Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Jón Björn Hákonarson, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Fjarðabyggðar og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins.
Jón Björn Hákonarson, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Fjarðabyggðar og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins.
Fréttir 18. júlí 2019

Breyting á jarðalögum þolir enga bið

Höfundur: MÞÞ

Jón Björn Hákonarson, for­seti bæj­ar­stjórn­ar Fjarðabyggðar og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að breyta þurfi jarðalögum svo hægt sé að setja ákveðnar reglur varðandi eignahald á jörðum og að ekki verði hægt að selja auðlindir úr landi. Þetta kemur fram í grein sem Jón Björn ritar og birt er á vef Framsóknarflokksins. Hann segir málið ekki þola neina bið.

Jón Björn segir að mikil umræða hafi skapast í kjölfar uppkaupa bresks auðmanns á jörðum í Vopnafirði og Norður-Þingeyjarsýslu, „þar sem búið er að kaupa upp allt að því heilu laxveiðiárnar og vatnasvæði þeirra.“  Eðlilega hafi fylgt mikil gagnrýni á lagasetningu og þann ramma sem skapaður hefur verið vegna jarðakaupa á Íslandi í kjölfar breytinga á jarðalögum sem gerð voru í upphafi þessarar aldar.

Tæknileg öngstræti stjórnsýslunnar

Landi fylga oft ríkuleg hlunnindi og auðlindir, vatns- og malarréttindi, veiðihlunnindi, dún- og eggjatekja ásamt reka. Ekki síst megi svo nefna auðlindir sem felast í góðu ræktar- og beitilandi, sem sé ómetanlegt fyrir framtíð búskapar á Íslandi og sé forsenda matvælaöryggis þjóðarinnar.

Jón Björn segir því nauðsynlegt að styrkja þær stoðir sem snúa að lagasetningu vegna bújarða, það geti ekki lengur beðið í tæknilegum öngstrætum stjórnsýslunnar eins og verið hafi síðustu ár. Jarðalögum þurfi að breyta og bendir hann á að frændþjóðir okkar hafi stigið slík skref, fordæmin séu því fyrir hendi og nú þurfi verkin að tala þegar Alþingi komi saman á ný á haustdögum.

Sveitarfélög missa útsvarstekjur

Bendir Jón Björn í grein sinni á að ekki sé heldur eðlilegt að búið sé að rýra byggðir víða um land með þeim hætti að sveitarfélög hafi misst stóran hluta útsvarsstekna sinna vegna þess að stór hluti jarðanna sé í eigu fólks sem býr í öðrum sveitarfélögum eða erlendis og borgi ekki skatta til viðkomandi sveitarfélags.

„Þá um leið er líka búið að kippa und­an heilu sam­fé­lög­un­um grund­velli þess að byggð þar hald­ist áfram og sam­hjálp­ar­hug­sjón­in sem sveit­ir þurfa á að halda get­ur ekki þrif­ist vegna fá­menn­is,“ segir hann og bætir við að ólíðandi sé að heilu sveit­irn­ar á Íslandi séu með lög­heim­ili í London.

Grein Jón Björns: „Með lögum skal land tryggja“.

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...