Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hekluð karfa
Hannyrðahornið 26. febrúar 2020

Hekluð karfa

Höfundur: Handverkskúnst

Hvernig væri að hekla sér körfur undir hekl- og prjónaverkefnin? Eða skella hekluðum körfum inn á bað, í eldhúsið eða bústaðinn.

Þessar skemmtilegu körfur eru heklaðar Drops Eskimo sem er gróft garn, notuð er stór nál og því fljótheklaðar. Drops Eskimo er á 30% afslætti hjá okkur í Handverkskúnst allan febrúar, er fáanlegt í yfir 50 litbrigðum og hentar vel til þæfingar.

Uppskriftina er einnig að finna á vef Garnstudio og er hún þar í tveimur stærðum.

Stærð: Þvermál ca 30 cm, hæð ca 17 cm.
Garn: Drops Eskimo, fæst á www.garn.is
- Beige nr. 48: 250 g
- Lime nr. 35: 100 g

Heklunál: 6 mm
Heklfesta: 12 stuðlar og 6 umferðir = 10 x 10 cm.
Mynstur nr. ee-550.

Hekl leiðbeiningar: Í byrjun hverrar umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll, umf endar á 1 kl í 1. ll frá byrjun umf. Í byrjun hverrar umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll, umf endar á kl í 3. ll frá byrjun umf.
Skammstafanir á hekli: ll – loftlykkja, kl – keðjulykkja, fl – fastalykkja, st - stuðull

Uppskriftin:
Stykkið er heklað í hring. Byrjað er á að hekla botninn.

Með beige lit, heklið 2 ll.

1. umf: Heklið 6 fl í 2. ll frá heklunálinni – MUNIÐ heklleiðbeiningar.
2. umf: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
3. umf: Heklið *1 fl í næstu fl, heklið 2 fl í næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 18 fl.
Munið að passa upp á heklfestuna.
4. umf: Heklið *1 fl í næstu 2 fl, heklið 2 fl í næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 24 fl.
5. umf: Heklið *1 fl í næstu 3 fl, heklið 2 fl í næstu fl*, endurtakið frá *-* út umf = 30 fl.
6-16. umf: Haldið áfram að auka út um 6 fl í hverri umf með því að hekla 1 fl fleiri fyrir hverja útaukningu = 96 fl í umf.

Heklið nú körfuna þannig:
1. umf: Heklið 1 st í hverja fl – MUNIÐ heklleiðbeiningar = 96 st.
2. umf: Heklið 1 ll, *1 frambrugðinn st í kringum næstu 4 st, 1 afturbrugðinn st í kringum næstu 4 st*, endurtakið frá *-* út umf.
3. umf: Heklið eins og í umf 2.
4. umf: Heklið 1 ll, *1 afturbrugðinn st í kringum næstu 4 st, 1 frambrugðinn st í kringum næstu 4 st *, endurtakið frá *-* út umf.
5. umf: Heklið eins og í umf 4.

Endurtakið umf 2-5 einu sinni til viðbótar. Skiptið um lit. Heklið með lime lit eina endurtekningu til viðbótar (= 4 umferðir), þá ætti karfan að mælast ca 16 cm á hæð.

Síðasta umferðin á körfunni er kantur, þá er heklað 1 fl í hvern st og er aðeins heklað í aftari hluta lykkjunnar


Heklkveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is

Segja blekkingum beitt í tali um aðildarumsókn
Fréttir 17. mars 2026

Segja blekkingum beitt í tali um aðildarumsókn

Frummælendur á fundi samtkanna Til vinstri við ESB í Tryggvaskála á Selfossi á s...

Nýr vefblaðamaður
Fréttir 17. mars 2026

Nýr vefblaðamaður

Katrín Lilja Jónsdóttir hefur tekið til starfa sem vefblaðamaður hjá Bændablaðin...

300 milljóna uppgræðsla
Fréttir 17. mars 2026

300 milljóna uppgræðsla

Garðar Þorfinnsson og Hreinn Óskarsson frá Landi og skógi (LOGS) mættu nýlega á ...

Hertar fitur í ís
Fréttir 17. mars 2026

Hertar fitur í ís

Hert kókosfita og sykur eru aðalhráefnin í Mjúkís frá Kjör ís og smjör og hvítur...

Opnun skrifstofuseturs
Fréttir 17. mars 2026

Opnun skrifstofuseturs

Skrifstofusetur víðs vegar um land þjóna aukinni þörf fyrir vinnurými þeirra er ...

Vinnsluferillinn ein samfella
Fréttir 17. mars 2026

Vinnsluferillinn ein samfella

Breytingar voru nýlega gerðar á lögum um verndar- og orku- nýtingaráætlun og raf...

Ákveðnir veikleikar í eftirliti
Fréttir 17. mars 2026

Ákveðnir veikleikar í eftirliti

Ákveðnir veikleikar eru í eftirliti með framleiðslu á ávöxtum og grænmeti hér á ...

Framkvæmdir geta hafist án þess að eignarnámsferli sé lokið
Fréttir 17. mars 2026

Framkvæmdir geta hafist án þess að eignarnámsferli sé lokið

Á Iðnþingi 2026 sem haldið var 5. mars sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-,...