Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Hreinir spenaendar  = lægri frumutala!
Á faglegum nótum 3. júní 2015

Hreinir spenaendar = lægri frumutala!

Höfundur: Snorri Sigurðsson

Það hefur legið fyrir í mörg ár að skýrt samhengi er á milli hreinleika kúa og frumutölu og hefur þá oftast fyrst og fremst verið horft til hreinleika júgurs og fóta og hreinleikanum gefin einkunn á bilinu 1-5 til þess að átta sig á umfangi mögulegs vandamáls á búinu.

Til þessa hefur þó ekki verið mikið gert af því að gefa sérstaka einkunn fyrir hreinleika spenaenda en það er þó hægt að gera og hefur reynst gott stjórntæki til þess að meta eigin vinnubrögð við þrif á spenum.

Hreinn spenaendi

Sé spenaendinn tandurhreinn og þurr þegar mjaltatækið er sett á spenann dregur verulega úr líkum á því að mögulegt umhverfissmit geti borist í spenann og valdið sýkingu. Að sama skapi geta óná-kvæm vinnubrögð við undirbúning kúnna haft slæm áhrif og ýtt undir sýkingar og því mikilvægt að geta metið vinnubrögðin á hverjum tíma. Frönsk rannsókn, sem tók sérstaklega til hreinleika á spenum, leiddi í ljós að samhengi var að jafnaði á milli hreinleika á spenum og frumutölu sem í sjálfu sér kom ekki á óvart. Hins vegar þróuðu Frakkarnir hreinleikaskala sem má styðjast við heima á búum og getur hver sem er metið hreinleikann, sem er afar jákvætt. Flestir, sem eru vanir að mjólka, telja væntanlega að þeir þrífi spenaendana vel og með neðangreindri aðferð er einfaldlega hægt að skrá það niður og meta hvort bæta megi vinnubrögðin eða hvort allt sé eins og það eigi að vera.

Klútaaðferðin

Til þess að gera þetta þarf að notast við hreina og hvíta klúta og eftir að hefðbundnum þrifum á spenum er lokið, er spenaendinn „þrifinn“ með hvíta klútnum. Miða þarf við að meta a.m.k. 20% spenaendanna í fjósinu, svo niðurstöðurnar gefi þokklega rétta mynd af stöðunni. Spenaþrifunum er svo gefin einkunn í samræmi við meðfylgjandi myndir og lýsingu: Auðvitað er best að allir spenaendar hafi fengið einkunnina „1“ eða „2“, en líklega óraunhæft að slíkt náist og líklega finnast einkunnir eins og „3“ og jafnvel „4“ einnig.

Mat niðurstaðna

Þegar búið er að gefa einkunn fyrir spenaendaþrifin, þarf að taka saman niðurstöðurnar með því að telja hve margir spenaendar fengu einkunnina „1“, „2“, „3“ og „4“. Leggðu nú saman hve margir spenaendar fengu einkunnina „3“ og „4“ og reiknaðu svo út hlutfall þessarar samtölu af heild. Sé það þitt mat að meira en 80% af spenaendunum hafi fengið einkunnina „3“ eða „4“ þá gefur það vissulega tilefni til þess að ætla að bæta megi vinnubrögðin við þrif spenaendanna og þar með draga úr líkum á því að smitefni berist í kýrnar.

Benda má áhugasömum um spenaþrif á grein í Bændablaðinu frá 6. febrúar á síðasta ári (3. tbl.), þar sem farið er ítarlega yfir helstu atriði sem lúta að þrifum á spenum.

Skylt efni: Mjaltir | Kýr

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...