Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Berglind Ásgeirdóttir, skrúðgarðyrkjumeistari og formaður Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga.
Berglind Ásgeirdóttir, skrúðgarðyrkjumeistari og formaður Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga.
Lesendarýni 22. febrúar 2021

Hvar á garðyrkjunámið heima?

Höfundur: Berglind Ásgeirdóttir

Tæplega tvö ár eru nú liðin frá því að hagsmunafélög garðyrkju á Íslandi óskuðu formlega eftir því að samráð yrði haft um stefnu, mótun og styrkingu starfsmenntanáms í garðyrkju. Tryggja þyrfti framtíð námsins, án togstreitu milli skólastiga og að framtíðarsýn yrði skýr og fagleg. 

 Ákvarðanir teknar í raunverulegu samráði við þá sem starfa við fagið, enda er það þar sem nemendur fara til verknáms og til starfa að námi loknu.

Í desember 2020 var fundi fulltrúa Mennta- og menningarmálaráðuneytis með hagsmunaaðilum aflýst með innan við klukkustundar fyrirvara, óskað eftir  þolinmæði og tíma. Til hvers? 

Nú berast óljósar fréttir af tilfærslu starfsmenntanáms í garðyrkju frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ)  til Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu) og enn og aftur er aðkoma eða samráð við atvinnulífið ekkert. Erindum um samráð og óskum um fundi er einfaldlega ekki svarað.  

Það er enn óljóst hvort eina aðstaða á landinu, sem er sérstaklega útbúin og byggð til að þjóna starfsmenntanámi í garðyrkju fylgi náminu til FSu eða hvort LBHÍ eigni sér húsnæðið og landið sem fylgdi garðyrkjunáminu við sameiningu skólanna á sínum tíma. Aðstaða sem var að stórum hluta gjöf til að starfrækja þar garðyrkjunám. Aðstaða sem er m.a. byggð upp af fjárstyrkjum frá garðyrkjubændum og öðrum velunnurum garðyrkjuskólans. Á garðyrkjunám á Íslandi að vera heimilislaust?

Garðyrkjunámið er kannski ekki stórt eða merkilegt í huga mennta- og menningarmálaráðuneytisins en á hvaða grunni á að byggja mikilvæg mál eins og hringrásar hagkerfi, græna innviði, kolefnisbindingu og fæðuöryggi í landinu?   

Garðyrkjuskólinn er fullkomlega vannýtt auðlind sem þarf að byggja upp og þróa til að þetta sérhæfða og brothætta nám fái að stækka og blómstra í takt við tíðaranda samfélagsins og stóraukna þörf fyrir kunnáttu á sviði ræktunar og umhverfismála.  

Ef ætlunin er að byggja upp öflugt samfélag sem hefur þekkingu og reynslu til þess að standa að rannsóknum og nýsköpun í garðyrkju þarf fyrst og fremst að sinna grunnnáminu af kostgæfni og breikka þar með þann grunn sem hægt er að byggja ofan á.  Það er til lítils að tala um nýsköpun og rannsóknir á sviði garðyrkju ef grunnnáminu er bolað í burtu.

Hvað verður um títtnefndar rannsóknir og nýsköpun ef enginn kann raunverulega að rækta?

Eðlilega er mikilvægt að halda áfram garðyrkjurannsóknum eins og var einnig áður en Garðyrkjuskólinn var sameinaður LbhÍ.  Þær rannsóknir var í góðu samstarfi við atvinnulíf garðyrkjunnar.  Það er auðvelt er að leita samstarfs og útfæra það með mörgum mennta- og rannsóknastofnunum innan lands og utan eftir því hvað hæfir hverju verkefni. Ekki verður séð að LbhÍ verði endilega ákjósanlegasti samstarfsaðilinn um þau verkefni. 

Fjölmörg dæmi eru fyrir árangursríku samstarfi Garðyrkjuskólans við ýmsa aðila. Um árabil var t.d. rekið  eitt fræðasetra Háskóla Íslands á Reykjum þar sem 1-2 starfsmenn voru með aðstöðu og unnu að sínum rannsóknum. Það fræðasetur var stofnað áður en Garðyrkjuskólinn rann inn í LbhÍ.  

Starfsfólk garðyrkjubrauta er byrjað að týnast í burtu, mannauður sem er nú þegar komin að þolmörkum og ljóst að einstök þekking, reynsla og færni mun tapast ef ekki verður gengið hratt og örugglega til verks.

Hver er raunverulegur vilji ráðherra til garðyrkjunámsins?  Hvers vegna er atvinnulífið hundsað? 

Hvenær kemur að því að kerfið þjóni þörfum fagsins en ekki þörfum kerfisins?

Hversu lengi enn á að fjalla um starfsmenntanám í garðyrkju án aðkomu þeirra sem hafa menntast í faginu eða þar starfa? 

Við sem störfum á vettvangi garðyrkju óskum enn og aftur eftir samráði ráðuneytis til að þjóna sem best hagsmunum garðyrkjunámsins og þörfum, nemenda og atvinnulífsins. 

Berglind Ásgeirdóttir, skrúðgarðyrkjumeistari og formaður Samtaka garðyrkju- og umhverfisstjóra sveitarfélaga.

Skylt efni: Garðyrkjuskólinn

Varað við veikingu Hólastaðar og Háskólans
Fréttir 16. mars 2026

Varað við veikingu Hólastaðar og Háskólans

Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum lýstu áhyggjum sínum a...

Ávinningur af Matvælasjóði
Fréttir 16. mars 2026

Ávinningur af Matvælasjóði

Í úttekt Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) kemur fram a Matvælasjóð...

Ólafur Þórisson í formannsframboð
Fréttir 16. mars 2026

Ólafur Þórisson í formannsframboð

Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði
Fréttir 16. mars 2026

Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði 80 milljónum króna til 42 verkefna sem fela í...

Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt
Fréttir 16. mars 2026

Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt

Rekstrarafkoma garðyrkjubænda versnaði nokkuð á árinu 2024. Þetta kemur fram í n...

Varar við því að samþykkja frjálst flæði lifandi dýra
Fréttir 16. mars 2026

Varar við því að samþykkja frjálst flæði lifandi dýra

Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir, varar eindregið við því að Íslan...

Axell vill halda formennsku áfram
Fréttir 16. mars 2026

Axell vill halda formennsku áfram

Axel Sæland gefur kost á sér til áframhaldandi formennsku í garðyrkjudeild Bænda...

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri
Fréttir 14. mars 2026

Nýsköpunarvinnustofa á Hvanneyri

Dagana 16.-17. mars næstkomandi verður nýsköpunarvinnustofa í Landbúnaðarháskóla...