Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Lerkiskógur umlykur náttúrulega tjörn.
Lerkiskógur umlykur náttúrulega tjörn.
Mynd / HG
Á faglegum nótum 23. september 2020

Fer skógrækt saman með endurheimt votlendis?

Höfundur: Hlynur Gauti Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka skógareigenda

Það er ágætt að árétta það strax í upphafi að allar aðgerðir sem draga úr áhrifum loftslagsbreytinga eru af hinu góða. Með breyttri neyslu má draga úr ýmsum óþarfa eins og matarsóun og brennslu á jarðefnaeldsneyti. Landeigendur verða einnig að huga að sinni landnotkun með það í huga að draga úr loftslagsáhrifum hennar. Þá er yfirleitt talað um skógrækt, landgræðslu og endurheimt votlendis.

Hér verður stiklað á stóru um aðstæður hverrar aðgerðar fyrir sig ásamt nokkrum atriðum sem vert er að hafa í huga.

Fuglalíf og fleira

Allar landgerðirnar eru búsvæði fyrir fugla. Smáfuglar eru ein­kennandi fyrir skóga. Í móum og graslendi (t.d. framræstu landi) eru allmargar tegundir áberandi og jafn vel gróðurlausir melar og sandar skarta nokkru fuglalífi en fábreyttu. Allmargir fuglar sækja líka í votlendi, vötn og strandsvæði. Sumar tegundir votlendisfugla gera sér óðöl á tjörnum og vötnum þar sem einungis er pláss fyrir eitt fuglapar á stóru svæði. Munar þá um hvern poll.

Ákvarðanir um landnotkun hafa áhrif á fugla, spendýr, plöntur, sveppi og reyndar allt í náttúrunni. Þær hafa einnig áhrif á kolefnisjöfnuð, frjósemi, vatnsbúskap, jarðvegsrof og margt fleira. Allt skiptir þetta máli, en náttúruvernd, loftslagsvernd, vatnsvernd, jarðvegsvernd, fornleifa­vernd o.fl. hafa síður en svo í för með sér að viðhalda þurfi óbreyttu ástandi eða að það eina rétta sé að endurheimta eitthvað fyrra ástand.

Skógrækt

Ef ætlunin er að rækta skóg skal taka inn ótal atriði. Það þarf að friða svæði fyrir lausagöngufé. Það þarf að skipuleggja og gróðursetja í svæðið. Það þarf að hirða um svæðið svo það fari ekki í órækt, svo fátt eitt sé nefnt. Skógurinn nýtist aftur á móti til timburframleiðslu og lífríki í jarðvegi batnar þegar árin líða svo auðveldara er að hefja skógrækt að nýju eftir að trén hafa verið felld til nytja. Um fáum árum frá gróðursetningu er hægt að nýta skóga til beitar. Auk alls þess hagræna, umhverfislega og félagslega ágóða sem skógar hafa í för með sér er ljóst að skógrækt getur verið öflugasta leiðin sem raunveruleg völ er á til að binda CO2 úr andrúmsloftinu sé rétt staðið að málum.

Landgræðsla

Landgræðsla og skógrækt hafa misjafnar áherslur en eiga það sameiginlegt að efla gróður. Á rofnu landi sem friðað er fyrir beit má nota ýmsar trjátegundir, ásamt öðrum gróðri, til uppgræðslu lands. Landgræðsla fæst þó að mestu við meðferð beitilands þar sem tré nýtast ekki og þar sem loftslagsávinningur uppgræðsluaðgerða með áburðargjöf eða grassáningu er misjafn, t.d. eftir því hversu beitarálagið er mikið. Þar eru þó talsverðir möguleikar á að bæta kolefnisforða jarðvegs á stórum svæðum ef rétt er að málum staðið.

Endurheimt votlendis

Í gegnum tíðina hefur verið litið á vot­lendi sem lélega landnýtingu enda var land ræst fram umvörpum um drjúga hríð á seinni hluta síð­ustu aldar. Það er lítt aðgengilegt mann­­kindinni sem öðrum kind­um og þar vex sér­hæfður gróður sem nýtist búpeningi takmarkað til beitar, helst þó hrossum. Þegar votlendi er ræst fram geta aðstæður breyst mikið á örfáum árum. Jarðvegur sígur hægt og bítandi með auknu niðurbroti lífræns efnis. Grasspretta eykst. Landið verður greiðfærara. Áður voru hins vegar stór svæði ræst fram í engum sérstökum tilgangi. Með endurheimt votlendis er ætlunin að ná fram fyrra ástandi og þar með draga úr niðurbroti og meðfylgjandi losun CO2. Eins og með skógrækt og landgræðslu er þar talsverður breytileiki í árangri eftir aðstæðum en loftslagsávinningur getur þó verið umtalsverður sé rétt staðið að málum.

Loftslagið

Allt eru þetta frábærar leiðir í baráttunni við hlýnun jarðar. Endurheimt votlendis krefst lítils undirbúnings og árangur næst svo að segja strax að lokinni skurðauppfyllingu. Kostnaður fellst einkum í vinnuvélum og tiltölulega lítilli vinnu fólks og má ná drjúgum árangri á fáum dögum. Ósamstaða virðist vera um árangur samdráttar í kolefnislosun enda eru aðstæður misjafnar. Flestir virðast þó sammála um að endurheimt votlendis sé skjót leið til aðgerða við loftslagsbreytingar.

Undirbúningur landgræðslu er mismikill. Einfaldar aðgerðir, t.d. áburðardreifing, með nokkurra ára eftirfylgni eru algengar í landgræðslu. Oft er um mikið landflæmi að ræða og mikið undir. Þegar kemur að mati á kolefnisbindingu þá fellst árangur einkum í að auka kolefnisforða jarðvegs. Uppbygging þess kolefnisforða fylgir framvindu gróðurs, sem er þó mjög mishröð eftir aðstæðum.

Skógrækt er dýr á hvern hektara lands samanborið við að dreifa áburði eða fylla upp í skurði. Árangur í kolefnisbindingu getur þó verið mun meiri eftir tegundum og aðstæðum. Í ríku landi með hraðsprottnar tegundir má ná miklum árangri á skömmum tíma, skógræktarlega séð, en í rýru landi er bindingin minni. Skógrækt bindur kolefni svo lengi sem ræktun stendur yfir og ekki síður í jarðvegi en í trjánum sjálfum. Viðarvöxtur og kolefnisbinding hangir saman og þar með er auðvelt að sannreyna nákvæmni kolefnisbindingar í skógum.

Munur á aðgerðum

Skógrækt og endurheimt votlendis fer alls ekki vel saman á sama blettinum. Endurheimt votlendis hækkar grunnvatnsstöðu og í landi þar sem grunnvatnsstaða er há er ekki hægt að rækta tré með góðu móti. Þegar ráðist er í viðamikla skógrækt innan um votlendi og í kringum tjarnir getur það haft þurrkandi áhrif jarðveginn í skóginum en reynslan hér á landi er sú að skógurinn þurrkar ekki mýrarnar.

Endurheimt votlendis er vafalítið gagnleg aðferð til að stemma sigu við uppgufun gróðurhúsaloftegunda þegar land er ekki í notkun og ætlunin er að hafa það þannig. Það er alltaf gott og göfugt af landeigendum að nýta land sitt til að stemma stigu við loftslagsbrjálæðinu, sama með hvaða hætti það er gert og enn betra er að landeigendur geri sér grein fyrir öllum möguleikum sem eru í stöðunni. Best er líklega að gera eitthvað fremur en ekki neitt.

Hlynur Gauti Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
skógareigenda

Er plantað nóg?
Fréttir 16. apríl 2025

Er plantað nóg?

Skógarbændur gegna mikilvægu hlutverki við landgræðslu og skógrækt. Þannig er sk...

Trump skellir í lás
Fréttir 16. apríl 2025

Trump skellir í lás

Alþjóðasamfélagið er skekið eftir tollahækkanir Trumps í þarsíðustu viku.

Fimmtíu gripir með T137 finnast í Skaftárhreppi
Fréttir 16. apríl 2025

Fimmtíu gripir með T137 finnast í Skaftárhreppi

Áfram finnast sauðfjárbú með arfgerðabreytileikann T137 í hjörð sinni, sem talin...

Fuglavernd í hart við Yggdrasil
Fréttir 15. apríl 2025

Fuglavernd í hart við Yggdrasil

Fuglavernd hefur kært Yggdrasil Carbon ehf. til lögreglu fyrir að rista upp land...

Áherslur á Búnaðarþingi
Fréttir 15. apríl 2025

Áherslur á Búnaðarþingi

Á Búnaðarþingi 20. til 21. mars síðastliðinn var ályktað um áherslur á komandi s...

Ný hveitimylla ólíkleg
Fréttir 14. apríl 2025

Ný hveitimylla ólíkleg

Opinberir aðilar hafa ekki gefið Líflandi formlega staðfestingu á að reglur sem ...

Ráðuneytið má ekki grípa inn í
Fréttir 14. apríl 2025

Ráðuneytið má ekki grípa inn í

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur sagt í fjölmiðlum að ef Lífla...

Stefnir stærsti hluthafi Örnu
Fréttir 14. apríl 2025

Stefnir stærsti hluthafi Örnu

Stefnir sjóðastýringarfyrirtæki hefur fjárfest í Örnu og er nú skráður stærsti h...