Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Dýrindis saltkjöt var á boðstólum auk gúllassúpu sem rann ljúft ofan í mannskapinn.
Dýrindis saltkjöt var á boðstólum auk gúllassúpu sem rann ljúft ofan í mannskapinn.
Mynd / Þuríður Steindórsdóttir
Líf og starf 30. júlí 2021

Buðu hestamönnum í saltkjötveislu

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdótttir

Um hundrað manns mættu til veisluhalda á Króksstöðum í Eyjafjarðarsveit á dögunum. Króksstaðabændur, hjónin Helga Árnadóttir og Guðmundur Karl Tryggvason, eigendur jarðarinnar ásamt Stefáni Erlingssyni sem á þar hús, buðu hestamönnum að koma við og gera sér glaðan dag yfir saltkjöti og gúllassúpu.

„Það var greinilegt að fólk þyrstir í skemmtilegar samverustundir, eftir langan vetur án mikils samkomuhalds,“ segir Guðmundur. Hann og Helga hafa hross sín í haga á Króksstöðum, halda þar hænur og eru með matjurtagarð, en búa á Akureyri.

Söltuðu of mikið eða borðuðu of lítið?

Guðmundur og Stefán hafa lengi verið samtíða í hestamennsku og brallað eitt og annað saman í áranna rás. Þeir til að mynda salta hrossakjöt í tunnur á haustin og sáu þegar á leið vorið að annaðhvort hafi verið ríflega sett í tunnurnar eða matarlystin með lakara móti, því mikið var til.

Þeim datt því í hug að blása til veislu og bjóða Léttisfélögum að koma yfir, en hægur vandi er úr hesthúsahverfum Akureyrar yfir á Króksstaði einhesta.

Erlingur Guðmundsson og Þór Sigurðsson heldur kátir báðir tveir að komast loks á almennilegt mannamót.

Slegið á létta strengi

„Það var nóg til fyrir alla, við vorum undir það búnir að taka á móti svo stórum hóp,“ segir Guðmundur sem er matreiðslumaður og starfaði og rak Bautann um árabil. Um 60 manns höfðu boðað þátttöku og þá mátti alltaf eiga von á slatta af fólki sem ekki hefði hirt um að skrá sig.

Auk saltkjötsins var elduð gúllassúpa og fengu allir vel að borða, það var slegið á létta strengi, mikið hlegið og vitanlega tóku hestamenn lagið og sungu við raust.   

Skylt efni: hrossakjöt | Hestamenn

Varað við veikingu Hólastaðar og Háskólans
Fréttir 16. mars 2026

Varað við veikingu Hólastaðar og Háskólans

Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum lýstu áhyggjum sínum a...

Ávinningur af Matvælasjóði
Fréttir 16. mars 2026

Ávinningur af Matvælasjóði

Í úttekt Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri (RHA) kemur fram a Matvælasjóð...

Ólafur Þórisson í formannsframboð
Fréttir 16. mars 2026

Ólafur Þórisson í formannsframboð

Nautgripabændur velja nýjan formann
Fréttir 16. mars 2026

Nautgripabændur velja nýjan formann

Rafn Bergsson, formaður deildar nautgripabænda hjá Bænda- samtökum Íslands, býðu...

Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði
Fréttir 16. mars 2026

Áætlaður 18% samdráttur í losun frá áburði

Loftslags- og orkusjóður úthlutaði 80 milljónum króna til 42 verkefna sem fela í...

Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt
Fréttir 16. mars 2026

Hærra afurðaverð í útiræktun – meiri kostnaður í ylrækt

Rekstrarafkoma garðyrkjubænda versnaði nokkuð á árinu 2024. Þetta kemur fram í n...

Varar við því að samþykkja frjálst flæði lifandi dýra
Fréttir 16. mars 2026

Varar við því að samþykkja frjálst flæði lifandi dýra

Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir, varar eindregið við því að Íslan...

Axel vill halda formennsku áfram
Fréttir 16. mars 2026

Axel vill halda formennsku áfram

Axel Sæland gefur kost á sér til áframhaldandi formennsku í garðyrkjudeild Bænda...