Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Leiðbeiningar Mast til bænda og starfsfólks í matvælaframleiðslu
Fréttir 12. mars 2020

Leiðbeiningar Mast til bænda og starfsfólks í matvælaframleiðslu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Bændur og starfsfólk fyrirtækja í matvælaframleiðslu hafa velt mörgum álitamálum fyrir sér síðustu daga vegna þróunar kórónuveirunnar. Matvælastofnun hefur uppfært upplýsingasíðu sína um COVID-19 og matvæli með algengum spurningum og svörum um uppskeru grænmetis og framleiðslu dýraafurða með tilliti veirunnar. Eftirfarandi texta er að finna á vef Mast.

Allir einstaklingar sem hafa greinst með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, er skylt að fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis og þeir sem úrskurðaðir hafa verið í sóttkví skulu fylgja leiðbeiningum um sóttkví á vef Embættis landlæknis.

Kúabændur sem hafa smitast, ættu að leita allra leiða til að fá afleysingu í mjaltir og önnur verk í fjósi.  Ef óhjákvæmilegt er að sýktur einstaklingur starfi við mjaltir þarf hann að gæta ýtrustu smitvarna og má ekki vera til staðar þegar mjólkin er sótt. Sama gildir um einstakling í sóttkví.

Fólk sem hefur verið greint með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, má ekki vinna við uppskeru grænmetis. Saman er að segja um fólk sem vinnur við tínslu og pökkun eggja.

Fólk á  sauðfjárbúum, nautgripabúum, svínabúum, alifuglabúum og hrossabúum sem hefur smitast ætti að leita allra leiða til að fá afleysingu.

Flutningabílstjórar sem sækja gripi til slátrunar þurfa að gæta ýtrustu smitvarna. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.


Nánari upplýsingar Mats

UPPSKERA GRÆNMETIS


Má fólk með kórónuveirusmit eða í sóttkví vinna við uppskeru grænmetis?

Fólk sem hefur verið greint með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, má ekki vinna við uppskeru grænmetis. Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti er varða matvæli skulu stjórnendur matvælafyrirtækja gera fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja að starfsfólk, sem meðhöndlar matvæli, sé heilbrigt.

Fólk sem hefur verið úrskurðað í sóttkví vegna hugsanlegs smits af völdum kórónuveiru og er einkennalaust, má vinna við uppskeru grænmetis séu ekki aðrir þar að störfum líka. Sjá leiðbeiningar um sóttkví á vef Embættis landlæknis. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.

FRAMLEIÐSLA DÝRAAFURÐA

Má fólk með kórónuveirusmit eða í sóttkví vinna við tínslu og pökkun eggja?

Fólk sem hefur verið greint með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, má ekki vinna við tínslu og pökkun eggja. Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti er varða matvæli nr. 103/2010 (EB/2004/852) skulu stjórnendur matvælafyrirtækja gera fullnægjandi ráðstafanir til að tryggja að starfsfólk, sem meðhöndlar matvæli, sé heilbrigt.

Fólk sem hefur verið úrskurðað í sóttkví vegna hugsanlegs smits af völdum kórónuveiru og er einkennalaust má vinna við tínslu og pökkun eggja séu ekki aðrir þar að störfum líka. Sjá leiðbeiningar um sóttkví á vef Embættis landlæknis. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.

Má fólk með kórónuveirusmit eða í sóttkví vinna við mjaltir og önnur fjósastörf?

Einstaklingar sem hafa greinst með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, er skylt að fylgja reglum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis. Kúabændur sem hafa smitast, ættu að leita allra leiða til að fá afleysingu í mjaltir og önnur verk í fjósi. Bæði vegna þeirrar eigin heilsu, að þeir keyri sig ekki út og tefji fyrir bata, og að þeir dreifi ekki smiti í fjósinu þar sem annað fólk gæti átt eftir að starfa, ef þeir sjálfir verða alvarlega veikir. Ef óhjákvæmilegt er að sýktur einstaklingur starfi við mjaltir þarf hann að gæta ýtrustu smitvarna. Tíður handþvottur er mikilvægasta smitvörnin en einnig er æskilegt að nota hanska og grímu við mjaltir og þrif á mjaltatækjum og í mjólkurhúsi. Æskilegt er að opna út og loftræsta mjólkurhúsið að loknum mjöltum.

Kúabændur sem hafa verið úrskurðaðir í sóttkví vegna hugsanlegs smits af völdum kórónaveiru og eru einkennalausir ættu að fylgja leiðbeiningum um sóttkví á vef Embættis landlæknis og er ráðlagt að gæta ýtrustu smitvarna í störfum sínum við mjaltir. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.

Sjá einnig leiðbeiningar fyrir atvinnulíf á vef Embættis landlæknis.

Má sækja mjólk á bæi þar sem fólk er í heimaeinangrun eða sóttkví vegna kórónuveiru?

Einstaklingum sem hafa greinst með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, er skylt að fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis og þeir sem úrskurðaðir hafa verið í sóttkví skulu fylgja leiðbeiningum um sóttkví á vef Embættis landlæknis. Mælt er með að kúabændur sem hafa smitast leiti allra leiða til að fá afleysingu. Ef óhjákvæmilegt er að sýktur einstaklingur starfi við mjaltir þarf hann að gæta ýtrustu smitvarna og má ekki vera til staðar þegar mjólkin er sótt. Sama gildir um einstakling í sóttkví. Mjólkurbílstjóri þarf jafnframt að gæta ýtrustu smitvarna, s.s. að nota vinnuhanska sem hann skilur eftir á búinu meðan ástandið varir og þvo hendur með sápuvatni (eða handspritti) áður en hann yfirgefur búið.

Má fólk með kórónuveirusmit eða í sóttkví sinna sauðfé, nautgripum, svínum, alifuglum og hrossum?

Einstaklingum sem hafa greinst með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, er skylt að fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis. Fólk á  sauðfjárbúum, nautgripabúum, svínabúum, alifuglabúum og hrossabúum sem hefur smitast ætti að leita allra leiða til að fá afleysingu. Bæði vegna þeirrar eigin heilsu, að þeir keyri sig ekki út og tefji fyrir bata, og að þeir dreifi ekki smiti á búinu þar sem annað fólk gæti átt eftir að starfa, ef það sjálft verður alvarlega veikt. Ef óhjákvæmilegt er að sýktur einstaklingur sinni störfum á slíkum búum þarf hann að gæta ýtrustu smitvarna og fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis.

Einstaklingar sem hafa verið úrskurðaðir í sóttkví vegna hugsanlegs smits af völdum kórónuveiru og eru einkennalausir skulu fylgja leiðbeiningum um sóttkví á vef Embættis landlæknis og er ráðlagt að gæta ýtrustu smitvarna við að sinna dýrum. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.
Mega sláturhús sækja og taka við gripum frá búum þar sem einstaklingar eru í heimaeinangrun eða sóttkví?

Einstaklingum sem hafa greinst með veiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómi, er skylt að fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis. Mælt er með að einstaklingar á sauðfjár-, nautgripa-, svína-, alifugla- og hrossabúum sem hafa smitast leiti allra leiða til að fá afleysingu. Ef það er ekki mögulegt þurfa þeir að gæta ýtrustu smitvarna. Geri þeir það ætti ekki að stafa hætta af því að sækja og taka við gripum frá þessum búum. Flutningabílstjórar þurfa að gæta ýtrustu smitvarna. Tíður handþvottur með sápuvatni er besta smitvörnin.

Ýmsar leiðbeiningar og fleiri spurningar og svör um kórónaveiruna er að finna á vef Embættis landlæknis.

 

Plastbrúsar framleiddir úr endurunnu rúlluplasti
Fréttir 25. apríl 2025

Plastbrúsar framleiddir úr endurunnu rúlluplasti

Fyrirtækið Pure North í Hveragerði hefur nú náð að loka hringrás endurvinnslu á ...

Reykjavík Open 2025 – Friðriki til heiðurs
Fréttir 25. apríl 2025

Reykjavík Open 2025 – Friðriki til heiðurs

Reykjavík Open, sem hófst miðvikudaginn 9. apríl í Hörpu, hefur fyrir löngu fest...

Málstofa um áburðarmöguleika fiskeldisseyrunnar
Fréttir 24. apríl 2025

Málstofa um áburðarmöguleika fiskeldisseyrunnar

Fiskeldi á landi er vaxandi atvinnugrein, allnokkur stór eldisfyrirtæki eru í up...

Framleiðsla á Hrym í Búðardal
Fréttir 23. apríl 2025

Framleiðsla á Hrym í Búðardal

Fyrirhuguð er stórtæk framleiðsla á lerkiafbrigðinu Hrymi í Dalabyggð á næstu mi...

Skógur alltaf til bóta
Fréttir 22. apríl 2025

Skógur alltaf til bóta

Rannsóknir sýna að áhrif skógræktar á kolefnisforða jarðvegs eru nær alltaf orði...

Fjársjóður fjalla og fjarða
Fréttir 22. apríl 2025

Fjársjóður fjalla og fjarða

Tveggja daga íbúaþing, undir stjórn Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, fór fram í Rey...

Er plantað nóg?
Fréttir 16. apríl 2025

Er plantað nóg?

Skógarbændur gegna mikilvægu hlutverki við landgræðslu og skógrækt. Þannig er sk...

Trump skellir í lás
Fréttir 16. apríl 2025

Trump skellir í lás

Alþjóðasamfélagið er skekið eftir tollahækkanir Trumps í þarsíðustu viku.