrigðisvottorð. Komi upp afrísk svínapest á svínabúi eru settar hömlur á búið með það að markmiði að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins, meðal annars er ekki heimilt að dreifa vörum þaðan. Yfirvöld í útflutningsríki geta ekki vottað kjöt frá búi sem hömlur gilda um vegna tilkynningarskyldra sjúkdóma.

Búum lokað ef sýking kemur upp

Thelma segir að innan Evrópu­sambandsins sé vöktunarkerfi og að um leið og það kemur upp tilkynn­ingarskyldur sjúkdómur, eins og afrísk svínapest á búum, sé þeim lokað og ýmsar aðrar takmarkanir eru fyrirskipaðar, meðal annars um viðskipti með vörum sem borið geta veiruna. Með því móti er reynt að tryggja að sýktar vörur berist ekki á markað.

Sýking hefur greinst á svínabúum í Evrópu og í nokkrum villi­svínum í Þýskalandi og við hjá Matvælastofnun munum að sjálfsögðu fylgjast með framvindunni en í raun treystum við því að eftirlitið í Þýskalandi sé virkt og að yfirvöld í landinu grípi til viðeigandi ráðstafana gerist þess þörf.“


Ekki gripið til beinna aðgerða hér á landi

Samkvæmt þessu er því í raun ekki gripið til neinna beinna aðgerða hér á landi en Thelma segir að málið verði skoðað komi upp sýkingar af afrískri svínapest í búum í löndum sem við flytjum inn svínakjöt frá. Matvælastofnun fylgist náið með tilkynningum frá Evrópusambandinu og er á varðbergi vegna þessa.

Berst með hráu og frosnu kjöti

„Við hjá Matvælastofnun leggjum áherslu á að svínabúin í landinu hafi strangan aðgang inn á búin. Sjúkdómurinn breiðist helst með villisvínum, tækjum sem notuð eru á svínabúum og vöruflutningabílum sem flytja svín eða svínaafurðir milli staða og matvælum. Á Íslandi eru ekki villisvín og það er plús fyrir okkur og þar sem sjúkdómurinn þekkist ekki hér á landi berst hann ekki með flutningabílum.
Það er líka rétt að benda á að vírusinn getur lifað lengi í frosnu kjöti.

Erlendis er algengt að fólk skilji eftir matarafganga á svæðum þar sem villisvín eru, til dæmis pylsur eða skinku, og þannig getur pestin hæglega borist í svínin frá fólki og úr mat.

Eins og áður er sagt getur pestin borist með hráu og frosnu svínakjöti, eða öðru sem mögulega inniheldur svínakjöt, til landsins og svo mögulega inn á svínabú með fólki. Við minnum því á að aðilar sem hafa verið erlendis þar sem svín hafa verið eða komist í snertingu við hugsanlegt smit fari ekki inn á svínabú á Íslandi fyrr en í fyrsta lagi 48 klukkustundir eftir komu til landsins. Einnig er mikilvægt að fólk sem starfar á svínabúum hérlendis taki ekki með sér matvæli sem geta borið smit inn á búin. Ég vil líka minna á bannið við að fóðra svín með eldhúsúrgangi, en svoleiðis fóðrun getur borið smit í svínin.

Mig langar líka að benda á að pestin getur einnig borist til landsins með ferðamönnum og ekki síst fólki sem stundar veiðar á svæðum þar sem hún er til staðar.“

Viðbragðsáætlun

Thelma segir að ef svo fer að afrísk svínapest berist til landsins sé til staðar viðbragðsáætlun um viðbrögð við alvarlegum smitandi dýra­sjúkdómum sem nýbúið sé að uppfæra. Áætlunin gerir ráð fyrir skjótum viðbrögðum til að hefta útbreiðslu pestarinnar og að útrýma henni sem fyrst með því að loka búum, skera niður og sótthreinsa.

„Eitt af því sem mestu skiptir til að ráða niðurlögum pestarinnar er að fá sem fyrst tilkynningu frá svínabúi ef grunur kemur upp um smit.“

Að sögn Thelmu er mögulegt að hefta og útrýma sýkingum af þessu tagi sé gripið strax til aðgerða, eins og sannaðist þegar tókst að útrýma Gumboro-veikinni í alifuglum sem kom upp 2019 og var útrýmt fyrr á þessu ári.

Thelma segir að verið sé að útbúa veggspjald sem ætlað er til að hengja upp á svínabúum til að minna fólk á að fara varlega og gæta að smitvörnum. Auk þess sem hún bendir á nýtt smitvarnarmyndband á heimasíðu Matvælastofnunar, https://www.mast.is/en/travel. /VH

– Sjá nánar um afrísku svínapestina og stöðu mála í Þýskalandi á bls. 10 í Bændadablaðinu.

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum
Fréttir 12. febrúar 2026

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti mjólkaði 16.779 kílógrömmum af mjólk á síðasta ...

Engin riða í heilasýnum
Fréttir 12. febrúar 2026

Engin riða í heilasýnum

Engin merki um sauðfjárriðu var að finna í heilasýnum sem tekin voru í sláturhús...

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum
Fréttir 12. febrúar 2026

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum

Garðyrkjubændum með vaxtarlýsingu hefur nýlega boðist að lækka raforkukostnað si...

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga
Fréttir 12. febrúar 2026

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) telja ótækt að frumvarp um breytingar á bú...

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði
Fréttir 12. febrúar 2026

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði

Deiliskipulag fyrir vesturhluta Þjóðgarðsins á Þingvöllum felur í sér vernd, upp...

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu
Fréttir 12. febrúar 2026

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu

Um sextíu prósent bænda í Bændasamtökum Íslands eru ósammála eða nokkuð ósammála...

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist
Fréttir 12. febrúar 2026

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist

Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar...

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli
Fréttir 12. febrúar 2026

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli

Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar fóru á árinu 2024 um 84% dýra...