Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
„Ég er bjartsýn á sumarið, ég held að margir verði á ferðinni hér norðan heiða og leggi leið sína inn í Eyjafjörð,“ segir María Pálsdóttir, eigandi Hælisins, seturs um sögu berklanna. Myndin er tekin við opnun þess.
„Ég er bjartsýn á sumarið, ég held að margir verði á ferðinni hér norðan heiða og leggi leið sína inn í Eyjafjörð,“ segir María Pálsdóttir, eigandi Hælisins, seturs um sögu berklanna. Myndin er tekin við opnun þess.
Mynd / MÞÞ
Líf og starf 22. júní 2022

Heimsóknir skólahópa á Kristnes í Eyjafjarðarsveit

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir

„Viðbrögðin hafa verið mjög góð og því hef ég fullan hug á að halda þessu áfram,“ segir María Pálsdóttir, eigandi Hælisins, seturs um sögu berklanna, á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.

María tók á móti skólahópum á liðnu vori og gaf börnunum færi á að kynnast sögu berklanna sem áður fyrr lagði marga að velli. Hún fékk styrk frá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra vegna heimsóknanna.

„Það er dágóður hópur sem farið hefur hér í gegn og ég heyri ekki annað en að allir séu ánægðir með heimsóknina,“ segir María. Alls hafa 10 grunnskólar á svæðinu nýtt sér boð Maríu um heimsókn á Hælið, allir sjö grunnskólarnir á Akureyri, Þelamerkurskóli, Hrafnagilsskóli og Grenivíkurskóli.

Skiptir upp í þrjá hópa 
Sólböð voru áður fyrr stunduð í grunnskólum landsins í þeim tilgangi að styrkja D-vítamínbúskap líkamans. Sólbaðsstofur voru bæði á Vífilsstöðum og Kristneshæli. Hér prófa krakkarnir að máta gleraugun sem notuð voru.

Fyrirkomulagið er þaulskipulagt og gengur smurt upp, segir María, en hverjum hóp er skipt upp í þrjá minni hópa. Einn fer í kynnisferð um setrið og fær innsýn í sögu berklanna hér á landi, á meðan er annar hópur á flötinni við Kristnesspítala í leikjum og hópefli og einn hópur fer í skógargöngu um Reykhússkóg ofan við Hælið.

Einn starfsmaður fylgir hverjum hóp, þannig að þrjá þarf til að taka á móti hverjum skólahóp.

María segir að hún hafi fullan hug á að halda þessu starfi áfram og vonar að til þess fáist styrkur, grunnskólarnir sjálfir hafi ekki úr miklu fé að spila til að nýta í fræðsluferðir af þessu tagi.

Bjartsýn á sumarið

„Ég er bjartsýn á sumarið, ég held að margir verði á ferðinni hér norðan heiða og leggi leið sína inn í Eyjafjörð,“ segir María.

Sumaropnun Hælisins hefst um miðjan júní og verður opið alla daga frá 13 til 18 fram á haustið. Skógarböðin, sem opnuð voru nýlega, segir hún án vafa munu laða marga að, auk þess sem ýmislegt áhugavert sé í boði í sveitarfélaginu. María telur ekki ólíklegt að hún muni bjóða upp á viðburði í sumar, tónleika eða annað sem lífgar upp á tilveruna

Skylt efni: berklar

Landnámssetrið 20 ára
Fréttir 20. maí 2026

Landnámssetrið 20 ára

Miðvikudaginn 13. maí eru 20 ár liðin frá opnun Landnámssetursins í Borgarnesi o...

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir
Fréttir 20. maí 2026

Afréttamálafélags Flóa og Skeiða – fyrstu heiðursfélagarnir heiðraðir

Afréttamálafélag Flóa og Skeiða, sem er 73 ára gamalt félag, gerði á aðalfundi s...

Norðurslóðir hitna hraðast
Fréttir 19. maí 2026

Norðurslóðir hitna hraðast

Evrópa er sú heimsálfa sem hitnar hraðast og hitabylgjur teygja sig úr Miðjarðar...

Norðmenn geti ekki reitt  sig eingöngu á fisk
Fréttir 19. maí 2026

Norðmenn geti ekki reitt sig eingöngu á fisk

Þrátt fyrir að Noregur sé ein stærsta fiskveiðiþjóð heims er þjóðin ekki í þeirr...

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús
Fréttir 19. maí 2026

Sláturfélagið byggir nýtt stórgripasláturhús

Sláturfélag Suðurlands (SS) hefur ákveðið að byggja nýtt stórgripasláturhús við ...

Umhverfisviðurkenning veitt fyrir framúrskarandi störf
Fréttir 19. maí 2026

Umhverfisviðurkenning veitt fyrir framúrskarandi störf

Fyrirtækin Humble og Krónan hlutu á dögunum Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu um...

Verðlaunuð fyrir kynbótahrút
Fréttir 19. maí 2026

Verðlaunuð fyrir kynbótahrút

Fanney Ólöf Lárusdóttir og Sverrir Gíslason á bænum Kirkjubæjarklaustri II fengu...

Danir glíma við gamlar syndir  í vatnsverndarmálum
Fréttir 19. maí 2026

Danir glíma við gamlar syndir í vatnsverndarmálum

Vatnsverndarmál voru mikið til umræðu fyrir síðustu þingkosningar í Danmörku, en...