Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
apanir eru frægir fyrir kynbætur sínar og aðdáun á krýsa enda hafa þeir ræktað hana í þúsund ár og þeir hafa gert hann að sínu þjóðarblómi. Myndir / Guðríður Helgadóttir
apanir eru frægir fyrir kynbætur sínar og aðdáun á krýsa enda hafa þeir ræktað hana í þúsund ár og þeir hafa gert hann að sínu þjóðarblómi. Myndir / Guðríður Helgadóttir
Mynd / Guðríður Helgadóttir.
Á faglegum nótum 7. desember 2020

Krýsi – tryggðablóm

Höfundur: Ingólfur Guðnason

Krýsi er skrýtið orð en það hefur náð að festa sig nokkuð vel í sessi í málinu. Það er myndað af latnesku heiti einnar ættkvíslar körfublóma, Chrysanthemum, sem er dregið af forngríska heitinu chrysos (gull) og anthemon sem þýðir blóm. Gullblóm. Eldra íslenskt heiti yfir tegundina er tryggðablóm eða krýsantema, jafnvel prestafífill.

Við þekkjum margar tegundir skyldar krýsa úr görðum okkar og náttúru en varla kemst nokkur þeirra nærri hinum ræktaða krýsa að blómfegurð. Latneskt heiti tegundarinnar hefur lengst af verið Chrysanthemum morifolium.

Eldforn ræktunarjurt

Krýsi er tegund sem á sér ævalanga ræktunarsögu. Hún hefur verið ræktuð til skrauts að minnsta kosti síðan á tíma Konfúsíusar í Kína og trúlega mun lengur. Japanir eru frægir fyrir kynbætur sínar og aðdáun á krýsa enda hafa þeir ræktað hann í þúsund ár og þeir hafa gert hann að sínu þjóðarblómi. Þar er krýsi bæði ræktaður sem garðplanta og afskorið blóm. Í Evrópu hefur tegundin verið þekkt í ræktun a.m.k. frá 17. öld. Snemma á 19. öld fóru evrópskir blómaáhugamenn að kynbæta krýsa, með ágætum árangri. Nú er krýsi í 6. sæti yfir vinsælustu afskornu blómin í heiminum.

Íslenskir garðyrkjubændur hafa ræktað krýsa í gróðurhúsum í næstum því hundrað ár og alltaf heldur hann vinsældum sínum.

Nær hundrað ár  í ræktun á Íslandi

Íslenskir garðyrkjubændur hafa ræktað tegundina í gróðurhúsum sínum í næstum því hundrað ár og alltaf heldur hún vinsældum sínum. Fjöldi afbrigða eru í ræktun, algengust eru svo kölluð „Spray“-afbrigði sem geta myndað fjöldamargar blómgreinar á sama blómstöngli og litaúrvalið er mikið. Einnig eru vinsæl „Standard“ afbrigði sem eru látin mynda eitt stórt blóm á hverri grein. Önnur yrki sem gaman er að nota í blómvendi eru með óvenjulega blómlögun, til dæmis kúlulaga eða hafa löng, þráðlaga smáblóm í körfunni.

Krýsi er skammdegisplanta

Algengt var að garðyrkjubændur ræktuðu krýsa í gróðurhúsum sínum frá því snemma vors og fram eftir hausti. Með vaxtarlýsingu er vel hægt að rækta krýsa allt árið. Tegundin kýs við náttúrulegar aðstæður að blómstra þegar dag tekur að stytta. Til að ná fram blómmyndun á réttum tíma þarf þess vegna að stýra vexti plantnanna með daglengdarstjórnun. Græðlingar eru settir þétt saman í beð og þeim haldið í örum vexti við góð birtuskilyrði þar til plönturnar hafa náð hæfilegum þroska. Þá tekur við tímabil í ræktuninni þar sem plönturnar eru myrkvaðar hluta úr sólarhring. Séð er til þess að birtutíminn verði ekki lengri en 10-11 klukkustundir á sólarhring, til að koma blómmyndun af stað. Myrkvunartíminn getur verið um 2 mánuðir. Myrkvun er ýmist framkvæmd á þann hátt að ljósþéttur dúkur er dreginn yfir beðin kvölds og morgna eða þá að notaður er sjálfvirkur búnaður til að myrkva heil gróðurhús eða ræktunareiningar.

Myrkvun er vel þekkt til að kalla fram blómmyndun skammdegisplantna. Til dæmis eru jólastjörnur meðhöndlaðar á svipaðan hátt til að stýra því hvenær þær fá sinn fallega lit. Það sama á við um nóvember- eða jólakaktus, hann þarf að fá stuttan dag til að blómin njóti sín sem best. Að loknu myrkvunartímabilinu er ekki langt í að plönturnar taki að blómstra.

Fjölgað með græðlingum

Græðlingar eru notaðir til að fjölga krýsa. Þeir eru ræktaðir hjá garðyrkjubændum af sérstökum móðurplöntum sem þarf að meðhöndla á allt annan hátt en þær greinar sem eiga að mynda blóm. Því er algengara að ræktendur, bæði hér á landi og í Evrópu notist við græðlinga sem framleiddir eru nær miðbaug, td. í Afríkulöndum og fluttir hingað með flugi. Ella myndi ræktunin verða óþarflega tafsöm og þannig má halda ræktunarkostnaði og útsöluverði niðri.

Íslensk framleiðsla allt árið

Framleiðendur geta með daglengdarstjórnun og annarri ræktunartækni stýrt framleiðslunni mjög nákvæmlega svo bjóða megi ferskan og fallegan afskorinn krýsa allt árið. Eftir skurð og með réttri meðhöndlun í heimahúsum er hægt að njóta þeirra í 2-3 vikur. Langstæstur hluti krýsa á markaði hér á landi er ræktaður í íslenskum gróðurhúsum.

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...