Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Uppruni helstu nytjaplantna heims. Mynd / blog.ciat.cgiar.org/origin-of-crops°1
Uppruni helstu nytjaplantna heims. Mynd / blog.ciat.cgiar.org/origin-of-crops°1
Á faglegum nótum 18. desember 2020

Plöntur á ferð og flugi

Höfundur: Vilmundur Hansen

Í þessari hundruðustu og fyrstu grein um helstu nytjaplöntur heims er ætlunin að breyta aðeins til. Í stað þess að fjalla um eina tegund verður efni fyrri greina dregið saman að hluta og fjallað um flutning planta milli staða og hvaða áhrif slíkt hefur haft.

Með ræktun og landbúnaði hefur mannkynið breytt yfirborði jarðar og í dag eru um 12% af nýtanlegu þurrlendi á yfirborði jarðar notað til matjurtaframleiðslu og 22% sem beitiland. Nýtingarhlutfall lands til landbúnaðar er misjafnt eftir heimsálfum og löndum.

Uppruni og náttúruleg útbreiðsla plantna

Allar plöntur eiga sér upprunastað þar sem þær vaxa og dafna við náttúrulegar aðstæður og langflestar plöntur eru fastar í jörðinni og því lítið á ferð. Náttúruleg útbreiðsla gróðurs er því bundin við að fræ eða plöntuhlutar berist milli staða með vindi, vatni, fuglum eða öðrum dýrum. Létt fræ geta borist langar leiðir með vindi og til að auka möguleika sína hafa fræ, eins og fífla, þróað með sér svifhár. Fuglar sem borða aldin og ekki síst ber skíta fræjunum mislangt frá móðurplöntunni og skilja þau eftir í áburðarhrauk. Fræ með krókum festast í feld grasbíta og annarra dýra og berast með þeim þar til þau falla af. Auk þess sem fræ geta borist langar leiðir með straumvatni og milli heimsálfa með hafstraumum. Plöntuhlutar sem brotna af, eins og greinar, geta einnig skotið rótum en það gerist sjaldnast langt frá móðurplöntunni.

Kornvinnsla, plæging og trjáfelling í Egyptalandi til forna samkvæmt veggmynd sem fannst í grafhýsi frá 15. öld fyrir Krist.

Engin lífvera kemst nálægt því að vera jafn afkastamikil og maðurinn við að flytja plöntur á milli staða og dreifa þeim um heiminn.

Ræktun og reynsla

Plöntur eru undirstaða lífs allra dýra á jörðinni. Ekki eingöngu vegna þess að þær eru undirstöðufæða heldur einnig vegna þess að þær framleiða súrefni sem öllum lífverum er nauðsynlegt. Forverar manna söfnuðu plöntum í náttúrunni til átu en landbúnaðarbyltingin grundvallaðist á því að menn fóru að rækta korn og í kjölfar þess hófst myndun borga, verkaskipting varð möguleg vegna umfram fæðu og nútímamenning varð til.

Einhvers staðar segir að maðurinn hafa lært að þekkja ætar plöntur frá óætum með því að fylgjast með fæðuvali grasbíta. Ósennilegt er að fullyrðingin sé rétt og mun líklegra að maðurinn hafa lært að þekkja ætar plöntur samfara þróun. Smám saman með aukinni ræktun hefur manninum tekist að auka uppskeruna með kynbótum og í seinni tíð með aukinni tækni og erfðabreytingum.

Plöntur eru órjúfanlegur hluti af menningunni og líklega helsti drifkraftur hennar.

Með aukinni ræktun hefur dregið úr líffræðilegri fjölbreytni, bæði hvað varðar plöntur og dýr. Plöntur í ræktun verða sífellt einsleitari og svokallaður „monocultur“ þar sem ein tegund af sama yrki er ræktuð á stóru svæði eða svæðum algengari. Þess konar ræktun hefur leitt til þess að flóra heimsins verður æ fábrotnari og plöntutegundum í útrýmingarhættu eða teljast aldauðar fjölgar með hverju árinu.

Reykelsistré, bambus og bananar

Elsta ritaða frásögn um flutning plantna milli staða í einhverjum mæli er að finna í myndletri frá Egyptalandi frá um 1500 fyrir Krist. Þar segir frá því að egypska drottningin Hatshepsut, uppi 1507 til 1458, sem var annar kvenfaraó sem sögur fara af og sögð fremst hefðarkvenna í sinni tíð hafi látið sækja fjölda ilmtrjáa um langan veg og gróðursetja við höll sína nærri Luxor.

Reykelsistré, Boswellia sacra, í eyðimörk.

Sagan, sem er að finna á egypskri veggmynd, segir að Hatshepsut hafi sent flota fimm skipa, sjötíu feta löng, með 210 manna áhöfn auk fjölda minni fylgdarskipa út á Rauðahaf og til landsins Punt sem er suðurhluti Eritreu eða Eþíópíu í dag. Tilgangurinn var að sækja 31 stór reykelsistré, Boswellia sacra, eða frankincense eins og tegundin kallast á ensku. Leiðangurinn tók tvö ár og til að hægt væri að flytja trén þurfti að grafa þau varlega upp og vefja rótarhnausa þeirra í dúk svo að mold héldist á rótunum og hægt væri að vökva trén á heimleiðinni.

Hér er eflaust um sömu tegund af tré að ræða og reykelsið sem talað er um víða í bókum Biblíunnar og í Matteusarguðspjall 2:10-11 er unnið úr. „Þegar þeir sáu stjörnuna glöddust þeir harla mjög, þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru.“

Frá þriðju öld fyrir Krist eru vísbendingar um að Alexander mikli, uppi 356 til 323, hafi haft með sér bambus- og bananaplöntur frá Indlandi til Makedóníu.

Korn, krydd, vín og vaðmál

Verslun með plöntuafurðir eins og korn, krydd, vín og vaðmál á sér langa sögu, hvort sem varan var flutt með úlföldum eftir silkileiðinni frá Austurlöndum fjær eða yfir Sahara. Það sem einkenndi þessa verslun og hélt verðinu háu var að uppruna afurðanna var haldið leyndum og oft spunnust ævintýralegar frásagnir um löndin sem þær komu frá.

Sé mark takandi á Grikkjanum Heródótus frá Halíkarnassus, uppi 484 til 425 f. Kr. og titlaður sem faðir sagnfræðinnar, þá vissi enginn hvar kanill óx eða var ræktaður en Heródótus vissi samt að kanilsins var gætt af stórum fuglum og að söfnun hans fór fram með furðulegum hætti. Í íslenskri þýðingu Stefáns Steinssonar á Rannsóknum Heródótusar segir um uppruna og söfnun kanils: „Hvaðan hann kemur og í hvaða landi hann er ræktaður kunna menn ekki skil á. Þó virðist í orði kveðnu svo sem hann blómgist, segja einhverjir, á lendum þar sem Díonýsus óx úr grasi. Stórir og miklir fuglar eru sagðir bera með sér stöngla þá sem við lærðum af Föníkum að kalla kanil. Fuglarnir bera þá upp í hreiður sem er kleprað með leðju utan á þverhnípta kletta. Þeir eru öldungis ókleifir mönnum. Við þessu eiga arabar kænskubragð. Þeir bryðja dauða uxa, asna og fleiri burðardýr í gróf spað, flytja á vettvang og leggja nærri klettunum. Sjálfir færa þeir sig langt frá. Fuglarnir fljúga ofan og færa kjötið upp í hreiðrin. Þau valda ekki þvílíkum þunga og falla til jarðar. Í því koma arabarnir og tína þau. Þannig er kanil safnað og hefur flust með þeim til annarra landa.“

Landafundirnir miklu

Eftir að Evrópumenn hófu siglingar um öll heimsins höf í leit að nýjum siglingaleiðum til að versla krydd og landafundina í vestri varð bylting í flutningi á plöntum milli heimsálfa. Þjóðir háðu blóðugar styrjaldir og engum var þyrmt til að ná yfirráðum yfir landi þar sem krydd óx eða þá að hægt var að rækta ábatasamar nytjaplöntur.

Saga viðskipta með múskat er til dæmis blóði drifin og ásókn í kryddið og hagnaðurinn sem því fylgdi leiddi til þjóðarmorðs á Banda-eyjum árið 1621. Hollendingar útrýmdu innfæddum til að ná yfirráðum yfir ræktun og verslun með múskat. Seinna gerðu Hollendingar landaskipti við Breta. Hollendingar fengu eyjuna Run í Banda-eyjaklasanum en Bretar Manhattan-eyju í Norður-Ameríku eða Nýju Amsterdam í staðinn.

Blóð, sviti og uppreisn

Í bók, sem kallast Ferðir John Manderville frá 1350 og talið er að sé flæmsk að uppruna, lýsir höfundur ferðum sínum, sönnum og lognum. Hann segir meðal annars frá Einfætlingalandi og undursamlegu tré sem vex á Indlandi og ber smávaxin lömb á greinaendunum. Eftir því sem lömbin vaxa sveigjast greinar trjánna nær jörðinni og þannig geta lömbin bitið gras sem vex í kringum þau. Fullvaxin brotna lömbin af greinunum og það er af þeim sem rúin er bómull.

Reyndar er það svo að líklega hefur engin planta í veröldinni valdið jafnmörgum eins miklum þjáningum og valdið dauða jafnmargra og bómull. Upphaf iðnbyltingarinnar er í textíliðnaði og fyrstu alvöru verksmiðjurnar voru reistar í borginni Manchester á Bretlandseyjum og var borgin um tíma uppnefnd Cottonopolis.

Bómullartré.

Þrælaverslun frá Afríku til Banda­ríkjanna, aðallega suðurríkjanna, jókst gríðarlega með aukinni bómullar­ræktun en lengi var megnið af uppskerunni flutt til Bretlands til vinnslu. Þegar mest var, árið 1855, voru um 3,2 milljónir þræla við bómullartínslu í suðurríkjum Bandaríkjanna.

Bómullarverksmiðjurnar á Bretlandi voru lítið annað en þrælkunarbúðir þar sem börn niður í fimm ára aldur voru látin vinna allt upp í sextán tíma á sólarhring sex daga vikunnar. Til eru hræðilegar lýsingar á aðbúnaði og meðferð fólks sem starfaði við slíkar verksmiðjur og vitað að fátækir foreldrar seldu börnin sín til vinnu í verksmiðjunum. Lífshorfur barna og fullorðinna sem störfuðu í verksmiðjunum voru tvö til þrjú ár og flestir létust vegna meina tengdum öndunarvegi. Í læknaskýrslum er sagt frá því að fólk hósti upp úr sér heilu bómullarboltunum, rauðum og svörtum af blóði.

Á Indlandi olli yfirtaka Breta á aldagamalli bómullarhefð gríðarlegum þjáningum þegar Indverjum var bannað að vinna úr bómull. Árið 1920 hrinti Mahatma Gandhi af stað aðgerð sem fólst í því að fá Indverja til að sniðganga breskar afurðir sem unnar voru úr indverskri bómull. Gandhi hvatti þjóðina til að spinna sinn eigin bómullarþráð og vefa sín eigin klæði. Hann settist sjálfur við spunahjólið og hóf friðsamlega uppreisn gegn breskum yfirráðum sem leiddi til þess að Indland varð sjálfstætt ríki að nýju árið 1947.

Eftirlýstur í 124 ár fyrir smygl á fræjum

Náttúrulegt útbreiðslusvæði gúmmítrjáa er í norðurhluta Suður-Ameríku, frá Brasilíu norður til Venesúela og í Kólumbíu, Perú og Bólivíu.

Samhliða því að bifreiðar urðu almenningseign varð gúmmí eitt eftirsóttasta efni í heimi. Landeigendur í Brasilíu kepptust um að rækta gúmmítré og gríðarleg auðæfi söfnuðust á þeirra hendur á meðan innfæddir, sem var smalað saman eins og skepnum til að vinna við ræktunina, fengu ekkert fyrir sinn snúð. Við upphaf ræktunar á einni gúmmíplantekru í Brasilíu voru 50.000 þrælar en þegar ræktuninni var hætt voru 8.000 enn á lífi.

Stjórnvöld í Brasilíu reyndu allt hvað þau gátu til að halda gúmmítrjáræktun fyrir sig og bönnuðu útflutning á lifandi gúmmítrjám og fræjum. Þvert á bann stjórnvalda tókst breskum landeiganda, Henry Wickham, að senda 70.000 fræ til Kew-grasagarðsins í Bretlandi árið 1876. Garðyrkjumönnunum við Kew tókst að láta 5% fræjanna spíra og eru plönturnar sem upp komu undirstaða gúmmítrjáaræktunar í heiminum í dag. Langmest af náttúrulegu gúmmíi í dag er framleitt í Asíu.

Stjórnvöld í Brasilíu urðu æf þegar upp komst um smyglið og Wickhan var á lista yfir mest eftirlýstu menn þar í landi fram undir aldamótin 2000.

Mest ræktuðu plönturnar

Hveiti, maís og hrísgrjón eru þrjár helstu nytjaplöntur heims ræktaðar til manneldis og áætlað að þær sjái mannkyninu fyrir um 60% allra þeirra hitaeininga sem það neytir. Aðrar mikilvægar matjurtir eru kartöflur, soja, kassava-rót og ýmsar tegundir af baunum

Hveiti er upprunnið í Austur­löndum nær, Tyrklandi og löndum frjósama hálfmánans. Talið er að ræktun þess nái allt aftur til 9.600 fyrir Krist. Ræktunarárið 2019 til 2020 var heimsframleiðsla á hveiti áætluð rúm 765 milljón tonn.

Áætluð heimsframleiðsla á maís dróst saman 2019 til 2020 frá 2018 til 2019 úr 1,124 milljónum tonna í 1108 milljón tonn samkvæmt tölum bandaríska landbúnaðarráðuneytisins. Bandaríkin eru stærsti framleiðandi maís í heiminum en Kína er í öðru sæti. Maís er upprunninn í Mið-Ameríku.

Hrísgrjón hafa líklega fætt fleiri og í lengri tíma en nokkur önnur planta. Þau eru gríðarlega mikilvæg fæða enn í dag og áætlað að einn fimmti allra hitaeininga sem jarðarbúar neyta koma úr hrísgrjónum.

Hrísgrjón hafa líklega fætt fleiri manneskjur og í lengri tíma en nokkur önnur planta.

Kartöflur og fólksflutningar

Kartöflur eru gott dæmi um plöntu sem menn hafa dreift víðast um heim til manneldis. Uppruni kartöflunnar er í Andesfjöllum í Suður-Ameríku. Fljótlega eftir að evrópskir landkönnuðir komu til Ameríku seint á fimmtándu öld barst kartaflan til Evrópu. Í fyrstu voru menn tregir til að leggja sér kartöflur til munns en það breyttist þegar kornuppskeran brást.

Á sautjándu öld trúðu menn því að kartöflur ykju kyngetuna og læknuðu liðagigt og þá var til siðs að ganga með hráa kartöflu á sér. Karlmenn höfðu þær í buxnavasanum en konurnar áttu litla útsaumaða tösku undir kartöfluna sína eða þá að saumaður var sérstakur vasi á kjóla þeirra.

Á sinn hátt má segja að tilkoma kartaflna sé orsökin fyrir mikilli fólksfjölgun í Evrópu, ekki þó vegna áhrifa hennar á frjósemina, heldur fremur því hversu mörgum hún bjargaði frá hungurdauða. Árið 1841 eru íbúar Írlands um átta milljónir og fátækt gífurleg. Írar lifðu í orðsins fyllstu merkingu á kartöflum, það voru kartöflur í öll mál flesta daga ársins. Írar voru svo háðir kartöfluneyslu að 1845 þegar kartöflumygla eyðilagði uppskeruna varð allsherjarhungursneyð. Í beinu framhaldi af því hófust fólksflutningar Íra til Ameríku og Ástralíu.

Kartöflur voru fyrst ræktaðar á Íslandi af sænska baróninum F. W. Hastfer. Baróninn setti þær niður á Bessastöðum á Álftanesi vorið 1758 og fékk þokkalega uppskeru. Séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal, séra Guðlaugur Þorgeirsson í Görðum á Álftanesi og séra Jón Bjarnason á Ballará munu svo hafa reynt kartöflurækt árin 1759 og 1760.

Epli eru frá Kasakstan

Epli, súr eða sæt, eru annað dæmi um plöntu eða plöntuafurð sem hefur náð alþjóðlegri útbreiðslu. Uppruni ræktaðra epla er rakinn til villi- eða skógartegundar sem og finnst villt í fjalllendi Mið-Asíu, Kasakstan, Kirgisistan og Tien Shan-héraði í Kína.

Frá Mið-Asíu breiddust epli út til austurs og vesturs. Kínverjar og Rómverjar komust snemma upp á lagið með að græða greinar af trjám með eftirsóknarverða ávexti á rætur trjáa sem báru ekki eins góð aldin og þannig hófst skipuleg ræktun á eplum.

Epli í Kasakstan.

Rómverjar höfðu með sér epli og perur í landvinningaherferð sinni til Bretlandseyja. Hinrik VIII Bretakonungur, sem var upp 1491 til 1547, var svo hrifinn af eplum að hann skipaði ávaxtaræktargarðyrkjumanni sínum að safna á einn stað í Kent sem flestum eplayrkjum heims.

Vinsældir eplaræktunar eru sífellt að aukast og yrki í ræktun skipta þúsundum og í dag er farið að rækta þau á Íslandi þótt það sé í smáum stíl enn sem komið er.

Einnig er vert að minna á að kaffi er ekki upprunnið í Brasilíu, það kemur frá Eþíópíu.

Eru plöntur að rækta menn?

Afleiðing flutninga plantna milli staða og heimsálfa er sú að í dag eru ræktaðar nytjaplöntur af einhverju tagi á hverju byggðu bóli í heiminum, hvort sem er skrautjurt, matjurt, tré til skógræktar eða pottaplanta, sem flutt er að annars staðar frá í heiminum.

Notagildi mannsins fyrir útbreiðslu plantna í heiminum er svo mikið að ætla mætti að plöntur séu að rækta menn. Í staðinn fyrir að auka útbreiðslusvæði plantnanna fær mannkynið súrefni og mat en að lokum er því svo breytt í áburð sem plönturnar nýta sér.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...