Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Grunnvatn í Bandaríkjunum er víða talið mengað af PFC efnum sem eru talin geta verið skaðleg heilsu manna. Mest menguðu svæðin eru í kringum athafnasvæði landhers og flughers, iðnaðarsvæði og æfingasvæði slökkviliða. Þaðan berst mengunin svo í grunnvatn.
Grunnvatn í Bandaríkjunum er víða talið mengað af PFC efnum sem eru talin geta verið skaðleg heilsu manna. Mest menguðu svæðin eru í kringum athafnasvæði landhers og flughers, iðnaðarsvæði og æfingasvæði slökkviliða. Þaðan berst mengunin svo í grunnvatn.
Fréttir 30. júní 2017

Efnamengað kranavatn hjá 15 milljónum Bandaríkjamanna

Höfundur: HKr.
Kranavatn hjá 15 milljónum manna í 27 ríkjum Bandaríkja­manna er mengað af eitruðum efnum sem einnig eru þekkt sem PFC og PFA. Þau eru m.a. talin geta valdið krabbameini, sjúkdómum í skjaldkirtli og veikingu á ónæmiskerfi manna.
 
Svæði þar sem PFC efni hafa fundist í drykkjarvatni eru merkt með rauðu. 
 
Þetta kemur m.a. fram í nýlegri tilkynningu EWG hópsins (The Environmental Working Group) sem er áhugamannasamtök um rannsóknir og aukna upplýsingagjöf um heilsusamlegra umhverfi fólks. Þau segja að neysla kranavatns í litlum mæli á þeim stöðum sem samtökin hafa kortlagt geti verið skaðleg fólki. 
„Það er merkilegt að ríkasta land heims geti ekki tryggt þegnum sínum öruggt drykkjarvatn sem hefur ekki langvarandi neikvæð áhrif á heilsu manna,“ segir Bill Walker,  sem er ein þeirra sem stendur að tilkynningunni. 
 
Hættuleg efni í matvælaumbúðum og á steikarpönnum
 
PFC efni hafa þá eiginleika að vera vatnshrindandi og fráhrindandi efni og er þess vegna mikið notað við framleiðslu á margvíslegum vörum. Það er m.a að finna í fráhrindandi húð á steikarpönnum, útivistarfatnaði, matvælaumbúðum og í eldvarnarkvoðu. Þessi efnasambönd eru útlistuð á ensku sem „PFASs, eða per- and polyfluoralkyl substances.“ Þá eru þau líka nefnd PFC sem stendur fyrir „perfluorinated chemicals“.
 
Almenningur þekkir vel eiginleika þessara efna í húðuðum steikarpönnum sem hindra viðloðun. Einnig í vatnshrindandi efnum í útivistarfatnaði, í gólfteppum sem hrinda frá sér óhreinindum, í pokum utan um örbylgjupopp og í margvíslegum öðrum umbúðum utan um matvæli. Þessi efni er oft einnig að finna í húðsnyrtivörum og ýmsum öðrum vörum. 
 
Lítið gert til að upplýsa fólk um hættuna
 
EWG samtökin og Northeastern University hafa kortlagt upplýsingar sem teknar eru úr opinberum gögnum  um útbreiðslu EPA mengunar frá verksmiðjum, herstöðvum flughersins, almennum flugvöllum og æfingasvæðum slökkviliða.  Þrátt fyrir gögn um aukinn fjölda tilvika sem sýna hættulega mengun af þessum toga, þá segja samtökin að engar reglur hafi verið settar um leyfilegt innihald þessara efna í drykkjarvatni. Þá séu 25 ár síðan Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (US EPA) hafi úrskurðað drykkjarvatn sem hættulegt samkvæmt lögum um öryggi drykkjarvatns. 
 
Mest mengun frá her og iðnaði
 
Samkvæmt kortlagningu EWG hefur PFA mengunin mælst mest frá sameiginlegri herstöð, landhers og flughers (Joint Base McGuire-Dix-Lakehurst ) nærri Trenton í New Jersey. Þar voru mæld 580.000 ppt gildi af PFA efnum í grunnvatni mælt (ppt = billjónustu hlutar í einingu). Í grunnvatni nærri stöðvum flughersins í Dover í Delawer mældust 270.000 einingar. 
 
Af 47 þekktum svæðum þar sem staðfest hefur verið PFA mengun eða grunur er um slíkt, eru 21 þeirra á vegum hersins og 20 eru iðnaðarsvæði. Þá eru 7 æfingasvæði slökkviliða. Á sumum svæðunum er um fjölþætta mengun eiturefna að ræða.  
 
Samkvæmt gögnum Sjúkdóma­varnarmiðstöðva Bandaríkjanna (Centers for Diescese Control and Preventation - CDC), þá hafa rannsóknir sýnt að nær allir íbúar landsins hafa eitthvað af PFC eða tengdum efnum í líkama sínum. 
 
Magn þess sem fannst í hóprannsókn á 2.094 einstaklingum sem gerð var á árunum 2003 til 2004 var þó ekki talið í þeim mæli að það hafi verið hættulegt viðkomandi fólki. Reyndar fundust fjögur afbrigði af PFC efnum í fólkinu, eða PFOS, PFOA, PFHxS og PFNA. Ekki kemur þó fram hvar hættumörkin liggja hvað varðar innihalda efnanna í blóði manna. 

Skylt efni: drykkjarvatn | mengun

Halla tekur upp Íslenskt staðfest
Fréttir 28. mars 2024

Halla tekur upp Íslenskt staðfest

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis ...

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands
Fréttir 27. mars 2024

Uppfærsla á stefnumörkun Bændasamtaka Íslands

Fjölmörg mál voru til afgreiðslu á nýliðnu Búnaðarþingi 2024, úr fimm nefndum, s...

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025
Fréttir 27. mars 2024

Endurnýting heimil til 1. nóvember 2025

Matvælaráðuneytið hefur tilkynnt um frestun á gildistöku banns við endurnýtingu ...

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi
Fréttir 27. mars 2024

Horfið frá framleiðslutengdum stuðningi

Fyrirkomulag landbúnaðarstuðningskerfis á Íslandi mun taka miklum breytingum ef ...

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst
Fréttir 26. mars 2024

Hyggur á slátrun í haust ef leyfi fæst

Fyrrverandi sláturhússtjóri á Vopnafirði ætlar ekki að láta deigan síga þrátt fy...

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal
Fréttir 26. mars 2024

Niðurskurði lokið á fé úr Blöndudal

Niðurskurður á sauðfé frá bæjunum Eiðsstöðum og Guðlaugsstöðum í Blöndudal fór f...

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga
Fréttir 26. mars 2024

Kornræktarfélag gengur í endurnýjun lífdaga

Kornræktarfélag Suðurlands verður endurvakið sem viðskiptavettvangur ræktenda og...

Grípa þarf tækifærin
Fréttir 26. mars 2024

Grípa þarf tækifærin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, telur að bændur eigi að leyfa sér að hor...