Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Í sveitinni.
Í sveitinni.
Mynd / HKr.
Á faglegum nótum 31. mars 2016

Meira vinnuhagræði – minni sóun

Höfundur: Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, fagstjóri í búfjárrækt hjá RML
Vinnuhagræðing, betri nýting aðfanga og skilvirkari rekstur er verkefni sem allir sem reka fyrirtæki standa frammi fyrir daglega.
 
Tölur úr búreikningum sýna svo ekki verður um villst að margir geta sótt talsvert í bættan rekstur búsins og því mikilvægt að leggja sérstaka áherslu á að skoða allar færar leiðir í því skyni. Í nágrannalöndum okkar hafa menn í auknum mæli innleitt svokölluð skilvirknikerfi eða bústjórnarkerfi inn í vinnu við landbúnað í því skyni að ná betur utan um verkferla og daglega vinnu á búunum til að hámarka nýtingu á aðföngum og vinnuafli í verðmætasköpun á búinu.
 
Síðustu ár hafa bú stækkað og þau orðið tæknivæddari. Með stærri framleiðslueiningum og breyttum búskaparháttum fjölgar þeim sem koma að vinnu á búinu annaðhvort sem fastir starfsmenn eða verktakar í ákveðin verkefni.  Góð verkstjórn og verkefnastjórnun er því orðinn mjög mikilvægur þáttur í rekstrinum.
 
LEAN management
 
„LEAN management“ er vel þekkt um allan heim í stjórnun. Á íslensku hefur þetta verið kallað straumlínustjórnun og á uppruna sinn hjá Toyota-verksmiðjunum í Japan.  Aðferðafræðin hefur verið aðlöguð að búrekstri og notuð með góðum árangri m.a. í Danmörku. Í grundvallaratriðum snýst LEAN um að draga úr sóun í framleiðsluferlunum.  LEAN þýðir „magurt“ og því er markmiðið að skapa meiri verðmæti með minni aðföngum, eða að framleiðnin sé aukin með meiri skilvirkni. 
Meðal grundvallaratriða í LEAN eru að öðlast skilning á virðiskeðju búsins, að búa til gott flæði í vinnuna og að stöðugt sé unnið að því að bæta verkferla.  LEAN er ekki einsskiptisaðgerð heldur snýst um að koma upp vinnumenningu á búinu þar sem stöðugt er leitast við að finna skilvirkari og skynsamari leiðir við framkvæmd vinnunnar.  
 
Hvernig er unnið með LEAN
 
LEAN byggir á þeirri hugmyndafræði að framleiðsla eigi að taka mið af eftirspurn þannig að eingöngu sé framleitt það sem viðskiptavinurinn vill kaupa. Hér er ekki eingöngu verið að tala um framleiðslu á mjólk eða kjöti fyrir neytendur heldur þarf að skilgreina innan framleiðslueiningarinnar/búsins hverjir eru framleiðendur og hverjir eru viðskiptavinir í hinum ýmsu ferlum á búinu.  
 
Einfalt og skýrt dæmi er til dæmis að tún og akrar eru framleiðandi að fóðri fyrir þá gripi sem eru á búinu. Gripirnir eru viðskiptavinurinn og af túnum og ökrum þarf að koma fóður af réttu magni og réttum gæðum fyrir gripina. Of mikil framleiðsla á heyi sem ekki er not fyrir á búinu og hugsanlega er ekki hægt að selja fyrir ásættanlegt verð er sóun.
 
Í gegnum þessa aðferðafræði hefur verið hægt að sækja mikla hagræðingu í rekstri búa og það má sjá það fyrir sér að hægt sé að nýta hana, hvort heldur sem er hvað varðar einstaka lykilþætti í framleiðsluferlinu eða heildstætt í öllum búrekstrinum.
 
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins mun dagana 11.–13. apríl standa fyrir námskeiðum í notkun á LEAN til að auka skilvirkni í búrekstri. Fyrirlesari á námskeiðinu er Vibeke F. Nielsen, landsráðunautur hjá SEGES P/S í Danmörku. Sérsvið hennar er bústjórn og betri nýting framleiðslutækja. Hér í blaðinu er einnig þýdd og staðfærð grein eftir hana sem birtist í Kvæg í desember 2010.
„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...