Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Andri Björn Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Háræktar ehf.
Andri Björn Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Háræktar ehf.
Fréttir 4. mars 2019

Hátækniræktun innanhúss

Höfundur: Vilmundur Hansen
Hárækt ehf. er nýtt fyrirtæki í matjurtarækt sem sérhæfir sig í lóðréttri ræktun innanhúss [e. vertical farming]. Ræktuninni er stýrt þannig að skapaðar eru kjöraðstæður fyrir plönturnar allan ársins hring. Nýting á rými við lóðrétta ræktun er mjög góð og sparar því pláss. 
 
Undanfarin ár hefur færst í vöxt að salat, krydd og blaðplöntur séu ræktaðar við raflýsingu og við það sem er kallað lóðrétt ræktun á borðum sem staflað er hvert ofan við annað. Ræktun með þessu móti sparar pláss og ræktandinn hefur fullkomna stjórn á umhverfisaðstæðum sem viðkoma ræktuninni.  
 
Andri Björn Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Háræktar ehf., segist hafa farið að skoða möguleikann á að setja upp ræktun á matjurtum fyrir rúmlega tveimur árum og að það liggi mikil vinna að baki því að koma ræktuninni á laggirnar. 
 
Alltaf þörf fyrir góðan mat
 
„Ég er viðskiptafræðingur að mennt og hef starfað í fjármálageiranum í London og Sviss áður en ég flutti aftur heim fyrir um tveimur árum. Mig hefur lengi langað að hefja eigin rekstur og hef alltaf haft áhuga á mat og fylgst með því sem var að gerast á Íslandi utan frá. 
 
 
Mín skoðun er sú að Ísland hafi mikla sérstöðu í alþjóðlegu samhengi þegar horft er til framtíðarinnar, sérstaklega hvað varðar hreint vatn og græna orku sem við getum nýtt til dæmis í matvælaframleiðslu. Svo er þjóðin fámenn og oft sem tækninýjungar breiðast hratt út og fólk er jákvætt fyrir nýjungum. 
 
Heimurinn er að breytast, fólki er að fjölga hratt og við þurfum því að bæta hagkvæmni með því að finna leiðir til að fæða fleiri með sama plássi eða jafnvel minna. Það er og verður alltaf þörf fyrir matvæli og ekki síst hrein og góð matvæli sem auðveldlega má rækta hér á landi og ég tel að Ísland sé vel í stakk búið til að leiða sjálfbæra framleiðslu á matvælum,“ segir Andri. 
 
Hugmyndin kviknaði á veitingahúsi
 
„Hugmyndin að því að hefja lóðrétta ræktun kom í spjalli við félaga mína á veitingastað og þýskan vin minn sem hafði verið að skoða svipaða ræktun í Þýskalandi og Austurríki. Hugmynd sú kallast Auqapnonics þar sem er fiskeldi samhliða ræktuninni. Sjálfum finnst mér það ekki eins spennandi og ræktunin ein og sér og fór því að skoða hana og skoða hverjir hafa verið að gera hvað á Íslandi og annars staðar í heiminum. 
 
Fljótt á litið er vöxturinn í lóðréttri ræktun í dag mestur í Asíu þar sem landnýting skiptir miklu en Bandaríkin hafa líka verið að taka við sér og vöxturinn í lóðréttri ræktun hraður. Ég sá fljótlega að fyrirtæki í þessum geira eru að fá töluvert fjármagn til starfseminnar og mér þótti þetta strax áhugavert.“
 
Talsvert dýrt að starta ræktuninni
 
Húsnæðið sem Hárækt hefur til umráða er um 1000 fermetrar að grunnfleti en ræktunarflöturinn töluvert stærri, þar sem ræktað er á nokkrum hæðum og nýtingin á gólffletinum því mjög góð.
 
Hann vill ekki gefa upp hvað kostnaðurinn við uppsetningu aðstöðunnar hefur kostað en segir að það þurfi töluvert kapítal í að koma upp svona hátæknigróðurhúsi innanhúss. Hins vegar næst hagvæmni fram með betri nýtingu á landi, orkusparneytari lýsingu og full­kominni stýringu á umhverfi.
 
 
 
 
„Ég er þannig gerður að ég skoða vel það sem ég tek mér fyrir hendur og eftir að hafa reiknað dæmið fram og aftur var ég sannfærður um að svona ræktun gæti borgað sig. Auk mín og fjölskyldu minnar hefur Mata ehf. lagt fjármagn til verkefnisins enda með mikla reynslu í matvælageiranum og gott að fá þá inn.“ 
Enn að prófa okkur áfram
 
Ræktun hófst í lok desember síðastliðinn og að sögn Andra er hann enn að koma sér fyrir og prófa sig áfram. „Við erum enn í uppkeyrslu fasa og að prófa okkur áfram með tegundir og yrki til að rækta salat, krydd og það sem eru kallaðar sprettur. Ræktunin er því ekki komin í full afköst enn, þrátt fyrir það hafa allflestar tegundir sem við höfum prófað komið mjög vel út. 
 
Tækin sem notuð eru til ræktunarinnar eru að mestu leyti flutt inn enda að hluta til mjög sérhæfð. Í dag eru fjórir starfsmenn í fullu starfi hjá Hárækt að Andra meðtöldum og einum garðyrkjufræðingi og að hans sögn allir enn að læra inn á tæknina, ræktunina og allt ferlið í kringum reksturinn.
 
Ræktunarferlið að mestu leyti sjálfvirkt
 
„Ræktunarferlið er þannig að við ræktum innanhúss í hillum og í stýrðu umhverfi og lokuðu ræktunarrými þar sem plöntunum eru búnar kjöraðstæður til vaxtar allt árið um kring og eins alla daga. 
 
Eftir að fræjunum er sáð eru plönturnar ræktaðar í vatni og undir LED-ljósum þannig að það skín aldrei á þær sólarljós. Áburðargjöf er sjálfvirk í gegnum vökvunarvatnið sem er í hringrásarkerfi og því endurnýtt og ræktunin því að mestu leyti sjálfvirk þótt mannshöndin komi víða við í ferlinu. Við notum heldur ekki nein varnarefni til ræktunarinnar þannig að varan er alveg laus við allt slíkt. 
 
Hita-, rakastig og lýsing í hverri ræktunarhillu er sérstillt fyrir þá tegund sem er verið að rækta þar hverju sinni, sem gefur okkur því sveigjanleika til að rækta margar tegundir í einu.“
 
Góðar viðtökur
 
Andri segir að fyrstu plönturnar séu komnar í verslanir hjá Krónunni og að þær séu markaðssettar undir vörumerkinu VAXA. 
 
„Við erum þegar byrjaðir að dreifa á veitingastaði og stór eldhús í gegnum Mata og hafa viðbrögðin verið mjög góð.“
Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...

Grípa þarf tækifærin
Fréttir 26. mars 2024

Grípa þarf tækifærin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, telur að bændur eigi að leyfa sér að hor...