Stöðumat um ástand gróður- og jarðvegsauðlinda landsins
Bryndís Marteinsdóttir verkefnastjóri er viðmælandi Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Bryndís stýrir verkefni sem nefnt er GróLind en þar er verið að leggja lokahönd á fyrsta stöðumat á ástandi gróður- og jarðvegsauðlinda landsins. Stöðumatið byggir á rofkortlagningu Rala og Landgræðslunnar og vistgerðaflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands og verður kynnt opinberlega í næsta mánuði.
Bryndís segir að í þessu fyrsta mati verði fyrirliggjandi upplýsingar notaðar til að meta ástand auðlindanna. Þrátt fyrir að matið sé á grófum kvarða mun það gefa ágætis heildarmat á stöðunni. Bryndís segir líka að það bætist stöðugt við eigin gögn GróLindar og innan fárra ára verði hægt að koma fram með mun nákvæmari kort af ástandi auðlindanna.
Til að hægt sé að tengja landnýtingu við ástand auðlindanna er nauðsynlegt einnig að vita hvernig og hversu mikið land er nýtt. GróLind er að leggja lokahönd á kort sem sýnir mörk úthaga og afrétta og núverandi nýtingu þeirra til sauðfjárbeitar. Þessar upplýsingar verða kynntar samhliða stöðumatinu. Í framtíðinni verður svo kortlagt hvernig annar búpeningur en sauðfé nýtir landið. Um leið verður safnað upplýsingum um aðra landnýtingu.
GróLind hófst formlega í apríl árið 2017 með samningi á milli Landsamtaka sauðfjárbænda, Landgræðslu ríkisins, Bændasamtaka Íslands og nýsköpunar- og atvinnuvegaráðuneytisins. Frumkvæðið að GróLind kom frá Landssamtökum sauðfjárbænda.
Hlaðvarpsþáttur Landgræðslunnar er aðgengilegur hér í spilaranum undir og í öllum helstu streymisveitum.