Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Fjöldi nautgripabænda (mjólk og kjöt) eftir árum
Fjöldi nautgripabænda (mjólk og kjöt) eftir árum
Af vettvangi Bændasamtakana 13. febrúar 2024

Félagskerfi bænda er áskorun

Höfundur: Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands.

Fækkun, meiri fækkun og enn meiri fækkun bænda í hinum rótgrónu greinum nautgriparæktar og sauðfjárræktar er staðreynd. Við sem störfum fyrir bændur erum meðvituð um þessa stöðu og þær áskoranir sem henni fylgja í félagskerfinu.

Vigdís Häsler

Eins og myndirnar sýna voru sauðfjárbændur um 3.800 árið 1996 en voru á síðasta ári innan við 1.800 og hefur fækkað um nærri 800 frá því núgildandi búvörusamningar tóku gildi árið 2016. Í nautgriparæktinni er fækkunin enn meiri en þar voru um 1.900 býli árið 1996 en voru á síðasta ári aðeins 630 á landinu öllu, hafði þeim þá fækkað um rúmlega 200 frá gildistöku núverandi búvörusamninga.

Þetta er staðan sem við þurfum að horfast í augu við og er líka ein af meginástæðum þess hversu mikilvægt er að allar greinar landbúnaðarins vinni saman sem ein heild. Með sameinuðum Bændasamtökum árið 2021 var þeim áfanga náð og hefur mikið áunnist frá þeim tíma í að ná aftur áheyrn bæði stjórnvalda og landsmanna allra á málefnum bænda. Einnig eru boðleiðir innan félagskerfis sameinaðra Bændasamtaka stuttar og því auðvelt fyrir félagsmenn að koma skoðunum og hugmyndum á framfæri. Minni þátttaka er þó staðreynd.

Fjöldi sauðfjárbænda eftir árum.

Flestir sem starfa að félagsmálum í dag þekkja að þátttaka hefur almennt minnkað, það er viss ládeyða sem er einkennandi þessa fyrstu mánuði ársins og þátttakan er því hlutfallslega minni en var áður. Ábyrgðin er þannig sett á færri hendur en áður var. Þessi staða veldur áskorunum í félagskerfi Bændasamtakanna af því það er mikilvægt að sem flestir bændur komi sínum skoðunum á framfæri þegar verið er að sýsla með hagsmuni landsbúnaðarins sem er ein af undirstöðu atvinnugreinum landsins.

Sem framkvæmdastjóri Bændasamtakanna er mér þetta málefni afar hugleikið. Stjórnir búgreinadeilda Bændasamtakanna bera
eðlilega talsverðan hita og þunga af þessu hlutverki að vera tengiliðir við grasrótina þar sem stærri hluti félagsmanna hefur beinan aðgang að starfinu þar. Skrifstofa samtakanna vinnur síðan beint að þeim málefnum sem búgreinadeildirnar óska eftir
hverju sinni. Árleg hringferð Bændasamtakanna, þar sem stjórn BÍ, stjórnir búgreinadeilda og starfsfólk fara hringinn, er einnig einn þáttur í því að ná beinni tengingu við félagsmenn og hafa þær ferðir mælst vel fyrir.

Á næstu vikum og mánuðum munu félagsmenn síðan sjá breytingar sem miða að því að auka til muna upplýsingamiðlun til félagsmanna. Það er von mín að þær breytingar verði til þess að fleiri félagsmenn láti sig hagsmunabaráttuna varða með beinum hætti og láti sínar skoðanir í ljós innan félagskerfisins.

Ein af þeim spurningum sem verður að spyrja sig er hvort sú þróun sem við sjáum á myndunum sé ásættanleg. Enn eru þrjú ár eftir af gildistíma núverandi búvörusamninga sem samþykktir voru árið 2016 en fækkun bænda er nú þegar nálægt þriðjungi á gildistímanum. Hvar eru byggðasjónarmið stjórnvalda sem sett hafa verið fram í ýmsum orðum og áætlunum og hvernig á að takast á við félagslega þáttinn í byggðum landsins þegar fækkunin er jafnmikil og raun ber vitni? Þetta er eitt af mörgum atriðum sem félagskerfið þarf að taka til skoðunar áður en nýir búvörusamningar verða gerðir.

Stöðug fækkun er ekki sjálfbær, því verðum við að efla okkar starf og sækja fram.

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands
Fréttir 9. apríl 2026

Loðdýrabændur starfa áfram í deild Bændasamtaka Íslands

Loðdýrabændur munu áfram starfa í sérstakri búgreinadeild, þó einungis eitt bú s...

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu
Fréttir 9. apríl 2026

Skilyrði verði sköpuð fyrir aukna innlenda framleiðslu

Deildarfundur garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands var haldinn á Búnaðarþingi í...

Hrönn nýr formaður skógarbænda
Fréttir 9. apríl 2026

Hrönn nýr formaður skógarbænda

Stjórnar og formannsskipti voru gerð í deild skógarbænda. Hrönn Guðmundsdóttir e...

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits
Fréttir 9. apríl 2026

Óttast kostnað af tilflutningi eftirlits

Deild alifuglabænda í Bændasamtökum Íslands sendi frá sér ályktun þar sem því va...

Nýr formaður hrossabænda
Fréttir 9. apríl 2026

Nýr formaður hrossabænda

Skeggrætt var á fundi hrossabænda á deildarfundi þeirra á Búnaðarþingi í lok mar...

Tollur fylgir ekki verðlagi
Fréttir 9. apríl 2026

Tollur fylgir ekki verðlagi

Á deildarfundi eggjabænda hjá Bændasamtökum Íslands lögðu fulltrúar áherslu á að...

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn
Fréttir 9. apríl 2026

Vilja leyfi til að flytja inn laxahrogn

Landeldisbændur á Búnaðarþingi lögðu fram þrjár umfangsmiklar tillögur sem snert...

Gripagreiðslur til fjölgunar geita
Fréttir 9. apríl 2026

Gripagreiðslur til fjölgunar geita

Nýtt skýrsluhaldskerfi kemst brátt í gagnið og er mikilvægt til utanumhalds á st...