Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Hampurinn óx vel í hitabylgju sumarsins, Ragnar Þorsteinsson á Sýrnesi er hér innan um hampinn. 
Hampurinn óx vel í hitabylgju sumarsins, Ragnar Þorsteinsson á Sýrnesi er hér innan um hampinn. 
Mynd / Ragnar Þorsteinsson
Líf og starf 30. september 2021

Hampurinn óx hratt í hitabylgjunni

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

„Ég sáði smávegis af Finola hampi í fyrra á hálfgerðum berangri bara til að vita hvort þessi planta gæti lifað.

Það er skemmst frá því að segja að hann lifði, varð um einn metri á hæð og kom með dálítið af blómum,“ segir Ragnar Þorsteinsson, bóndi í Sýrnesi í Aðaldal.

Hann hélt áfram nú í byrjun sumars og 1. júní sáði hann í gamlan skjólgóðan kálblett og setti á hann skít. Í blettinn sáði hann hálfum fræskammti af Finola og smávegis af Felina 32 og síðan fullum skammti af Hvítsmára.

Sumarið byrjaði ekki vel hvað veðurfar varðar, frekar kalt var framan af og þegar vika var af júlí voru hæstu plöntur um það bil 7 sentímetrar á hæð. Þá hófst hitabylgjan fræga sem stóð vel fram í september og segir Ragnar að í ágústlok hafi Fiona plönturnar verið orðnar um 180 sentimetra háar og Felina plöntur um 260 sentímetrar á hæð.

„Blómvöxtur á Finola er mjög góður en lítill sem enginn á Felina en það er hávaxnara kvæmi, með svera stöngla. Við höfum mest verið að tína blóm sem verða nýtt í CBD olíur og te,“ segir Ragnar.

Þorsteinn Snævar Benediktsson, bruggari hjá Húsavík öl, prófaði að brugga bjór úr þeim hampi sem kom á markað í byrjun september og voru viðtökur góðar svo framhald verður á.

Kannar hvort uppskera verði næg svo ræktun standi undir sér

Þorsteinn Snævar Benediktsson, bruggari hjá Húsavík öl, prófaði að brugga bjór úr þeim hampi sem kom á markað í byrjun september og fékk það góðar viðtökur að framhald verður á þeirri framleiðslu. Ragnar segir að markaður fyrir hampafurðir sé á byrjunarreit og lítið sem ekkert sé til af tækjum í landinu til að koma uppskeru í hús.

„Við höfum boðið fólki að koma og kynnast hampinum og taka hann upp til eigin nota án endurgjalds og það hafa nokkrir nýtt sér það en grunnhugmyndin snerist fyrst og fremst um að kanna hvernig hampur kemst af í íslenskri veðráttu og hvort uppskera verði næg til þess að ræktun á honum geti staðið undir sér,“ segir Ragnar.

Hampurinn smellpassar í bjórframleiðsluna

Í  ágústlok voru Fiona plönturnar orðnar um 180 sentímetra háar og Felina plöntur um 260 sentímetrar á hæð.

Þorsteinn Snævar stofnaði Húsavík öl 2017 og hefur að sögn alla tíð verið forvitinn um náttúruna og leitast við að nýta alls kyns ber og jurtir, eins og kerfil, hvönn og blóðberg, í sínar afurðir með góðum árangri. Hann var því ekki lengi að hugsa sig um þegar Ragnar hafði samband og bauð honum að prófa að brugga úr hampi og stökk strax til. Bjórinn sem hann bruggaði er „West coast Ipa“ og fær bjórinn að njóta sín í bjórstíl þar sem beiskja, sæta og malt vinna saman.

„Að mínu mati smellpassar hampurinn þar inn með grösuga undirtóna og örlítið jurta-eftirbragð. Ég var örlítið smeykur við að olíurnar í hampinum hefðu neikvæð áhrif á froðumyndun en það varð ekki.

Ég er alsæll með þessa tilraun, bjórinn hefur fengið mjög góðar viðtökur svo það verður gaman að þróa þetta verkefni áfram,“ segir Þorsteinn.

Skylt efni: hampur | iðnaðarhampur

Plastbrúsar framleiddir úr endurunnu rúlluplasti
Fréttir 25. apríl 2025

Plastbrúsar framleiddir úr endurunnu rúlluplasti

Fyrirtækið Pure North í Hveragerði hefur nú náð að loka hringrás endurvinnslu á ...

Reykjavík Open 2025 – Friðriki til heiðurs
Fréttir 25. apríl 2025

Reykjavík Open 2025 – Friðriki til heiðurs

Reykjavík Open, sem hófst miðvikudaginn 9. apríl í Hörpu, hefur fyrir löngu fest...

Málstofa um áburðarmöguleika fiskeldisseyrunnar
Fréttir 24. apríl 2025

Málstofa um áburðarmöguleika fiskeldisseyrunnar

Fiskeldi á landi er vaxandi atvinnugrein, allnokkur stór eldisfyrirtæki eru í up...

Framleiðsla á Hrym í Búðardal
Fréttir 23. apríl 2025

Framleiðsla á Hrym í Búðardal

Fyrirhuguð er stórtæk framleiðsla á lerkiafbrigðinu Hrymi í Dalabyggð á næstu mi...

Skógur alltaf til bóta
Fréttir 22. apríl 2025

Skógur alltaf til bóta

Rannsóknir sýna að áhrif skógræktar á kolefnisforða jarðvegs eru nær alltaf orði...

Fjársjóður fjalla og fjarða
Fréttir 22. apríl 2025

Fjársjóður fjalla og fjarða

Tveggja daga íbúaþing, undir stjórn Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, fór fram í Rey...

Er plantað nóg?
Fréttir 16. apríl 2025

Er plantað nóg?

Skógarbændur gegna mikilvægu hlutverki við landgræðslu og skógrækt. Þannig er sk...

Trump skellir í lás
Fréttir 16. apríl 2025

Trump skellir í lás

Alþjóðasamfélagið er skekið eftir tollahækkanir Trumps í þarsíðustu viku.