Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Hvers vegna rækta bændur ekki meira korn á Íslandi?
Mynd / smh
Á faglegum nótum 7. apríl 2022

Hvers vegna rækta bændur ekki meira korn á Íslandi?

Höfundur: Helgi Eyleifur Þorvaldsson, Hrannar Smári Hilmarsson og Egill Gautason.

Kornrækt á Íslandi hefur dregist saman síðustu ár eftir allhraðan vöxt á fyrsta áratug aldarinnar. Megnið af kornvöru er flutt inn til landsins, bæði til fóðurframleiðslu og manneldis, og eru birgðageymslur Íslendinga agnarsmáar. Þær geyma um 4-6 vikna lager og eru einkum í eigu fóðurframleiðenda.

 Langvarandi brestur í aðfanga­keðju gæti því leitt til skorts á þessari vöru og stríðið í Úkraínu minnir rækilega á að til þessa gæti komið næstu misserin. Til að auka kornrækt er nauðsynlegt að stórefla kynbætur á korni til að aðlaga það íslenskum aðstæðum og hækka ræktunarstyrki til samræmis við það sem tíðkast í nágrannalöndum, en fleira kemur til.

Markaðslegir þættir eru að okkar mati ein helsta ástæða þess að ekki er meira korn ræktað hérlendis. Innlend viðskipti með korn eru afar takmörkuð. Stærstur hluti af íslenskri kornframleiðslu er notaður sem fóður innan bús og hér á landi er ekki til félag sem getur keypt og geymt korn í miklum mæli. Bændur hafa því ekki tryggingu fyrir að geta selt korn sitt, og þar af leiðandi er framleiðsla kornbænda aðeins lítill hluti af innlendri eftirspurn.

Meðal flestra þjóða eru starfandi kornsamlög sem hafa tök á að geyma miklar birgðir af korni. Slík samlög auka fæðuöryggi til muna. Félög þessi kaupa korn frá bændum samkvæmt verðskrá, þurrka það og selja til kaupenda, t.d. til möltunar, fóður- eða matargerðar. Félögin eru ýmist í einkaeigu eða eru rekin sem samvinnufélög. Lager félaganna getur orðið stór og myndað tækifæri fyrir fjárfesta til að festa fé tímabundið í kornvöru á svokölluðum hrávörumörkuðum. Ekkert kornsamlag er starfrækt á Íslandi og því er um markaðsbrest að ræða, enda er eftirspurn eftir vörunni mikil en framboðið lítið sem ekkert. Þetta mætti bera saman við aðstæður þar sem íslensk mjólkur- og kjötframleiðsla hefði ekki sláturfélög og mjólkursamlög til að kaupa og vinna vörur bænda.

Nauðsynlegt er að ríkið framkvæmi fýsileikagreiningu á eflingu kornmarkaðar með stofnun íslensks kornsamlags.

Í slíkri greiningu þyrfti að kanna áhuga bænda til verkefnisins, mögulega staðsetningu, kostnað við uppbyggingu, möguleg rekstrar- og viðskiptaform, eignarhald, sölumöguleika og fleira, ásamt hefðbundnum áhættumatsgreiningum. Mikilvægt væri að leita ráðgjafar frá erlendum aðilum sem þekkja til slíkrar starfsemi. Fordæmi eru fyrir þessari leið en ríkið hefur áður komið að skipulagningu og lagasetningu um afurðasölu bænda til hagsbóta fyrir almenning og bændur. Að okkar mati er þetta mál mikilvægt fyrir þjóðaröryggi og skref til aðlögunar íslensks landbúnaðar að loftslagsbreytingum. Undirritaðir hafa sent minnisblað til matvælaráðherra um mál þetta.

 

Helgi Eyleifur Þorvaldsson,
aðjúnkt / brautarstjóri í búfræði LbhÍ

Hrannar Smári Hilmarsson,
tilraunastjóri í jarðrækt LbhÍ

Egill Gautason,
doktorsnemi í kynbótafræðum við Háskólann í Árósum

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna
Fréttir 1. október 2026

Magnús skipaður forstjóri Stofununnar atvinnuveganna

Magnús Kristjánsson hefur verið skipaður í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuve...

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum
Fréttir 30. september 2026

First Water tvöfaldar framleiðslugetu með framkvæmdum

First Water og Ístak hafa undirritað samning um umfangsmiklar byggingarframkvæmd...

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir
Fréttir 30. september 2026

Blóðmerahald fellur undir reglur um dýratilraunir

EFTA-dómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr fylfullum hrys...

Reglugerð gefin út
Fréttir 30. september 2026

Reglugerð gefin út

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur gefið út reglugerð um kortlagningu ...

Játar innbrot í eldisbú
Fréttir 30. september 2026

Játar innbrot í eldisbú

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað á sig innbrot og eig...

Minni kornstuðningur  en áætlað var
Fréttir 30. september 2026

Minni kornstuðningur en áætlað var

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár verður framlag stjórnvalda til stuðnin...

Vilja stytta bilið frá býli að borði
Fréttir 29. september 2026

Vilja stytta bilið frá býli að borði

Nýundirritaður þriggja ára samstarfssamningur á milli Landbúnaðarháskóla Íslands...

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun
Fréttir 29. september 2026

Fjölþjóðleg fjölskylduræktun

Uppskera er verkefni á vegum GETA-samtakanna þar sem fjölskyldur fá ræktunarreit...