Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Lillesand húfa
Hannyrðahornið 10. febrúar 2021

Lillesand húfa

Höfundur: Handverkskúnst

Útprjónaðar húfur eru alltaf prýði á höfði. Þessi húfa fyrir börn er hlý og mjúk, prjónuð úr DROPS Merino Extra Fine, með norrænu mynstri.

DROPS Design: Mynstur me-071-bn

Stærðir: 2 (3/5) 6/9 (10/12) ára

Höfuðmál: Ca 48 (50/52) 53/54 (55/56) cm

Garn: DROPS Merino Extra Fine (fæst í Handverkskúnst)

Ryð nr 42: 50 g í allar stærðir
Rjómahvítur nr 01: 50 g í allar stærðir

Prjónar: Hringprjónn 40 cm, nr 3 og 3,5. Sokkaprjónar nr 3,5 – eða sú stærð sem þarft til að fá 22 lykkjur = 10 cm á breidd

Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

Leiðbeiningar: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

Úrtaka: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman.

HÚFA:
Fitjið upp 96 (100) 104 (108) lykkjur á hringprjón nr 3 með ryð. Tengið í hring, setjið prjónamerki og prjónið 1 umferð slétt og síðan stroff (= 1L slétt, 1L brugðið) í 3 cm.

Skiptið yfir á hringprjón nr 3,5. og prjónið mynstur A.1 hringinn (= 24 (25) 26 (27) mynstureiningar með 4 lykkjum). JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er lykkjum fækkað/fjölgað jafnt yfir að réttum lykkjufjölda eins og útskýrt er að neðan.
ÖR-1: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 108 (108) lykkjur (= 8 (8) 9 (9) mynstureiningar með 12 lykkjum).
ÖR-2: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 104 (104) lykkjur (= 12 (12) 13 (13) mynstureiningar með 8 lykkjum).
Ör-3: Jafnið lykkjufjöldann í 96 (96) 108 (108) lykkjur (= 8 (8) 9 (9) mynstureiningar með 12 lykkjum).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 16 cm frá uppfitjunarkanti.

Setjið 12 prjónamerki í stykkið með 8 (8) 9 (9) lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Prjónið slétt hringinn með ryð. JAFNFRAMT í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚRTAKA = 12 lykkjur færri í öllum stærðum. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 12 (12) 24 (24) lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt án úrtöku. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 6 (6) 12 (12) lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 19 (20) 21 (22) cm ofan frá og niður.



Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst

www.garn.is

Óbreytt stjórn hjá SAFL
Fréttir 22. maí 2025

Óbreytt stjórn hjá SAFL

Aðalfundur Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) var haldinn 8. maí sl. í Húsi ...

Búvörulögin voru löglega sett
Fréttir 21. maí 2025

Búvörulögin voru löglega sett

Hæstiréttur hefur í dag snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði komist a...

Þurfum við tolla á íslensk matvæli?
Fréttir 21. maí 2025

Þurfum við tolla á íslensk matvæli?

Samhliða umræðu um aukinn innflutning á kjöti og osti hafa komið fram áhyggjur a...

Unnt að draga úr lykt af kúamykjuáburði
Fréttir 21. maí 2025

Unnt að draga úr lykt af kúamykjuáburði

Unnt er að blanda kúamykju með hreinsiefnum og nýta sem áburð. Lyktin er minni, ...

Nám í skapandi sjálfbærni á háskólastig
Fréttir 20. maí 2025

Nám í skapandi sjálfbærni á háskólastig

Námi í skapandi sjálfbærni á Hallormsstað verður frá og með næsta hausti haldið ...

Stuðlagil fékk hæsta styrkinn
Fréttir 20. maí 2025

Stuðlagil fékk hæsta styrkinn

Alls hlutu 28 verkefni styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en heildarupphæð...

Hátt hlutfall óholls matar
Fréttir 20. maí 2025

Hátt hlutfall óholls matar

Næstum helmingur orkunnar í fæðu fullorðinna Íslendinga á aldrinum 18–80 ára kem...

Nýr forstöðumaður byggingarsviðs
Fréttir 19. maí 2025

Nýr forstöðumaður byggingarsviðs

Límtré-Vírnet ehf. hefur ráðið Gísla Símonarson sem forstöðumann byggingarsviðs....