Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Vistkerfi neðansjávar þar sem tilraunir eru gerðar á ræktun grænmetis og ávaxta í verkefninu Nemo´s Garden.
Vistkerfi neðansjávar þar sem tilraunir eru gerðar á ræktun grænmetis og ávaxta í verkefninu Nemo´s Garden.
Mynd / Ph Skull Photos
Á faglegum nótum 21. febrúar 2020

Landbúnaður stundaður neðansjávar

Höfundur: Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Árið 2012 fékk kafarinn og garðyrkjuáhugamaðurinn Sergio Gamberini, eigandi fyrirtækisins Ocean Reet Group, hugmynd að því að rækta kryddjurtir neðan­sjávar á sjálfbæran hátt. Í byrjun hugsaði hann um basil­kryddjurtina, sem er mest notuð í pestó, og úr varð að hann hóf tilraunir sínar neðansjávar undir merkjunum Nemo´s Garden. 
 
Eins og flestar kryddjurtir þarf basil verndað umhverfi í sól með vel ræstum jarðvegi og stöðugt og jafnt hitastig. Sergio hófst handa með aðstoð félaga sinna í Ocean Reet Group og sökkti gegnsæju lífríki 20 fetum fyrir neðan yfirborð sjávar, fyllti þau með lofti og síðan hófst tilraunaverkefnið með ræktun neðansjávar. 
 
Ekkert skordýraeitur
 
Með kerfi sínu sá Sergio fyrir sér að það gæti komið í stað erfiðleika við notkun á skordýraeitri en hið lokaða vistkerfi sem myndast inni í lífríkinu er vel verndað gegn árás sníkjudýra. Hann notar því ekkert skordýraeitur við framleiðsluna og er hið vistfræðilega umhverfi lokað fyrir vatni sjávar sem kemur í veg fyrir truflun á vistkerfi þess síðarnefnda. Þegar kemur að gróður­áburði er náttúrulegum vökva bætt í mismunandi undirlög eða í vatnsaflskerfin til að gefa eitt eða fleiri næringarefni til plantnanna, sem er nauðsynlegt fyrir vöxt þeirra. 
 
Sergio og teymi hans kanna nú hvernig ræktun jarðarberja kemur út neðansjávar.
 
Mismunandi tegundir grænmetis
 
Sergio kannar nú möguleikann á því að framleiða áburð úr þörungum beint úr sjónum þar sem neðansjávar-garðyrkjuræktunarstöðinni er komið fyrir. Endurbætur í stjórnun vatns fyrir landbúnað eru kjarnaefni verkefnisins Nemo´s Garden. Vegna hitastigsbreytinga á loftinu innan vistkerfisins og sjávarvatnsins umhverfis þess gufar vatnið upp á botni vistkerfisins og þéttir auðveldlega innra yfirborðið. Þar sem stöðin neðansjávar þarf vatn utan frá til að virka fyrir plönturnar óskar Sergio eftir að vera með sínar stöðvar sem lengst frá öðrum stöðvum sem þurfa ferskvatn, eins og eldisstöðvar fyrir fisk sem dæmi. Enn sem komið er eru ákveðnar takmarkanir við verk­efnið og hvað sé hægt að rækta neðansjávar og því er Sergio enn á tilraunastigi með hugmynd sína en þróar sig áfram með mismunandi tegundir grænmetis og ávaxta eins og staðan er í dag. 
 
Vistkerfið, sem sökkt er 20 fetum fyrir neðan yfirborð sjávar, fær góða loftun en áskoranir eru að koma ferskvatni inn á stöðvarnar. 
 

 

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum
Fréttir 13. ágúst 2026

Ein umsögn um breytingar á búvörulögum

Ein umsögn barst í samráðsgátt um breytingar á búvörulögum og framlengingu búvör...

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB
Fréttir 13. ágúst 2026

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB

Bændasamtök Íslands boða til málþings á morgun, föstudaginn 14. ágúst, þar sem r...

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins
Fréttir 13. ágúst 2026

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins

Dalsbú í Mosfellsdal er síðasta minkabú landsins. Aðfaranótt 29. júlí var brotis...

Einni milljón króna úthlutað
Fréttir 11. ágúst 2026

Einni milljón króna úthlutað

Samfélagsverkefnið „Voices of Vík; Language, Culture & Community“, undir forystu...

Merkingaróreiða ríkir
Fréttir 11. ágúst 2026

Merkingaróreiða ríkir

Sjö framleiðendur nota upprunamerkið Íslenskt staðfest á vörum sínum. Eigandi Só...

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki
Fréttir 10. ágúst 2026

Tregt til að skera niður landbúnaðarstyrki

Landbúnaðarstyrkir Evrópusambandsins virðast ætla að halda velli í næstu sjö ára...

Háskóli Íslands gerir moltu
Fréttir 10. ágúst 2026

Háskóli Íslands gerir moltu

Háskóli Íslands hefur keypt jarðgerðarvél sem býr til moltu úr matarafgöngum. Vé...

Þröstur Norðurlandameistari
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tid...