Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Sexi í Reykjaréttum blautur á reyfið.
Sexi í Reykjaréttum blautur á reyfið.
Mynd / Páll Imsland
Líf og starf 8. nóvember 2021

Einstakur sexhyrndur lambhrútur

Höfundur: Ritstjórn

Það er náttúrulegast að sauðfé hafi ekkert, tvö eða fjögur horn. Stundum heyrast fréttir af þrem eða fimm hornum og einstöku sinnum skýtur upp sögu af einu horni. En sex horn er trúlegast einsdæmi.

Páll Imsland er mikill áhugamaður um liti og aðra breytileika í íslensku búfé. Hann segist hvorki hafa séð né heyrt um sexhyrndan hrút fyrr en í Reykjaréttum á Skeiðum nú í haust. Þar var sexhyrndur lambhrútur svartgolsubotnóttur, sem hefur hlotið nafnið Sexi og er frá Ósabakka og ræktaður af Jökli Helgasyni. Um þetta segir Páll:

„Það er náttúrulegast að horna­fjöldinn standi á pari vegna þess að sauðkindin er, eins og flest æðri dýr, tvíhliða byggð, „bilateral“, eins og það kallast í dýrafræðinni. Það merkir að báðir helmingar dýrsins séu eins gerðir, speglist samhverft um miðflöt. Þess vegna eru eitt, þrjú eða fimm horn eiginlega útilokuð og koma ekki fyrir nema sem einhvers konar vanskapnaður eða afbrigði. Algengast er líklega að þau komi fyrir sem afbrigði í svokallaðri klashyrningu.

Klashyrnt kallast það þegar horn eru samvaxin að hluta eða öllu leyti. Þannig mátti á mynd sem birtist fyrir ekki svo ýkja löngu (einu ári eða tveim) sjá einhyrndan hrút að því er virtist. Hornið var í raun tvö samvaxin horn. Hann var klashyrndur tvíhyrningur. Hornin stóðu svo þétt út úr höfuðkúpunni að þau klösuðust. Þríhyrnt getur líka komið fyrir vegna þess að tvö horn eru samvaxin og þá lítur fljótt á litið út eins og um eitt horn sé að ræða og framkallast þannig stök tala. Þá er í raun um að ræða ferhyrnda kind sem er klashyrnd öðrum megin en stakhyrnd hinum megin,“ segir Páll.

Sexi á húsi þurr og vær.

Sexhyrndur Sexi

„Sexi er hins vegar sexhyrndur og því ekki að brjóta regluna um speglun helminganna, þess hægri og vinstri, enda hornin þrjú á hvorri hlið. Hornin eru að nokkru leyti samvaxin, þ.e.a.s. hann er að hluta til klashyrndur. Það eru takmörk fyrir því hversu höfuðplássið leyfir mörg horn og þegar þrengist um þau er náttúrulegt að þau myndi klasa. Sexi er af ferhyrndu kyni en á í nærættum kollótta, tvíhyrnda og ferhynda forfeður í flókinni fléttu, eins og sjá má af meðfylgjandi ættartölu.“

Líka með sjaldgæft litmynstur

Sexi ber auk þess sjaldgæft litmynstur. Hann er svartur að grunnlit, en ber bæði golsótt og botnótt mynstur, er svartgolsubotnóttur. Hann er ekki lamb af einhverri ónytjugerð, því hann er stigaður upp á 84 stig. Hann hefur verið settur á og mun líklega fá að spreyta sig við fjölgun fjárins á Ósabakka með nokkrum ám um jólin. Gaman verður að sjá hvað kemur út úr því, ekki síst hvað varðar hornagerð og fjölda horna,“ segir Páll.

Sexi er frá bænum Ósabakka og er ræktaður af Jökli Helgasyni.

Sexi, hausinn séður aftan frá.



Ættartala Sexa

Sexi Ósabakka 2021, svartgolsu­botnóttur, sexhyrndur með 84 stig.

  • F: Oddur Ósabakka 2020, svartgolsóttur, ferhyrndur
  • FF: Hálfur Ósabakka 2019, hvítur, ferukollóttur
  • FFF: Kollur Árbæ 2015, hvítur, kollóttur
  • FFM: Hæra Ósabakka 2009, svartgolsótt, ferhyrnd með brúsk
  • FM: Punta Ósabakka 2015, svartbotnótt, ferukollótt
  • FMF: Töffi Ósabakka 2014, svartgolsóttur, ferhyrndur
  • FMM: Smart Ósabakka 2010, svartflekkótt, kollótt
  • M: Undra Ósabakka 2019, svartgolsubotnótt, tvíhyrnd
  • MF: NN fæddur 2016, svartbotnóttur, tvíhyrndur
  • MFF: Drífandi Hesti 2011, svartur, tvíhyrndur
  • MFM: NN fædd 2012, svartbotnótt, tvíhyrnd
  • MM: Klumsa Ósabakka 2014, morgolsótt, ferhyrnd
  • MMF: Höttur Ósabakka 2010, morarnhöfðóttur, tvíhyrndur
  • MMM: Geit Ósabakka 2011, svartgolsótt, ferhyrnd

Samhverf hornaröð. Ferhyrndur hrútur, svartgolsóttur.

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum
Fréttir 12. febrúar 2026

Nýr Íslandsmetshafi í ársafurðum

Kýrin Plóma frá Gunnbjarnarholti mjólkaði 16.779 kílógrömmum af mjólk á síðasta ...

Engin riða í heilasýnum
Fréttir 12. febrúar 2026

Engin riða í heilasýnum

Engin merki um sauðfjárriðu var að finna í heilasýnum sem tekin voru í sláturhús...

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum
Fréttir 12. febrúar 2026

Raforkukostnaður lækkar hjá garðyrkjubændum

Garðyrkjubændum með vaxtarlýsingu hefur nýlega boðist að lækka raforkukostnað si...

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga
Fréttir 12. febrúar 2026

Lagaleg óvissa um áhrif nýrra búvörulaga

Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) telja ótækt að frumvarp um breytingar á bú...

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði
Fréttir 12. febrúar 2026

Brugðist við vaxandi álagi í Þingvallaþjóðgarði

Deiliskipulag fyrir vesturhluta Þjóðgarðsins á Þingvöllum felur í sér vernd, upp...

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu
Fréttir 12. febrúar 2026

Vilja ekki innleiða erlent kúakyn til mjólkurframleiðslu

Um sextíu prósent bænda í Bændasamtökum Íslands eru ósammála eða nokkuð ósammála...

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist
Fréttir 12. febrúar 2026

Sérstaks frumvarps um landeldi krafist

Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar...

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli
Fréttir 12. febrúar 2026

Dýrahræ áfram urðuð í miklum mæli

Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar fóru á árinu 2024 um 84% dýra...