Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Hópmynd frá starfsstöðvum Svenskt Trä í Svíþjóð. F.v. Guðrún Lárusdóttir (LBHI), Tomas Ivarsson, Johan Fröbel, Eiríkur Þorsteinsson, Jan Brundin og Hlynur Gauti Sigurðsson (LSE).
Hópmynd frá starfsstöðvum Svenskt Trä í Svíþjóð. F.v. Guðrún Lárusdóttir (LBHI), Tomas Ivarsson, Johan Fröbel, Eiríkur Þorsteinsson, Jan Brundin og Hlynur Gauti Sigurðsson (LSE).
Á faglegum nótum 19. febrúar 2020

Frá tré til timburs

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda (LSE)
Timburverslanir selja timbur sem metið hefur verið eftir gæðum og eiginleikum. Flokkunin hefst í skóginum. Eftir að vandað hefur verið til verka við ræktun trjánna í skóginum er komið að skógarhöggi.
 
Trén eru há, sver og stundum bogin. Skógarhöggsmaður á að geta metið og flokkað viðinn eftir vaxtarlagi trésins. Þegar tréð er fellt er það sagað niður í boli, eftir því hvernig það getur nýst best. Algengt er að stysta lengd bols í barrviði sé 3,2 metrar. Við útkeyrslu á viðnum úr skóginum er það flokkað og lagt í stæður. Loks er það flutt í sögunarmyllu og endanlegt hlutverk viðarins er ákveðið þar.
 
 
Þegar trjábolur er sagaður í stórviðarsög niður í borð og planka þarf útsjónarsemi við að meta bolinn. Hverju má ná út út bolnum? Þar skiptir máli hvar af trénu bolurinn kemur. Neðsti hluti trésins er sá sverasti og oftast er hann sá verðmætasti. Þegar búið er að meta bol til sögunnar er hann sagaður eftir kúnstarinnar reglum. Að lokinni sögun verða til borð og/eða plankar. Næst fer fram mat á kvistabyggingu í viðnum og skiptir hún máli upp á styrk og endingu viðarins. Kvistir eru af ýmsum gerðum og sumir kvistir veikja timbrið meira en aðrir. Þegar timbrið er selt kaupanda þarf kaupandi að vera viss um að timbrið henti því sem hann ætlar sér af því. Þá koma til staðlar. 
 
Lítil hefð hefur verið fyrir flokkun á íslensku timbri. Það timbur sem fellt er í skógum landsins hefur sjaldnast fengið sérstaka flokkun og fátítt er að gerðar séu miklar kröfur um burð og styrk. Timbur er hægt að nota í ótal margt. Ef timbrið er af slökum gæðum má selja það í eitthvað annað en burðarvið. Það má til dæmis nota það í utanhússklæðningar, panil eða hreinlega kurla og nota undir húsdýr eða sem kolefnisgjafa. Ef timbrið er af góðum gæðum þarf að vera öruggt og tryggt að hægt sé að nota það í það sem til er ætlast, t.d. í hús, leiktæki eða aðra mannvirkjagerð. Húsasmiður gerir kröfu til þess af söluaðila að timbrið sé flokkað eftir stöðlum. 
 
Nú er hafin vinna við að innleiða þekkingu á stöðlum og flokkunarkerfum byggðum á þeim svo íslenskt timbur megi verða sú söluvara sem til er ætlast í náinni framtíð. Hingað til hefur einungis verið hægt að fá staðlað timbur af innfluttu efni. Eiríkur Þorsteinsson, trjátæknir og viðarfræðingur, leiðir vinnu við innleiðingu þessara flokkunarkerfa, sem kallast viðskiptaflokkun á timbri, samkvæmt stöðlum, í samvinnu við Svenskt Trä, sem leiðir hana í Skandinavíu og hin Norðurlöndin hafa nú þegar samþykkt.  Auk þess koma íslenskar stofnanir að verkefninu, svo sem Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ), Skógræktin og Landssamtök skógareigenda (LSE). Í desember síðastliðnum fór þriggja manna hópur til fundar við sérfræðinga hjá Svenskt Trä. Fundurinn var góður og helstu niðurstöðurnar voru þær að leyfi fékkst til að nota og þýða flokkunarkerfið sem verið er að innleiða í Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Íslandi og Noregi á barrtrjám. Vinnan við þýðingu gengur vel og er ætlunin að sett verði námskeið í haust fyrir fólk í skógargeiranum sem hefur verið að saga trjáboli. Verkefnið heitir TroProX og er samvinnuverkefni við háskóla í Danmörku og Svíþjóð.
 
Mikið er í húfi fyrir skógræktendur á Íslandi ekki síður en íslenska smiði og íslenskt efnahagslíf. 
 
Hlynur Gauti Sigurðsson
framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda (LSE)

Skylt efni: timbur | Skógrækt | Trjárækt | tré

Þjónusta Microsoft liggur niðri
Fréttir 13. nóvember 2026

Þjónusta Microsoft liggur niðri

Vegna vandræða í kerfum Microsoft liggur tölvupóstur Bændablaðsins tímabundið ni...

Matarmót Austurlands á laugardaginn
Fréttir 12. nóvember 2026

Matarmót Austurlands á laugardaginn

Matarmót Austurlands verður haldið í sjötta sinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum la...

Miðdalur fyrirmyndarbú
Fréttir 11. nóvember 2026

Miðdalur fyrirmyndarbú

Ábúendur í Miðdal í Kjósarhreppi fengu viðurkenningu sem fyrirmyndarbú deildar n...

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt
Fréttir 11. nóvember 2026

Grænbók um landgræðslu og skógrækt í Samráðsgátt

Grænbók um landsáætlun í landgræðslu og skógrækt var nýlega sett í Samráðsgátt s...

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði
Fréttir 10. nóvember 2026

Blásið til sóknar í lífrænum landbúnaði

Fagráð í lífrænum landbúnaði stendur fyrir málþinginu „Tíföldum lífræna framleið...

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands
Fréttir 10. nóvember 2026

Fleiri fluttu til en frá öllum sveitarfélögum Vesturlands

Búferlaflutningar hafa verið hagfelldir á Vesturlandi undan-arin fimm ár. Fleiri...

Heildarlög um loftslagsmál
Fréttir 10. nóvember 2026

Heildarlög um loftslagsmál

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra mælti fyrir frum...

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni
Fréttir 10. nóvember 2026

Aðgerðir til verndar líffræðilegri fjölbreytni

Út er komin aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Meðal forgangsaðgerða er ...