Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Hálfdán Óskarsson, mjólkurfræðingur og samlagsstjóri Örnu, segir neytendur hafa staðið mjög vel með fyrirtækinu.
Hálfdán Óskarsson, mjólkurfræðingur og samlagsstjóri Örnu, segir neytendur hafa staðið mjög vel með fyrirtækinu.
Mynd / HKr.
Fréttir 30. september 2019

Um 40% Íslendinga segjast nota vörur Örnu að staðaldri

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík fær afbragðs­góða dóma meðal Íslendinga í sinni fyrstu mælingu á topplista fyrirtækja hjá MMR. Lendir Arna þar í fimmta sæti og segjast 40% Íslendinga nú nota vörur frá Örnu að staðaldri.
 
Annað árið í röð trónir Fjarðarkaup á toppi lista MMR yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með. Í með­mælavísitölu MMR eru 135 þjónustu- og framleiðslu­fyrirtæki. Staða mjólkurvinnslunnar Örnu vekur þó athygli en þetta er í fyrsta sinn sem fyrirtækið er mælt í könnun MMR. Skýst fyrirsætið beint í fimmta sæti listans. Það sem meira er þá segjast 40% Íslendinga nú nota vörur frá Örnu að staðaldri. 
Hálfdán Óskarsson, samlags­stjóri og einn af eigendum mjólkurvinnslunnar Örnu, segist afar þakklátur fyrir þessa upphefð. 
 
„Neytendur hafa líka staðið mjög vel með okkur.“ 
 
 
Hefur vaxið um 30–40% á ári
 
Arna hefur sérhæft sig í framleiðslu á laktósafríum mjólkurvörum, en fyrirtækið hóf framleiðslu í Bolungarvík í september 2013. 
 
„Það hefur verið mjög hraður vöxtur í framleiðslunni hjá okkur, eða um 30–40% á ári. Það getur tekið í að halda í við slíkan vaxtarhraða. Við höfum samt náð að leysa öll vandamál sem eru því samfara og fyrirtækið hefur skilað hagnaði síðustu þrjú árin,“ segir Hálfdán.  
 
Með 28 starfsmenn og nægt húsnæði til stækkunar
 
– Hvað eruð þið með margt starfsfólk í dag?
„Núna erum við 28 sem störfum hjá fyrirtækinu og flest í Bolungar­vík. Markaðsstjórinn, Arna, dóttir mín, er með aðsetur fyrir sunnan og svo erum við þar líka með sölumann.“
 
Framleiðsla Örnu er í húsnæði sem áður hýsti rækjuverksmiðju og þar áður frystihús Einars Guðfinnssonar. Hálfdán segir frábært að hafa getað byrjað í húsnæði sem var tómt og gaf mikla möguleika á að útvíkka starfsemina. Nú er búið að leggja undir starfsemina í Bolungarvík um 3.500 fermetra af um 5.000 sem mögulegt er að nýta undir sama þaki. Auk þess var gamla mjólkurstöðin á Ísafirði keypt og þar eru nú framleiddir laktósafríir ostar. 
 
„Við byrjuðum á osta­fram­leiðsl­unni í vor og hún hefur gengið fínt. Nú erum við að framleiða sex tegundir, mozarella, krydd­osta, rifosta og slíkt. Þá hefur gengið afskaplega vel sala á haustjógúrtinni okkar. Við fengum sjö tonn af aðalbláberjum sem voru komin í hús um miðjan ágúst. Við notuð þau í haustjógúrtina og framleiðum hana fram í miðjan nóvember. Þessi jógúrt hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur. Við hugsum þetta bara sem árstíðabundna vöru og aðalbláberin okkar eru afskaplega bragðgóð og mun bragðmeiri en innflutt ber,“ segir Hálfdán.  
 
 
Nýta nú mun meiri mjólk en bændur framleiða á Vestfjörðum
 
Stefnan var strax tekin á að reyna að framleiða úr allri mjólk sem framleidd væri á svæðinu. Á norðanverðum Vestfjörðum eru nú framleidd um 1,5 milljónir lítra af mjólk á ári og um 1 milljón lítra á sunnanverðum Vestfjörðum. 
 
„Arna mun líklega framleiða úr um fimm milljónum lítra á yfirstandandi ári. Við erum því að taka til okkar alla mjólk sem til fellur hjá bændum á Vestfjörðum og fáum það sem upp á vantar í Búðardal. Framleiðsla Örnu er því komin langt fram úr því sem framleitt er í fjórðungnum,“ segir Hálfdán. 
 
Kaupir alla mjólk í gegnum Auðhumlu
 
Arna kaupir alla mjólk til fram­leiðsl­unnar af Auðhumlu sem kaupir hana beint af bændum. MS sér hins vegar um að sækja mjólkina til bænda. Þeim hluta mjólkurinnar sem kemur frá bændum á norðan­verðum Vestfjörðum, þ.e. í Hattar­dal, Dýrafirði, Önundar­firði og Súgandafirði, er ekið beint til vinnslu í Bolungarvík. Við það sparast mikill akstur sem annars hefði verið til Búðardals. 
 
Mjólk sem bændur framleiða á sunnanverðum Vestfjörðum, um einni milljón lítrum, er enn sem komið er ekið til Búðardals og þaðan til Bolungarvíkur. Með tilkomu Dýrafjarðarganga, sem taka á í gagnið á næsta ári, skapast hins vegar möguleiki á að flytja mjólkina beint til Bolungarvíkur. 
 
„Ég myndi halda að það verði mun hagkvæmara að flytja mjólkina beint af Barðaströndinni til okkar við tilkoma jarðganganna,“ segir Hálfdán.
 
„Annars hefur Auðhumla staðið sig ágætlega í því að skaffa þá mjólk sem við höfum þurft. Fyrir mjólkina borgum við 11% hærra verð en grundvallarverðið er til bænda. Inni í því er flutningurinn á mjólkinni, sýnataka og annað.“ 
 
 Í dag er mjólk á norðanverðum Vestfjörðum framleidd á bæjunum Gemlufalli í Dýrafirði, Hóli og Vöðlum í Önundarfirði, Botni í Súgandafirði og í Hattardal við Álftafjörð. Þessir bæir framleiða um 1,5 milljónir lítra í ár. Bærinn Ós í Bolungarvík hætti framleiðslu á mjólk á síðastliðnu vori.
 
Fjarðarkaup og Arna toppa matvælageirann
 
Í fréttatilkynningu frá MMR segir, líkt og áður sagði, að Fjarðarkaup sé efst á lista íslenskra fyrirtækja í Meðmælakönnun MMR annað árið í röð. 
 
„Það er því greinilegt að verslun­in hafnfirska kann að höfða til viðskiptavina sinna en fyrirtækið hefur hvað eftir annað skákað stærri verslunarkeðjum og hefur verið á meðal 10 efstu fyrirtækja í meðmælavísitölunni frá því að mælingar hófust árið 2014.
 
Þá vekur sérstaka athygli að Arna rýkur upp lista ársins og hafnar í fimmta sæti en 40% svarenda könnunarinnar kváðust reglulega versla vörur fyrirtækisins, hærra hlutfall viðskiptavina en hjá nokkru öðru fyrirtæki á lista þeirra fimm efstu. Það er því nokkuð ljóst að landsmenn hafa heldur betur tekið vel við tilraunum þessarar ungu og efnilegu mjólkur­vinnslu til að hrista upp í mjólkurvöru­markaðn­um.“
 
Meðmælavísitalan byggir á Net Promoter Score aðferða­fræðinni en meðmæla­vísitalan byggir, líkt og nafnið bendir til, á mælingum á því hversu líklegir einstaklingar eru til að mæla með (eða hallmæla) fyrir­tækjum sem þau hafa átt viðskipti við. Niður­stöður mæling­anna gefa því góða tilfinningu fyrir stöðu fyrirtækja á íslenskum markaði, enda hafa rannsóknir sýnt að meðmæli eru stór áhrifa­þáttur í ákvörðunar­töku neytenda um hvort stofna eigi til viðskipta­sambands við fyrirtæki.
 
Smærri fyrirtæki skáka risunum
 
Þá segir að fleiri smærri fyrirtæki skáki risunum í atvinnugreinum sínum og má þar nefna nýliða Hreyfingar og Reebok Fitness sem koma með látum inn á lista efstu fyrirtækja meðmælavísitölunnar. 
„Það er greinilegt að líkamsrækt á stóran sess í hjörtum landsmanna en Hreyfing fylgir fast á hæla Fjarðarkaups í öðru sætinu og Reebok Fitness vermir það níunda.
 
Eldsneytissala Costco skorar hærra en verslun fyrirtækisins
 
Einnig er áhugavert að sjá breyti­leika í vinsældum eldsneytis- og smásöluþjónustu Costco en alþjóðlegi verslunarrisinn var þetta árið bæði mældur í atvinnu­greinum matvöru­verslana og olíu­félaga eftir að hafa einungis verið fyrir í flokki matvöru­verslana síðustu tvö ár. Nokkurn mun er að finna á velgengni fyrirtækisins í þessum tveimur flokkum en eldsneytisþjónusta Costco kemur sér fyrir í þriðja sæti meðmælavísitölunnar í ár, allnokkru ofar en smávöruverslun Costco sem fellur af lista tíu efstu fyrirtækja,“ segir í frétta­tilkynningu MMR. 
 

Skylt efni: Arna | MMR

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...

Jarðræktarmiðstöðin rís
Fréttir 22. apríl 2024

Jarðræktarmiðstöðin rís

Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands mun verða tilbúin árið 2027 gangi á...

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...