Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Tími haustlaukanna
Á faglegum nótum 1. október 2018

Tími haustlaukanna

Höfundur: Vilmundur Hansen

Best er að setja haustlauka niður fyrir fyrstu frost, í september eða október, en ekkert mælir gegn því að setja þá niður síðar, eða svo lengi sem tíðin leyfir.

Margar laukjurtir þurfa að standa í freðnum jarðvegi í nokkrar vikur til þess að undirbúa sig fyrir vöxt að vori. Laukar þrífast best á þurrum stað í vel framræstum og sendnum jarðvegi. Flestar tegundir kjósa skjól og birtu en hátíðarliljur þola nokkurn raka og skugga.

Allar laukjurtirnar sem fjallað er um hér eru einkímblöðungar, að einni undanskilinni, vorboða sem er tvíkímblöðungur.

Einföld þumalfingursregla segir að setja skuli laukana niður sem nemur tvö- til þrefaldri hæð þeirra, og heldur dýpra í lausum jarðvegi. Hentugt bil á milli lauka er tvisvar sinnum þvermálið. Fallegast er að planta laukum þétt, milli 50 og 100 á fermetra, eða 10 til 15 saman í hnapp eftir stærð laukanna, þannig að þeir komi upp eins og stór blómvöndur. Best er að grafa holu í rétta dýpt með lítilli skóflu eða stinga fyrir laukunum með laukajárni og losa um jarðveginn. Gott er að setja mold sem blönduð er með lífrænum áburði, þangmjöli eða hænsnaskít í botninn og yfir laukana. Einnig má blanda eilitlu af tilbúnum áburði við moldina áður en hún er sett yfir þá. Þegar búið er að hylja laukana með góðri mold skal þjappa jarðveginn varlega og hylja hann með laufi eða trjákurli og vökva.

Við niðursetningu er gott að hafa í huga að mismunandi tegundir koma upp á mismunandi tímum og einnig er æskilegt að huga að því hvaða litir fara vel saman.

Haustlaukar þurfa litla umhirðu eftir að þeir eru settir niður. Ef þeir blómstra illa er ástæðan líklega sú að þeir standa í bleytu eða skugga.

Margar tegundir safna ekki nægum forða yfir sumarið til að blómstra árið eftir. Þetta á sérstaklega við um viðkvæmar tegundir, eins og hýasintur og keisarakrónu. Æskilegt er að endurnýja túlípana annað til þriðja hvert ár en viðkvæmum tegundum þarf að skipta út á hverju ári. Krókusar  og páskaliljur eða narsissur eru mjög harðgerðar ættkvíslir sem  blómgast  ár eftir ár. Leggháar tegundir geta þurft stuðning eða uppbindingu.

Laukjurtir þola illa köfnunarefnisríkan áburð þar sem hann eykur ofanjarðarvöxt á kostnað neðanjarðarhlutans. Kalí- og fosfóráburður hentar laukum betur þar sem hann eykur blómgun og frostþol.

Eftir blómgun á að klippa blómstöngulinn burt svo að plantan eyði ekki orku í að mynda fræ. Blöðin þurfa aftur á móti að sölna áður en þau eru klippt burt. Séu þau klippt of snemma nær laukurinn ekki að safna forða fyrir veturinn og blómgast ekki árið eftir. Mörgum finnst ljótt að sjá sölnuð blöð og er þeim hefur oft verið bent á að klippa helminginn burt og binda blöðin saman með teygju en slíkt er ekki ráðlegt vegna þess að það skerðir mjög vöxt og eftirþroska laukanna. Einnig má setja lauka niður í þar til gerðar körfur og má þá taka þá upp og flytja annað eftir blómgun.

Skylt efni: Haustlaukar

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...