Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 ára.
Jim Easton, formaður ISDS, Agnar Ólafsson, Tjörn, Sverrir Möller og Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi. Agnar er að sýna tíkina Mjú.
Jim Easton, formaður ISDS, Agnar Ólafsson, Tjörn, Sverrir Möller og Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi. Agnar er að sýna tíkina Mjú.
Á faglegum nótum 15. desember 2015

Besta úttektin innan ISDS að mati Jim Easton

Höfundur: Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi, formaður Smalahundafélags Íslands.
Laugardaginn 7. nóvember fóru fram vinnupróf International Sheep Dog Society (ISDS) að Húsatóftum á Skeiðum þar sem félagsmenn Smalahundafélags Íslands (SFÍ) komu saman með hunda sína til þess að fá þá viðurkennda og skráða í ættbók ISDS. 
 
ISDS eru alþjóðleg samtök sem eiga sér yfir 100 ára sögu og hafa haldið utan um ræktun Border Collie fjárhunda frá upphafi. Það má segja að vinnuprófin hafi verið lokahnykkurinn í aðildarumsókn SFÍ að samtökunum og markar þessi viðburður raunverulegt upphaf okkar að félagasamtökunum og er stórt framfaraskref fyrir greinina. 
 
Fulltrúar frá ISDS
 
Fyrir hönd ISDS mætti Jim Easton stjórnarformaður til landsins og með honum í för var Judith Sheen framkvæmdastjóri, einnig mætti Susanne Moelgaard Kaarsholm, dýralæknir frá Danmörku, til þess að augnskoða alla þá hunda sem komu í vinnuprófið.
 
Jim Easton sá um að dæma hundana í vinnuprófinu ásamt fulltrúum sem SFÍ tilnefndi honum til aðstoðar, þá Þorvarð Ingimarsson og Sverri Möller. Vinnuprófið byggðist upp á því að sjá hundana í almennri vinnu við tuttugu kinda hóp án þess að gerð væri krafa um að þeir hefðu hlotið fullkomna tamningu. Þannig var hundurinn dæmdur frekar en eigandinn.
 
Aðeins hundar sem sýndu ótvíræð einkenni Border Collie við vinnu gátu staðist prófið. Alls voru dæmdir 22 hundar frá 14 eigendum sem allir stóðust prófið og munu því allir fá ISDS skráningu. Þarna var komið saman úrval stofnsins í landinu, bæði gamlar og nýrri blóðlínur. Það er óhætt að segja að þetta séu ræktunarhundar framtíðarinnar og sumir þeirra hafa að sjálfsögðu sannað sig sem slíkir nú þegar.
 
Eftir vinnuprófið og þegar allir hundar höfðu verið augnskoðaðir fór fram stutt kynning á Hestakránni að Húsatóftum á starfsemi ISDS, þar sem Judith Sheen framkvæmdastjóri fór yfir sögu og hlutverk félagsins og rakti hvernig stjórnskipulag þess er byggt upp. Einnig kynnti hún fyrir fundargestum hvernig skráningar á gotum ganga fyrir sig og hvatti fólk til þess að hafa samband við skrifstofuna ef einhverjar spurningar vakna. Félagsmenn munu bæði geta skráð got með því að hafa beint samband við skrifstofuna í Bretlandi eða fyrir milligöngu SFÍ. Eftirfarandi er veffang félagsins; www.isds.org.uk.
 
Besta úttektin að mati Jim Easton
 
Eftir kynningu Judith tók Jim Easton stjórnarformaður til máls og það er óhætt að segja að sú ræða hafi vakið ánægju viðstaddra. Þar lýsti hann því yfir að úttektin hefði verið sú besta sem hann hefði verið viðstaddur hjá nokkru landi við inngöngu í ISDS og væri þó búinn að vera við margar þeirra. Þar átti hann bæði við gæði hundanna og hversu góð tök fólk hefði á þeim. 
 
Hann var greinilega snortinn yfir því hversu góðan grunn við eigum í okkar Border Collie stofni og hversu öflugir (e. strong) hundarnir væri. Af því tilefni minntist hann þeirra tíma í Bretlandi þegar meira var til af öflugum vinnuhundum heldur en nú er.
 
 Hann sagði frá því hvernig eftirspurn eftir þægilegum (e. soft) hundum hefði haft áhrif á ræktunina í Bretlandi og taldi að menn hafi gengið of langt í því að rækta slíka hunda á kostnað þátta sem eru mikilvægir við raunveruleg og krefjandi verkefni á fjárbúum. Hann hvatti okkur eindregið til þess að halda í þessar gömlu línur af öflugum og ákveðnum hundum sem hér eru og rökstuddi það meðal annars með því hversu lítið væri til af slíkum hundum í dag. Einnig sagði hann: „Þú ræktar ekki harðan hund undan tveimur þægilegum, en þú færð nóg af þægilegum undan hörðum hundum.“ Þá hvatti hann okkur til að senda fulltrúa á Evrópumót fjárhunda (Continental Sheepdog Championship) í Finnlandi í ágúst næstkomandi, á Íslandi væru bæði hundar og smalar sem ættu fullt erindi þangað. Easton rakti einnig sögu og tilurð ISDS og hvernig ræktun fjárhunda þróaðist úr tegundum nokkurra hunda með mismunandi eiginleika í eina tegund sem sameinaði þessa eiginleika og þannig varð til þessi fjárhundategund, Border Collie, sem er í dag þekkt um allan heim fyrir gæði og hæfileika.
 
Það er einstaklega ánægjulegt að fá svona góða umsögn frá manni eins og Jim Easton sem hefur lifað ævi sem er samofin sögu ISDS. Ræktun Smalahundafélags Íslands byggir enn að stórum hluta á þeim grunni sem Gunnar Einarsson frá Daðastöðum lagði með fyrstu hundunum sem hann flutti inn og því ekki úr vegi að nýta tækifærið og þakka honum fyrir ómetanlegt framlag til fjárhundaræktunarinnar á Íslandi sem og öðrum sem hafa lagt metnað sinn í að flytja inn og rækta góða hunda. Án þeirra væri ræktunin ekki á þeim stað sem hún er í dag.
 
Einnig vil ég þakka Elísabetu Gunnarsdóttur fyrir að eiga frumkvæði að þessu verkefni og fylgja því í höfn og að lokum vil ég þakka Aðalsteini Aðalsteinssyni og fjölskyldu á Húsatóftum fyrir aðstoðina og frábæra aðstöðu fyrir bæði vinnuprófin sjálf og þátttakendur.
 
Það er von mín að aðild okkar að ISDS gagnist okkur í framtíðinni og að félagsmenn nýti sér þá möguleika sem í henni felast. Ég tek að sjálfsögðu undir með Jim Easton og hvet til þess að við varðveitum það sem við höfum, á þann hátt gætum við skapað okkur sérstöðu og ekki ólíklegt að hingað yrði leitað frá öðrum löndum eftir ræktunarhundum framtíðarinnar.
 
Þorvarður Ingimarsson, Eyrarlandi, formaður Smalahundafélags Íslands.

13 myndir:

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...