Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hefur bara komið á Vestfirðina á Íslandi, aldrei neitt annað, hvað þá til Vestmannaeyja eða útlanda
Mynd / MHH
Viðtal 8. október 2019

Hefur bara komið á Vestfirðina á Íslandi, aldrei neitt annað, hvað þá til Vestmannaeyja eða útlanda

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson
Guðmunda Tyrfingsdóttir, bóndi á bænum Lækjartúni í Ásahreppi, er mögnuð kona sem kallar ekki allt ömmu sína þegar um búskap er að ræða. Hún er ein af tíu systkinum, átta þeirra eru á lífi í dag. Guðmunda, sem er 87 ára, hefur alltaf búið ein með sínar skepnur á bæ sínum, sem er í Ásahreppi. 
 
Tímamót urðu í lífi Guðmundu í síðasta mánuði þegar hún seldi kýrnar sínar níu og hætti þar með mjólkur­framleiðslu. Hún ætlar að vera áfram með kálfa, kindur, hænur og hross, eða á meðan heilsan leyfir. Blaðamaður settist niður með Guðmundu og fór yfir það helsta með henni sem á hennar daga hefur drifið í gegnum árin.
 
Tók við búskapnum 1978
 
Guðmunda er fædd á Herríðarhóli í Ásahreppi en flutti síðan á fyrsta ári sínu í Lækjartún með foreldrum sínum. Hún tók við búskapnum af þeim 1978.
 
„Það hefur alla tíð verið kúa­búskapur á þessum bæ þangað til núna. Ég sakna þess óskaplega að geta ekki farið út í fjós og heilsað upp á kýrnar mínar og mjólkað þær en svona er þetta bara, lífið er alltaf að taka einhverjum breytingum,“ segir Guðmunda og bætir við: „Kýrnar hafa gefið mér mjög mikið um ævina enda hef ég haft mitt lifibrauð af þeim og yndi og ánægju, þær eru dásamlegar skepnur.“
Guðmunda og systkini hennar, átta þeirra eru á lífi í dag. Hún er lengst til hægri sitjandi. Mynd / Úr einkasafni Guðmundu
 
Kýr eru bráðgáfaðar
 
Guðmunda hefur fengið fjölda viður­kenninga fyrir góðan árangur í búskap sínum.
Guðmunda segir að kýr séu bráð­gáfaðar ef það er talað við þær og þannig látið að þeim, það hafi hún margoft séð. Hún náði mjög góðum árangri í mjólkurframleiðslu og var búið hennar oft eitt af afurðahæstu búum landsins.
 
„Ég vil færa mjólkurbúinu á Selfossi kærar þakkir fyrir sam­starfið í gegnum árin, þeir voru alltaf með góða eftirlitsmenn, sem reyndust mér vel,“ segir Guðmunda og sömu sögu er að segja með Fóðurblönduna, hún hefur alltaf verslað við það fyrirtæki og líkað vel.
 
Guðmunda Tyrfingsdóttir, 87 ára bóndi á bænum Lækjartún í Ásahreppi, sem líður hvergi annars staðar eins vel og heima í sveitinni. Mynd / MHH
 
Margir vilja jörðina
 
Guðmunda segist ekki hafa hugmynd um hvað verði um jörðina hennar þegar hennar dagar eru taldir. 
„Það eru margir sem vilja fá jörðina því þetta er stór og góð jörð. Þegar foreldrar mínir fluttu hingað bjuggu þau til að byrja með í torfkofa en það breyttist svo. Það var mjög gott að alast upp í Ásahreppnum og þetta er góð sveit með góðu fólki. Það var engin vélvæðing fyrstu árin, sem ég man eftir, það var bara notast við orf, ljá, hrífur og farið um allt á hestum,“ segir Guðmunda. Eftir að hún hóf búskap var hún oft með ungling í sveit og nokkrar vinnukonur frá útlöndum hafa verið  hjá henni, m.a. frá Þýskalandi og Frakklandi.
 
Hitaveitan breytti öllu
 
Guðmunda hefur upplifað miklar breytingar á öllu frá því að hún var barn og til dagsins í dag.
 
„Þetta er bara allt önnur veröld, það hefur svo mikið breyst. Fyrst vil ég nefna símann og rafmagnið en mesta breytingin var þegar við fengum hitaveitu, það er engin hætta á að það kvikni í út frá henni og hún er þægileg.“

5 myndir:

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands
Fréttir 9. apríl 2026

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands

Loðdýrabændur munu áfram starfa í sérstakri búgreinadeild, þó einungis eitt bú s...

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu
Fréttir 9. apríl 2026

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu

Deildarfundur garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands var haldinn á Búnaðarþingi í...

Hrönn nýr formaður skógarbænda
Fréttir 9. apríl 2026

Hrönn nýr formaður skógarbænda

Stjórnar og formannsskipti voru gerð í deild skógarbænda. Hrönn Guðmundsdóttir e...

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits
Fréttir 9. apríl 2026

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits

Deild alifuglabænda í Bændasamtökum Íslands sendi frá sér ályktun þar sem því va...

Nýr formaður hrossabænda
Fréttir 9. apríl 2026

Nýr formaður hrossabænda

Skeggrætt var á fundi hrossabænda á deildarfundi þeirra á Búnaðarþingi í lok mar...

Tollur fylgir ekki verðlagi
Fréttir 9. apríl 2026

Tollur fylgir ekki verðlagi

Á deildarfundi eggjabænda hjá Bændasamtökum Íslands lögðu fulltrúar áherslu á að...

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn
Fréttir 9. apríl 2026

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn

Landeldisbændur á Búnaðarþingi lögðu fram þrjár umfangsmiklar tillögur sem snert...

Gripagreiðslur til fjölgunar geita
Fréttir 9. apríl 2026

Gripagreiðslur til fjölgunar geita

Nýtt skýrsluhaldskerfi kemst brátt í gagnið og er mikilvægt til utanumhalds á st...